Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.2007, Side 13
DV Sport
MÁNUDAGUR 19. NÓVEMBER 2007 13
HANDBOLTI
Fram treysti stöðu
sína í toppbaráttu
Nl-deildar karla í
handknattleik með
tryggum sigri, 30-22,
á liði Akureyrar í
gær.
Akureyringar komust í 1-0 en það
var eina skiptið sem þeir voru yflr í
leiknum. Bestu menn vallarins fyrstu
tíu mínúturnar voru markverðirnir
tveir, en Hörður Flóki Kristinsson og
Björgvin Páll Gústavsson höfðu eft-
ir tíu mínútur varið flmm skot hvor.
Að lokum voru það Framarar sem
fundu leiðina framhjá Herði Flóka
og byggðu sér upp þriggja til fjög-
urra marka forskot sem þeir héldu
örugglega út hálfleikinn. Leikurinn
var nokkuð harður, enda Akureyr-
arvörnin óárennileg með þá Rúnar
Sigtryggsson og Þorvald Þorvalds-
son fyrir miðju. Guðjón Drengsson
var ekki sáttur við samskipti sín við
Goran Gusic en meint brot Gusics
fóru framhjá dómurum leiksins.
Fyrsta tveggja mínútna brottvísun-
in var ekki dæmd fyrr en um miðj-
an síðari hálfleik. Akureyringar fóru
illa að ráði sínu í sókninni, töpuðu
boltanum, kiúðruðu vítaköstum eða
skutu í marksúlurnar, framhjá eða
í Björgvin Val. Taugatitringur gerði
vart við sig og sóknirnar urðu styttri,
en Fram var 12-8 yfir í hálfleik. Fer-
enc Budek, þjálfari Fram, notaði
breiddina í liði sínu vel og í seinni
hálfleik stóð Magnús Erlendsson
vaktina í markinu. Hann stóð sig vel
og varði tólf skot. Gamla brýnið Zolt-
án Belániy var Akureyringum erfið-
ur og skoraði fimm mörk. Minnstur
varð munurinn í seinni hálfleik, þrjú
mörk, en klaufagangur Akureyringa
í sókninni sá til þess að munurinn
varð aldrei minni.
Sóknarleikur í molum
Sævar Árnason, þjálfari Akureyr-
ar, var skiljanlega ósáttur við sókn-
arleik síns liðs þegar DV ræddi við
hann í leikslok. „í fyrri hálfleik héld-
um við okkur inni í leiknum á varn-
arleik og mjög góðri markvörslu en
sóknarleikurinn var slæmur. Við
klúðruðum mörgum færum og mis-
stum boltann út úr höndunum, sem
hefur ekki verið vandamál hjá okkur.
í seinni hálfleik fór þetta versnandi á
sama tíma og við reyndum að finna
úrræði til að minnka muninn."
Hann segir Akureyringa alltaf
hafa verið með í leiknum þó Fram-
arar hafi verið með þægilega forystu.
„Við áttum séns fram í miðjan síðari
hálfleik og náðum nokkrum sinnum
að minnka muninn í þrjú mörk en
töpuðum þá boltanum út úr hönd-
unum á okkur aftur og Framarar
juku forystuna."
Vömin var lykillinn
Ferenc Buday, þjálfari Fram,
>«/
var ánægður með varnarleik liðs-
ins. „Varnarleikurinn var lykillinn
að sigri í leiknum. Við vitum að við
gerum stundum mistök en það er
erfitt að komast í gegnum leik án
þess að gera það. Við erum með tvo
mjög góða markverði og það er erfitt
að velja hvor þeirra eigi að byrja og
hvor eigi að koma inn á. Markverð-
irnir okkar hafa samt verið að bæta
sig í seinustu leikjum. Ég veit að ís-
landsmótið er langt og því er mikil-
vægt að nota hópinn. Jóhann Gunn-
ar er okkar helsti markaskorari og
ég var sáttur við frammistöðu hans í
dag. Halldór Jóhann er líka að koma
til, hann er ánægður með að vera
kominn heim. Við bíðum síðan eftir
að fá fleiri leikmenn aftur úr meiðsl-
um."
Buday brosti þegar hann var
spurður út í frammistöðu „gamla
mannsins" Belányis. „Aldur er mjög
afstæður. Zoltan er liðinu mikilvæg-
ur og ég er mjög ánægður með leik
hans í kvöld."
GG
ÚRSLIT HELGARINNAR
N1-DEILD KARLA
IBV - Haukar 23-37
Fram - Akureyri 30-22
Mörk Fram: Jóhann Gunnar 7, Zoltán
Belányi 5, Halldór Jóhann 4, Jón Þorbjörgn
Jóhannsson 3, HJörtur Hinriksson 2,
Guðjón Drengsson 2, Jón Björgvin Péturs-
son 2, Rúnar Kárason 2, Filip Kliszczyk
1, Daniel Berg Grétarsson 1, Einar Ingi
Hrafnsson 1, Haraldur Þorvarðarson 1.
Varin skot: Magnús Erlendsson 12,
Björgvin Gústavsson 11.
Mörk Akureyrar: Magnús Stefánsson 6,
Goran Gusic 6, Einar Logi Friðjónsson 3,
Jónatan Magnússon 2, Þorvaldur Þorvalds-
son 2, Heiðar Aðalsteinsson 1, Andri Snær
Stefánsson I.Ásbjörn Friðriksson 1.
Varin skot: Hörður Flóki Ólafsson 17.
Staðan
Lið L U J T M St
1. Haukar 9 6 2 1 261:221 14
2. HK 9 6 1 2 247:217 13
3. Fram 9 6 1 2 267:234 13
4. Stjarnan 8 5 1 2 230:219 11
5. Valur 8 3 2 3 197:188 8
6. Aftureld. 9 2 2 5 227:240 6
7. Akureyri 9 2 1 6 236:255 5
8. ÍBV 9 0 0 9 232:323 0
N1 -DEILD KVENNA
HK - Grótta 21 -36
Akureyri -Valur 12 -25
Stjarnan - -FH 25 -26
Haukar- Fram 24-24
Staðan Lið L u J T M st
I.Stjarnan 9 7 1 1 226:161 15
2. Fram 9 6 3 0 238:179 15
3.Valur 9 7 0 2 234:166 14
4. Grótta 9 6 1 2 233:191 13
5. Haukar 9 4 1 4 239:205 9
6. Fylkir 8 3 0 5 169:190 6
7.HK 9 2 0 7 206:251 4
8. FH 9 2 0 7 182:260 4
9. Akureyri 9 0 0 9 150:274 0
EVRÓPUKEPPNI FÉLAGSL.
HK-FCK 24-26
Mörk HK (víti): Ólafur Ragnarsson 5, Sergey
Petraytis 4, Gunnar Jónsson 4, Ragnar
Hjaltested 4, Augustas Strazdas 4, Tomas
Eitutis 2, Árni Þórarinsson 1.
Varin skot (víti): Egidijus Petkevicius 16.
Mörk FCK (v(ti): Anders Christensen 8 (2),
Tommy Atterhall 5, Per Tomas Linders 5,
Sebastian Koch-Hansen 3, Kristian Sven-
sson 2, Martin Boquist 1, Klavs Jorgensen
I.SImon Hammerl.
Varin skot (v(ti): Steinar Ege 18 (1).
EVRÓPUK. MEISTARALIÐA
Gummersbach - Valur 34-22
Mörk Gummersbach: Vedran Zrnic
9,Róbert Gunnarsson 6, Adrian Wagner 5,
Kevin Jahn 4 Kenneth Klev 4 Alexandros
Alvanos 3, Denis Zakharov 2, Geoffroy
Kantz 1
Varin skot: Nandor Fazekas 12.
Mörk Vals: Arnór Þór Gunnarsson 7, Hjalti
Pálmason 4, Elvar Friðriksson 3, Ernir Hrafn
Arnarsson 3, Baldvin Þorsteinsson 2, Sigfús
Páll Sigfússon 1, Ægir Hrafn Jónsson 1,
IngvarÁrnason 1.
Varin skot: Ólafur Haukur Glslason 9,
Pálmar Pétursson 3.
I
Jólln koma snemma í ár.... Ertu búinn aó Sá þér jólaskóna....
I
I
I
I
Ný sending af NIKE innanhúss- og gerfigrasskóm!
m
www.joiutherji.is
Jói útherji
á alla
Ármúla 36 - s. 588 1560 KNATTSPYRNUVERSLUN