Fréttablaðið - 04.03.2016, Side 22

Fréttablaðið - 04.03.2016, Side 22
Ylfa opnaði veitingastaðinn Kopar að Geirsgötu 3b í félagi við Ástu Guðrúnu Óskarsdóttur árið 2013. Heldur hallar á konur í veit­ ingahúsarekstri hér á landi en þær Ylfa og Ásta leiddu ekki einu sinni hugann að því þegar þær fóru af stað á sínum tíma. „Ég þekki ekki söguna út og inn en veit þó ekki um mörg dæmi þess að tvær konur hafi farið út í sams konar rekstur,“ segir Ylfa, en auk hennar og Ástu eru tveir fjárfestar í eigendahópn­ um. „Við spáðum ekkert í það en eftir á að hyggja hef ég ekki heldur leitt hugann að því hvað við vorum ungar,“ segir Ylfa en hún var að­ eins 24 ára og Ásta litlu eldri þegar þær opnuðu staðinn. Honum var strax vel tekið og hefur Ylfa vart litið upp síðan. Sama ár og staður­ inn var opnaður gerðist hún með­ limur í Kokkalandsliði Íslands sem fylgir ekki minni vinna en þar er hún eini kvenkokkurinn í rúmlega tíu manna hópi. Ylfa er einkabarn. Hún er alin upp af einstæðri móður og var mikið hjá ömmu sinni í æsku. „Faðir minn bjó í útlöndum en ég hef sterk­ ar kvenfyrirmyndir. Ég hef gaman af því að velta stöðu kynjanna fyrir mér en mér hefur ekki fundist það aftra mér að vera kona í þess­ um karllæga kokkaheimi. Fyrir nokkru kynntist ég stelpu sem var í fyrsta árgangi Hjallastefnunn­ ar. Hún sagðist ekki hafa uppgötv­ að það fyrr en hún var fimmtán ára að það væri einhver munur á strák­ um og stelpum og að stelpur ættu ekki að geta eitthvað sem strákar gætu. Það hafði bara aldrei hvarfl­ að að henni og það sama held ég eigi við um mig. Ég lít ekki á mig sem eina af strákunum. Ég er stelpa sem starfa jafnfætis þeim og það viðhorf hefur reynst mér mjög vel.“ Ylfa segir kokkaáhugann hafa kviknað snemma. „Ég man að mér fannst voða gaman að baka með ömmu og þegar ég var þrettán eða fjórtán ára fann ég blað í uppskrifta­ möppu þar sem ég hafði listað upp níu rétta máltíð fyrir mömmu mína og móðursystur einhverjum árum áður. Þá rifjaðist upp fyrir mér að ég eldaði fyrir þær margra rétta máltíð úr því sem var til í skápun­ um, en á þeim tíma bjuggum við allar saman í pínulítilli íbúð. Á mat­ seðlinum voru alls kyns furðuleg­ heit en það fyndna var að ég hafði aldrei farið margrétta út að borða. Það flottasta sem ég hafði prófað á þessum tíma var að fara á Ask. Ég hafði heldur ekki sama aðgang að matreiðsluþáttum og þekkist í dag svo þetta kom nokkuð náttúrulega,“ segir Ylfa. Upp frá þessu fór hún að halda alls kyns þematengd matar­ boð og þá varð ekki aftur snúið. Ylfa ákvað þó að ljúka stúdents­ prófi áður en hún hóf kokkanám­ ið. „Ég er mjög ánægð með að hafa tekið þá ákvörðun. Sumir fara í kokkanámið strax eftir tíunda bekk en ég er ekki viss um að ég hefði höndlað það. Streitan og álagið sem fylgir þessari vinnu er það mikið að það er hætt við að fólk brenni út. Við erum auðvitað misjöfn en það hent­ aði mér að vera komin með aðeins harðari skráp.“ Food & Fun hátíðin stendur nú sem hæst og er Ylfa á vitanlega á kafi. „Ég var í starfsnámi á Fisk­ markaðnum fyrstu Food & Fun há­ tíðina sem ég starfaði sem kokkur og man að Hrefna Sætran, eigandi staðarins, sagði að þá væri gaman. Það hefur verið afstaða mín síðan þótt hátíðin sé vissulega krefjandi. Þetta brýtur upp okkar daglega munstur. Allur matseðill staðarins er settur á ís. Öllum hefðbundnum reglum er rutt burt og það má helst ekkert út af bera.“ Á hátíðinni fær hver staður til sín gestakokk. „Okkar maður heit­ ir Mike Wilson og er frá Toronto en ég var svo heppin að kynnast honum á ferðum mínum haust,“ segir Ylfa sem varði hluta af síðasta ári í að ferðast til Bandaríkjanna og víðar á vegum Iceland Naturally og Íslands­ stofu til að kynna íslenskan mat og menningu. Á Food & Fun matseðli Kop­ ars í ár eru ostrur, ígulker, svart­ ar trufflur, humar, kræklingur og lamb. „Þá er ég mjög spennt fyrir eftirréttinum en Mike verður með veitingahúsa útgáfu af amerísku klassíkinni S‘mores sem stendur fyrir some mores en þetta er eins­ konar kexloka fyllt með sykur­ púðum og súkkulaði og mjög vinsælt í grillpartíum ytra,“ útskýrir Ylfa. Eins og venja er á Food & Fun er aðeins einn matseðill í boði á hverj­ um stað og er verðið alls staðar það sama, eða 8.500 krónur. Hugmyndin er að allir geti leyft sér að fara fínt út að borða og prófað framandi rétti. Áherslan á Kopar hefur frá upp­ hafi verið á sjávarrétti enda er stað­ urinn í mikilli nálægð við sjóinn. „Við erum þó með kjötrétti í bland. Við einbeitum okkur að góðum ís­ lenskum mat og góðum sósum enda eru Íslendingar mikið fyrir þær. Fiskurinn hefur þó yfir höndina, ekki síst vegna þess að úrval skel­ fiskafurða á ársgrundvelli hefur aukist og nú er til dæmis hægt að fá krækling, sem áður var aðeins hægt að bjóða árstíðabundið, árið um kring. Þá erum við með mikið úrval af skelfiski, krabba, humar og hörpuskel svo dæmi séu nefnd.“ Eftir Food & fun hátíðina taka stífar æfingar hjá Kokkalandslið­ inu við hjá Ylfu en stefnan er tekin á Ólympíuleikana í Erfurt í október. „Þetta er alltaf tveggja ára hringrás og skiptist á heimsmeistaramót og Ólympíuleikar á tveggja ára fresti. Það varð mikil endurnýjun í lands­ liðshópnum árið sem ég byrjaði og því mikil vinna fram undan.“ Ylfa segist ekki vera komin með plön fyrir sumarið. „Ég er á þeim stað núna að reyna að láta sumarfrí starfsfólks ganga upp áður en ég fer að huga að mínu. Þá þarf að þjálfa upp nýtt fólk fyrir sumarið sem er magnaður tími í þessum geira.“ En hvað gerir þú í frístundum? „Ég reyni að hitta ættingja og vini sem sjá lítið af mér vegna vinnunn­ ar en sýna því þó mikinn skilning. Þá finnst mér voða gaman að spila og svo er ég mikið Eurovision­nörd. Mér finnst alltaf svo skemmtileg stemning í kringum keppnina og meira að segja þeir sem segjast ekki hafa gaman af henni, kætast.“ Ylfa starfaði á Grillmarkaðn­ um áður en hún hóf eigin rekstur og festi snemma rætur í miðbæn­ um. „Ég er alin upp í 108 en það var hentugra að búa í bænum sam­ hliða vinnunni. Ég var svo heppin að eignast íbúð á Hverfisgötu upp úr tvítugu og keypti mér svo nýver­ ið hús á Bergstaðastræti ásamt unn­ usta mínum, Alfreð Pétri Sigurðs­ syni. Ætli ég noti ekki lausar stundir til að koma okkur enn betur fyrir.“ vera@365.is Ylfa hefur fest rætur í miðbænum og festi nýverið kaup á húsi á Bergstaðarstræti ásamt unnusta sínum. MYND/ANTON Fyrir nokkru kynnt- ist ég stelpu sem var í fyrsta árgangi Hjalla- stefnunnar. Hún sagðist ekki hafa uppgötvað það fyrr en hún var fimmtán ára að það væri einhver munur á strákum og stelpum og að stelpur ættu ekki að geta eitthvað sem strákar gætu. Það hafði bara aldrei hvarflað að henni og það sama held ég eigi við um mig. Ylfa Helgadóttira Það fyndna var að ég hafði aldrei farið margrétta út að borða. Það flottasta sem ég hafði prófað á þessum tíma var að fara á Ask. Ég hafði heldur ekki sama aðgang að matreiðslu- þáttum og þekkist í dag svo þetta kom nokkuð náttúrulega. Ylfa Helgadóttir MyndaalbúMið Kopar er til húsa í einni af gömlu verbúðunum við höfnina. Eðli málsins sam- kvæmt er fiskmeti áberandi á matseðlinum. Ylfa ásamt unnusta sínum, Alfreð Pétri Sigurðssyni. Ásta Guðrún og Ylfa, eigendur Kopars, á góðri stund.Ylfa hefur haft áhuga á bakstri og matseld frá unga aldri. Ylfa geislaði á fermingardaginn fyrir um 13 árum. Ylfa fór snemma að halda ýmiss konar þematengd matarboð. Hér hefur hún útbúið dýrindis lautarferð. Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson | Umsjónarmenn efnis: Sólveig gísladóttir, solveig@365.is, s. 512 5351, Vera einars- dóttir, vera@365.is, s. 512 5357 | Sölumenn: Atli Bergmann, atlib@365.is, s. 512 2447, Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434, Jóhann Waage, johannwaage@365.is, s. 512 5439, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.is, s. 512 5429 4 . m a r s 2 0 1 6 F Ö s T U D a G U r2 F ó l k ∙ k y n n i n G a r b l a ð ∙ X X X X X X X XF ó l k ∙ i ∙ l í F s s T í l l 0 4 -0 3 -2 0 1 6 0 4 :1 9 F B 0 5 6 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 8 A A -0 A 5 0 1 8 A A -0 9 1 4 1 8 A A -0 7 D 8 1 8 A A -0 6 9 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 B F B 0 5 6 s _ 3 _ 3 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.