Fréttablaðið - 04.03.2016, Qupperneq 22
Ylfa opnaði veitingastaðinn
Kopar að Geirsgötu 3b í félagi
við Ástu Guðrúnu Óskarsdóttur árið
2013. Heldur hallar á konur í veit
ingahúsarekstri hér á landi en þær
Ylfa og Ásta leiddu ekki einu sinni
hugann að því þegar þær fóru af
stað á sínum tíma. „Ég þekki ekki
söguna út og inn en veit þó ekki
um mörg dæmi þess að tvær konur
hafi farið út í sams konar rekstur,“
segir Ylfa, en auk hennar og Ástu
eru tveir fjárfestar í eigendahópn
um. „Við spáðum ekkert í það en
eftir á að hyggja hef ég ekki heldur
leitt hugann að því hvað við vorum
ungar,“ segir Ylfa en hún var að
eins 24 ára og Ásta litlu eldri þegar
þær opnuðu staðinn. Honum var
strax vel tekið og hefur Ylfa vart
litið upp síðan. Sama ár og staður
inn var opnaður gerðist hún með
limur í Kokkalandsliði Íslands sem
fylgir ekki minni vinna en þar er
hún eini kvenkokkurinn í rúmlega
tíu manna hópi.
Ylfa er einkabarn. Hún er alin
upp af einstæðri móður og var
mikið hjá ömmu sinni í æsku. „Faðir
minn bjó í útlöndum en ég hef sterk
ar kvenfyrirmyndir. Ég hef gaman
af því að velta stöðu kynjanna fyrir
mér en mér hefur ekki fundist
það aftra mér að vera kona í þess
um karllæga kokkaheimi. Fyrir
nokkru kynntist ég stelpu sem var
í fyrsta árgangi Hjallastefnunn
ar. Hún sagðist ekki hafa uppgötv
að það fyrr en hún var fimmtán ára
að það væri einhver munur á strák
um og stelpum og að stelpur ættu
ekki að geta eitthvað sem strákar
gætu. Það hafði bara aldrei hvarfl
að að henni og það sama held ég eigi
við um mig. Ég lít ekki á mig sem
eina af strákunum. Ég er stelpa sem
starfa jafnfætis þeim og það viðhorf
hefur reynst mér mjög vel.“
Ylfa segir kokkaáhugann hafa
kviknað snemma. „Ég man að mér
fannst voða gaman að baka með
ömmu og þegar ég var þrettán eða
fjórtán ára fann ég blað í uppskrifta
möppu þar sem ég hafði listað upp
níu rétta máltíð fyrir mömmu mína
og móðursystur einhverjum árum
áður. Þá rifjaðist upp fyrir mér að
ég eldaði fyrir þær margra rétta
máltíð úr því sem var til í skápun
um, en á þeim tíma bjuggum við
allar saman í pínulítilli íbúð. Á mat
seðlinum voru alls kyns furðuleg
heit en það fyndna var að ég hafði
aldrei farið margrétta út að borða.
Það flottasta sem ég hafði prófað á
þessum tíma var að fara á Ask. Ég
hafði heldur ekki sama aðgang að
matreiðsluþáttum og þekkist í dag
svo þetta kom nokkuð náttúrulega,“
segir Ylfa. Upp frá þessu fór hún að
halda alls kyns þematengd matar
boð og þá varð ekki aftur snúið.
Ylfa ákvað þó að ljúka stúdents
prófi áður en hún hóf kokkanám
ið. „Ég er mjög ánægð með að hafa
tekið þá ákvörðun. Sumir fara í
kokkanámið strax eftir tíunda bekk
en ég er ekki viss um að ég hefði
höndlað það. Streitan og álagið sem
fylgir þessari vinnu er það mikið að
það er hætt við að fólk brenni út. Við
erum auðvitað misjöfn en það hent
aði mér að vera komin með aðeins
harðari skráp.“
Food & Fun hátíðin stendur nú
sem hæst og er Ylfa á vitanlega á
kafi. „Ég var í starfsnámi á Fisk
markaðnum fyrstu Food & Fun há
tíðina sem ég starfaði sem kokkur
og man að Hrefna Sætran, eigandi
staðarins, sagði að þá væri gaman.
Það hefur verið afstaða mín síðan
þótt hátíðin sé vissulega krefjandi.
Þetta brýtur upp okkar daglega
munstur. Allur matseðill staðarins
er settur á ís. Öllum hefðbundnum
reglum er rutt burt og það má helst
ekkert út af bera.“
Á hátíðinni fær hver staður til
sín gestakokk. „Okkar maður heit
ir Mike Wilson og er frá Toronto en
ég var svo heppin að kynnast honum
á ferðum mínum haust,“ segir Ylfa
sem varði hluta af síðasta ári í að
ferðast til Bandaríkjanna og víðar á
vegum Iceland Naturally og Íslands
stofu til að kynna íslenskan mat og
menningu.
Á Food & Fun matseðli Kop
ars í ár eru ostrur, ígulker, svart
ar trufflur, humar, kræklingur og
lamb. „Þá er ég mjög spennt fyrir
eftirréttinum en Mike verður með
veitingahúsa útgáfu af amerísku
klassíkinni S‘mores sem stendur
fyrir some mores en þetta er eins
konar kexloka fyllt með sykur
púðum og súkkulaði og mjög vinsælt
í grillpartíum ytra,“ útskýrir Ylfa.
Eins og venja er á Food & Fun er
aðeins einn matseðill í boði á hverj
um stað og er verðið alls staðar það
sama, eða 8.500 krónur. Hugmyndin
er að allir geti leyft sér að fara fínt
út að borða og prófað framandi rétti.
Áherslan á Kopar hefur frá upp
hafi verið á sjávarrétti enda er stað
urinn í mikilli nálægð við sjóinn.
„Við erum þó með kjötrétti í bland.
Við einbeitum okkur að góðum ís
lenskum mat og góðum sósum enda
eru Íslendingar mikið fyrir þær.
Fiskurinn hefur þó yfir höndina,
ekki síst vegna þess að úrval skel
fiskafurða á ársgrundvelli hefur
aukist og nú er til dæmis hægt að
fá krækling, sem áður var aðeins
hægt að bjóða árstíðabundið, árið
um kring. Þá erum við með mikið
úrval af skelfiski, krabba, humar
og hörpuskel svo dæmi séu nefnd.“
Eftir Food & fun hátíðina taka
stífar æfingar hjá Kokkalandslið
inu við hjá Ylfu en stefnan er tekin
á Ólympíuleikana í Erfurt í október.
„Þetta er alltaf tveggja ára hringrás
og skiptist á heimsmeistaramót og
Ólympíuleikar á tveggja ára fresti.
Það varð mikil endurnýjun í lands
liðshópnum árið sem ég byrjaði og
því mikil vinna fram undan.“
Ylfa segist ekki vera komin með
plön fyrir sumarið. „Ég er á þeim
stað núna að reyna að láta sumarfrí
starfsfólks ganga upp áður en ég fer
að huga að mínu. Þá þarf að þjálfa
upp nýtt fólk fyrir sumarið sem er
magnaður tími í þessum geira.“
En hvað gerir þú í frístundum?
„Ég reyni að hitta ættingja og vini
sem sjá lítið af mér vegna vinnunn
ar en sýna því þó mikinn skilning.
Þá finnst mér voða gaman að spila
og svo er ég mikið Eurovisionnörd.
Mér finnst alltaf svo skemmtileg
stemning í kringum keppnina og
meira að segja þeir sem segjast ekki
hafa gaman af henni, kætast.“
Ylfa starfaði á Grillmarkaðn
um áður en hún hóf eigin rekstur
og festi snemma rætur í miðbæn
um. „Ég er alin upp í 108 en það
var hentugra að búa í bænum sam
hliða vinnunni. Ég var svo heppin
að eignast íbúð á Hverfisgötu upp
úr tvítugu og keypti mér svo nýver
ið hús á Bergstaðastræti ásamt unn
usta mínum, Alfreð Pétri Sigurðs
syni. Ætli ég noti ekki lausar stundir
til að koma okkur enn betur fyrir.“
vera@365.is
Ylfa hefur fest rætur í miðbænum og festi nýverið kaup á húsi á Bergstaðarstræti ásamt unnusta sínum. MYND/ANTON
Fyrir nokkru kynnt-
ist ég stelpu sem
var í fyrsta árgangi Hjalla-
stefnunnar. Hún sagðist
ekki hafa uppgötvað það
fyrr en hún var fimmtán
ára að það væri einhver
munur á strákum og
stelpum og að stelpur
ættu ekki að geta eitthvað
sem strákar gætu. Það
hafði bara aldrei hvarflað
að henni og það sama
held ég eigi við um mig.
Ylfa Helgadóttira
Það fyndna var að
ég hafði aldrei
farið margrétta út að
borða. Það flottasta sem
ég hafði prófað á þessum
tíma var að fara á Ask. Ég
hafði heldur ekki sama
aðgang að matreiðslu-
þáttum og þekkist í dag
svo þetta kom nokkuð
náttúrulega.
Ylfa Helgadóttir
MyndaalbúMið
Kopar er til húsa í einni af gömlu verbúðunum við höfnina. Eðli málsins sam-
kvæmt er fiskmeti áberandi á matseðlinum.
Ylfa ásamt unnusta sínum, Alfreð
Pétri Sigurðssyni.
Ásta Guðrún og Ylfa, eigendur Kopars, á góðri stund.Ylfa hefur haft áhuga á bakstri og
matseld frá unga aldri.
Ylfa geislaði á fermingardaginn fyrir
um 13 árum.
Ylfa fór snemma að halda ýmiss konar
þematengd matarboð. Hér hefur hún
útbúið dýrindis lautarferð.
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna
vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig
hefðbundið ritstjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson | Umsjónarmenn efnis: Sólveig gísladóttir, solveig@365.is, s. 512 5351, Vera einars-
dóttir, vera@365.is, s. 512 5357 | Sölumenn: Atli Bergmann, atlib@365.is, s. 512 2447, Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434, Jóhann
Waage, johannwaage@365.is, s. 512 5439, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.is, s. 512 5429
4 . m a r s 2 0 1 6 F Ö s T U D a G U r2 F ó l k ∙ k y n n i n G a r b l a ð ∙ X X X X X X X XF ó l k ∙ i ∙ l í F s s T í l l
0
4
-0
3
-2
0
1
6
0
4
:1
9
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
8
A
A
-0
A
5
0
1
8
A
A
-0
9
1
4
1
8
A
A
-0
7
D
8
1
8
A
A
-0
6
9
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
0
5
6
s
_
3
_
3
_
2
0
1
6
C
M
Y
K