Fréttablaðið - 04.03.2016, Síða 50

Fréttablaðið - 04.03.2016, Síða 50
Þetta snýst nú meira um að láta gamla drauma rætast. Skammdegið Síðustu viku hef ég eytt lárétt, haltrandi og töluvert örg eftir að hið margumrædda brunasár var dæmt skurðtækt og í kjölfarið fjar- lægt. Nú blasir við bjartari tíð og ég get bráðum farið að tala um eitthvað annað, vinum og vandamönnum til mikillar gleði, geri ég ráð fyrir. Svo var líka að koma mars og bara orðið bjart á morgnana og svona. Ég kippi mér reyndar ekkert sérstaklega mikið upp við skamm- degið. Mér líður nefnilega alltaf eins og gullverðlaunahafa í þessu sem í daglegu tali er kallað lífið þegar ég vakna á morgnana og það er enn dimmt úti. Það að ég sé í flestum tilfellum að vakna sirka korteri of seint má bara liggja á milli hluta. Það er nefnilega svo geggjað að rífa upp augun og finnast maður vera algjör helvítis hetja. Þegar það er orðið bjart þegar ég vakna upplifi ég bara ekki sömu sætu sigurtilfinningu og mér líður bara eins og ég hefði átt að vakna á slaginu sex, henda í nokkrar jógapósur í stofunni, hella upp á Bulletproof-kaffi og hræra í einhvern meinhollan, óætan en samfélags- miðlavænan chia-graut. Fjarlægur draumur sem mun sjálfsagt aldrei verða að veruleika. Skammdegið fer því ekkert sérstaklega mikið í taugarnar á mér, mér finnst það bara frekar notalegt og kósí. Plús það að maður þarf minna að þurrka af þegar það er dimmt, rykið sést miklu síður. Pottaplönturnar mínar eru ekki sammála mér. Ég safna nefnilega líka svoleiðis, með sér- stakri áherslu á þykkblöðunga og kaktusa. Plönturnar hafa verið heldur framlágar síðustu mánuði og tvær hafa sagt skilið við sitt jarðneska líf. Það er auðvitað alveg ferlegt, dregur smá úr eigand- anum og fær hann til þess að efast um fullorðinstitilinn sem fylgir hækk- andi aldri. Ég er samt búin að vera dugleg við að stappa í þær stálinu og beita öllum mínum sannfæringarkrafti til þess að fullvissa þær um að von sé á betri tíð. lll Hlaðvörp Ég skil ekki hvernig ég kom hinum ýmsu heimilisstörfum í verk áður en hlaðvörp urðu hluti af lífi mínu. Ég á líka erfitt með að muna hvernig ég festi svefn áður en ég byrj- aði að hlusta á þau. Fullkomlega þess virði þó ég ranki stundum við mér í óþægilega ákafri andnauð sökum hvítu heyrnartólasnúr- unnar sem hefur vafið sig hring eftir hring í kringum hálsinn á mér á meðan ég lét ómþýða rödd Ira Glass svæfa mig. Eða kannski var það snúran sem svæfði mig. lll Netverslun Í upphafi nýs mánaðar hef ég alls konar ótrúlegar hug- myndir um alls konar eitthvað sem ég ætla að nýta nýlega jákvæða stöðuna á heimabankanum í. Ég svoleiðis fletti alls konar upp á netinu og verð uppveðruð og dáldið æst. Svo ætla ég auðvitað líka að eyða í upplifanir enda á ég þann sam- nefnara með sjálfsagt flestum að mér finnst gaman að upplifa. Sér- staklega skemmtilega hluti. Það verður hins vegar sjaldan úr þessum draumórafjárfestingum mínum en flestar snúa þær að viðskiptum við netverslanir. Ég hef nefnilega aldrei keypt neitt á netinu. Ég veit alveg að það er ekk- ert ótrúlega erfitt að láta þennan draum rætast og mjög margir gera það mjög oft. Ég bara guggna ein- hvern veginn alltaf á endanum. Þess vegna var það áramóta- heitið mitt að fjárfesta í einhverju á netinu, auk þess að drekka meira vatn. Núna er þetta líka orðið þann- ig að mér líður eins og mín fyrsta fjárfesting á netinu þurfi að vera eitthvað alveg ótrúlegt, stórkost- legt og einstakt þannig að ég er komin í algjöra dílemmu með þetta. Svo ofpeppast ég stundum dáldið – var til dæmis orðin talsvert æst um daginn þegar ég ætlaði að fara að fjárfesta í einhverj- um fimm hundruð stykkjum af eðalsteinum sem ferja átti frá Kína í 101 Reykjavík og ég hafði ekki nokkra ein- ustu hugmynd um hvað ég ætlaði að gera við. Þeir voru bara svo fallegir á litinn. Fimm hundruð eðalsteinar og þunglyndir þykkblöðungar  @gydaloa gydaloa@frettabladid.is Hljómsveitin Retro Stefson og tón- listarmaðurinn Júníus Meyvant eru á meðal þeirra sem koma fram á Þjóðahátíð 2016. „Þetta er í þriðja sinn sem við spilum þarna og við hlökkum mikið til,“ segir Unn- steinn Manuel Stefánsson, söngvari og einn gítarleikara Retro Stefson. Hann segir að Þjóðhátíð hafi komið honum á óvart þegar hann fór þangað fyrst árið 2013 til þess að spila. „Það er ekkert svo algengt að fólk úr hverfinu fari og spili á Þjóðhátíð, því hverfið er einhvern veginn frekar svona Innipúka-mið- að en það kom okkur bara skemmti- lega á óvart hvað þetta var flott festi- val og mikil svona fjölskylduhátíð,“ segir Unnsteinn Manuel spurður út í sín fyrstu kynni af hátíðinni. Hann er ekki mikill útilegumaður þó hann kunni vel við sig í Dalnum. „Ó nei, ég er ekki mikill útilegumað- ur, ég er ofnæmisbarn og rétt kíki í hvítu tjöldin til að hitta einhverja vini mína en svo er ég farinn,“ segir Unnsteinn Manuel og hlær. Um þessar mundir fagnar Retro Stefson tíu ára afmæli sínu og segir Unnsteinn Manuel að sveitin komi til með að leika talsvert af nýju efni í Herjólfsdalnum. „Við erum að fara að spila fullt af nýjum lögum,“ retro stefson og Júníus meyvant spila á Þjóðhátíð Retro Stefson er á leið til Eyja. fRéttablaðið/ERniR Ó nei, ég er ekki mikill útilegu- maður, ég er oFnæmisbarn og rétt kíki í hvítu tJöldin til að hitta einhverJa vini mína en svo er ég Farinn bætir hann við. Síðasta ár var ákaf- lega annasamt hjá Júníusi Meyvant og hefur hann komið víða við í Evr- ópu á undanförnum mánuðum. Júníus, sem er einmitt Vestmanna- eyingur, stimplaði sig rækilega inn þegar hann gaf út smáskífuna „Color Decay“ vorið 2014. „Þetta verður í fimmta sinn sem ég fer á Þjóðhá- tíð. Ég var meira að segja einu sinni bílastæðavörður á Þjóðhátíð, líklega „Ég fór bara inn á heimasíðuna þeirra af rælni. Þar var svona linkur til þess að hafa samband og ég hugsaði bara með mér að það kostaði nú aldrei neitt að spyrja þannig að ég sendi inn fyrirspurn og þannig rúllaði boltinn af stað,“ útskýrir hásetinn Níels Alvin Níelsson um tildrög þess að hann hefur nú bókað sal í Háskóla- bíói undir tónleika með uppáhalds- hljómsveitinni sinni, Fairport Con- vention, þann 20. maí árið 2017. „Ég er aðeins að hoppa út í djúpu laugina, ég hef enga reynslu af tón- leikahaldi en ég er með góða menn í kringum mig sem eru búnir að gefa mér ókeypis ráð. Þannig að ég ákvað að stökkva af stað.“ Níels hefur hlust- að á hljómsveitina frá 16 ára aldri eða í rúm 30 ár. „Þeir standa fyrir tón- listarhátíð þar sem mæta um 20.000 manns og ég hef farið þrisvar sinnum og var alltaf með það í huganum að það væri gaman að fá þá hingað. Maður bara þekkir ekki markaðinn þannig að maður er að renna svolítið blint í sjóinn með þetta.“ „Ég tilkynnti þetta á Facebook fyrir vini og vandamenn. Manni finnst nú oft ekkert að marka Facebook. Það eru kannski 100 manns sem skrá sig á einhvern við- burð en svo mæta 20. En viðtökurnar hafa verið góðar það sem af er og fólk hefur verið í óðaönn að senda mér skilaboð og biðja mig um að taka frá miða.“ Níels segir textasmíð sveitarinnar kostar aldrei neitt að spyrja Hásetinn Níels Alvin Níelsson reri á dögunum á ný mið og skipuleggur nú sína fyrstu tónleika. Salur í Háskólabíói hefur verið pantaður en tón- leikarnir eru með uppáhaldshljómsveitinni hans, Fairport Convention. níels alvin er að vonum alsæll yfir því hversu vel uppáhaldshljómsveit hans tók í það að koma og spila hér á landi. Hann hefur nú bókað sal í Háskólabíói fyrir fyrirhugaða tónleika. fRéttablaðið/StEfán 4 . m a r S 2 0 1 6 F Ö S T U D a G U r34 L í F i ð ∙ F r É T T a B L a ð i ð Lífið 0 4 -0 3 -2 0 1 6 0 4 :1 9 F B 0 5 6 s _ P 0 5 0 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 8 A 9 -F B 8 0 1 8 A 9 -F A 4 4 1 8 A 9 -F 9 0 8 1 8 A 9 -F 7 C C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 A F B 0 5 6 s _ 3 _ 3 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.