Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.2007, Page 24

Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.2007, Page 24
24 MÁNUDAGUR 19. NÓVEMBER2007 Fókus DV Hannes og skjárinn Sá einn merkilegasta sjónvarps- þátt sem ég hef séð langalengi. Vissi ég ekki betur og þekkti ekki þátttakendurna hefði ég getað ímyndað mér að Villa vtdeó í Ól- afsvík væri komið af stað á nýjan leik. Kannski er það enn í gangi. Gæðin og sviðsmyndin voru af sama standard og Villa vídeó var á sínum tíma, fyrir aldarfjórð- ungi. En hvað er Hrafnaþing? Það er Ingvi Hrafn Jónsson, orðljótur, dæmandi menn af óbilgimi, láta einn og annan heyra það. Það er Hrafnaþing. En á nýju sjónvarps- stöðinni hans Ingva Hrafns sá ég allt annað Hrafnaþing. Þar sat doktor Hannes Hólmsteinn Giss- reyndi að horfa á Hrafnaþing á INN. ★ ★★★★ urarson einn við borð og talaði við tölvuskjá þar sem sjálfur Ingvi Hrafn var. Þann tíma sem ég entist til að horfa fór doktorinn enn og aftur með mat sitt á jafnrétti. Ótrú- lega gömul lumma og sennilega ekkert fánýtara að gera en horfa á doktorinn fara enn eina ferðina með skoðanir sínar, aftur og aftur. \^Égslökkti._________________________ GEYMTENEKKI GLEYMT Tnxini útvarpinu Öll trixin í bókinni, sem er einhvers konar bransafræðirit og tónlist- arleg endurminningasaga Einars Bárðarsonar, var ekki ein af þeim nýju bókum sem mig langaði að mest lesa áður en ég kveikti á út- varpinu rúmlega fjögur á laugar- daginn. Þar datt ég inn á þátt- inn Geymt en ekki gleymt á Rás 2 þar sem Einar og Amar Eggert Thoroddsen, sem skrifar bókina í samvinnu við athafnamanninn, vom í viðtali hjá Frey Eyjólfssyni. Fyrir utan að kunna öll trixin í bókinni er Einar vel yfir meðallagi fýndinn og segir stórskemmtilega frá. Af mörgum góðum sögum stendur sagan af Van Morrison og símtalinu furðulega líklega upp úr. Mjög eftirminnileg er líka sagan af því hvemig deilur um texta Júró- hlustaði á Oeymt en ekki gleymt visjónlagsins Birtu urðu að pólit- ísku hitamáli og formaður Sam- fýUdngarinnar sá sig knúinn til að hringja í Einar um miðja nótt. Þetta viðtal var afbragðsskemmtun, á köflum drepfyndið og um leið fróðlegt. Freyr á skilið stóran plús fyrir frammistöðuna í spyrlahlut- verkinu. Mamma, hér er alla vega vkomin ein hugmynd að jólagjöf.^^ BRAGÐLÍTIL DRAUGASAGA Hvað er hægt að biðja um það betra? Bragð- mikinn þýskan kokteil af Strindberg og Pinter með „dashi" af Ibsen og Evripídesi saman við! Það er ekki víst að öllum bragðist drykkurinn, en ég snar- féll fýrir honum. En ég ætlast líka til að leikhúsið kunni að blanda hann þannig að hann virki. Á það skortir mjög í sýningu Þjóðleikhússins á Smíða- verkstæðinu. Mér dettur ekki í hug að endursegja söguþráð þessa verks. Um þemað hafa verið slaifuð leikrit frá því á dögum Aisyklosar og þó er það alltaf nýtt og ferskt - ef höfundarnir nálgast það á forsendum sinnar tíðar. Það er síður en svo ljóður á leikriti Rol- ands Schimmelpfennig - af hverju í ósköpunum fær maðurinn sér ekki eitthvert þjálla höfundar- nafn? - þó manni detti í hug verk eins og Kröfuhaf- ar Strindbergs eða Liðin tíð Pinters, þegar maður sér það og heyrir í leikhúsinu. Draugar fortíðarinn- ar hafa alltaf reynt að elta manneskjuna uppi og þeir sem sitja fastir í því liðna verða eins og draug- ar, óffeskjur. Þjóðverjar urðu á sínum tíma fyrstir til að skilja Strindberg, þennan risa í leikhúsi nútím- ans, án þess hefði þýski leikhúsexpressjónisminn verið óhugsandi og allt sem hann dró með sér. Svo kom pólitíska leikhúsið og Brecht, en hver hefur áhuga á því nú? Múrinn er fallinn, en eftir standa þeir múrar sem við reisum sjálf innra með okkur. Á þá múra hafa kastljós skáldanna fallið frá því Aisky- los skrifaði um refsinornirnar. Og andi Strindbergs lifir, einnig í þeim skáldum sem hafa lært af hon- um. Strindberg þorði að setja hold og blóð á dem- óna sálarinnar og klæða þá í nútímaföt, þannig að hinn „upplýsti" nútímamaður neyddist til að kann- ast við þá, viðurkenna að hann yrði að bregðast við þeim. Auðvitað var Shakespeare búinn að því áður, en það er eins og þurfi alltaf að segja hlutina upp á nýtt, endurtaka þá fyrir nýjar kynslóðir í heimi sem er og verður hinn sami undir niðri. Þjóðleikhúsið á hrós skilið fyrir að taka þetta verk til flutnings, en það á minna hrós skilið fyrir úrvinnsluna. Sviðsetningu Hafliða Arngrímsson- LEIKDÓMUR eftir Roland Schimmelpfennig m Leikstjóri og þýðandi: Mafliði - Arngrímsson 1 m Leikmynd: Stígur Steinþórsson Hvers vegna er íslenskum leikstjórum svona gersamlega Jón Viðar Jónsson ósýnt um að finna leiðina að þessum draumleikjum sam- tímans? leiklistargagnrýnandi ar er um margt ábótavant og um leiksljórn hans og jafnvel leikendaval hans má í sumum atriðum efast. Sérstæð bygging leiksins gerir miklar kröfur til leik- enda og hún krefst líka styrkrar og hugmyndaríkrar leikstjórnar. Skiptingar á milli atriða þurfa að vera miklu hraðari og markvissari en hér er. Þær taka of langan tíma og fyrir bragðið verður sýningin eins og hálf hölt, nær ekki því flugi sem samþjappaður tímaramminn kallar á. Það er leikið á marga strengi í verkinu: það er kómískt, grimmt, kaldhæðið, ljóðrænt, raunsæis- legt, absúrd, allt í senn. Allir verða þessir strengir að hljóma, öll litbrigði að njóta sín. I háfleygu viðtali við höfundinn í leikskránni talar hann um nauð- syn hugmynda í leikhúsi, það er rétt, en ætli leik- húsið sé þó ekki fyrst og síðast músík, samhljómur radda. Það fannst Strindberg a.m.k., svo ég vísi nú enn í hann. Sumir leikenda hitta á þann óræða tón, sem þarna er eins og grunntónn, öðrum betur þó Edda Björg Eyjólfsdóttir sem var fullkomlega trú- verðug afturganga rómantískrar æskuástar. Vign- ir Rafn Valþórsson var líka mjög sannfærandi sem sonurinn á heimilinu, skáldhneigður auðnuleys- isunglingur, og Edda Arnljótsdóttir var góð sem eiginkonan, þó að framsögn Eddu sé sem löngum fyrr heldur blæbrigðasnauð og eintóna. En mynd Baldurs Trausta Hreinssonar af eiginmanninum og heimilisföðurnum skorti tvíræðni og dýpt. Að ein- hveiju leyti kann leikstjórn að vera um að kenna: við verðum að skynja sektarkennd og ótta manns- ins við hið liðna, sem er að draga hann uppi, mildu betur og miklu fyrr, og ég held að jafn góður leik- ari og Baldur Traustí er hefði vel átt að geta skilað því. I lokaatriðinu, þegar maðurinn snýr snögglega við blaðinu fr á því sem áður var, verða þau umskipti ótrúverðug, af því að leikarinn hafði ekkert undir- búið þau áður - þó að hann hefði allan leikinn til þess. Andlegt hrun persónunnar í lokaatriðinu varð einungis paþetískt (kann enga almennilega þýð- ingu á því orði). Sennilega er Þórunn Erna Clausen ekki rétt týpa í hlutverk ungu stúlkunnar; maður trúir því ekíd rétt vel að þessi gerðarlegi ungi kven- maður sé undir járnhæl leiðinlegs föðurs. Sá grát- klökki tónn, sem Þórunn lék í, varð á einhvern hátt hjáróma við annað, einnig þar hefði leikstjórinn hugsanlega mátt grípa inn í. Eitt það misheppnaðasta í sýningunni er þó leikmynd Stígs Steinþórssonar. Hún er sannarlega ekkert augnayndi, flöt, köld og fráhrindandi. Stíg- ur gerði hér á árum áður fi'nar leikmyndir, en nú hefur honum brugðist bogalistin. Öll sjónræn skír- skotun, öll nýting og niðurskipan leikrýmisins ættí með hjálp ljósabeitingar og hugsanlega leikhljóða að lyfta undir dulúð og ógn textans; minna oklcur á að við erum hér stödd í draumi, martröð. En það er bara eins og mönnum hafi ekki dottið neitt í hug. í fyrrahaust klúðraði Þjóðleikhúsið ágætu verki eftir Jon Fosse, eitt áhugaverðasta leikskáld sam- tímans, á þessu sama sviði. Leikritun Fosses á einn- ig rætur í Strindberg, þó að sjálfsagt sé hann með Beckett og fleiri í farteskinu. Hvers vegna er íslensk- um leikstjórum svona gersamlega ósýnt um að finna leiðina að þessum draumleikjum samtímans? Erlendis er nóg til af mönnum sem geta það. Eru réttu leikstjórarnir kannski ekki kallaðir til? Spyr sá sem ekki veit. Gunnar Björn Guðmundsson, leikstjóri Astrópíu, er meö mörg járn í eldinum: GRÍNEINLEIKUR, TRÚÐALEIKRIT OGGAURAGANGUR „Þetta er alveg drepfyndið," segir Gunnar Björn Guðmundsson leikstjóri sem vinnur nú að leik- riti, gríneinleik nánar tiltekið, sem Anna Svava Knúts leikur í. Gunnar og Anna eru bæði höfundar textans en leikstjórinn vill ekki segja mik- ið meira um verkið að svo stöddu. „Það er eiginlega á hóld eins og er. Það er bara margt annað í gangi. Við unnum þetta í spuna, bjugg- um verkið til og æfðum um leið, þannig að við erum búin að semja verkið alveg og æfa en tókum smá pásu. Þetta verður því ekkert fyrr en eftir áramót." Ekki liggur fyrir hvar einleikurinn verður sýndur . þegar þar að kemur. Gunnar, sem er líklega þekkt- astur fyrir að hafa leikstýrt kvik- myndinni Astrópíu sem sýnd hefur verið við miklar vinsældir undan- farna mánuði, er ekki við eina fjöl- ina felldur í leikhúsgeiranum um þessar mundir því hann er einnig með í vinnslu trúðaleikrit. „Þar er ég sjálfur að leika. Ég er nefnilega í trúðagengi," segir Gunnar og hlær dátt. Og trúðagengið hefur reynd- ar áður látíð að sér lcveða í leiklist- inni. „Við settum upp ferðasýning- una Dauði og jarðarber sem við sýndum um það bil þrjátíu sinnum um allt land," útskýrir Gunnar sem einnig skrifaði og leikstýrði Sölku miðli sem sýnt var í Hafnarfjarð- arleikhúsinu fyrir nokkrum árum. Aðspurður hvar og hvenær nýja „trúðaverkið" verði sýnt segir hann það óákveðið eins og sakir standa. Eins og greint hefur verið frá er Gunnar ennfremur að vinna að kvikmyndun Gauragangs, hinnar sívinsælu bókar Ólafs Hauks Sím- onarsonar, en leikrit byggt á bók- inni var sýnt við feikilegar vin- sældir í Þjóðleikhúsinu um árið. Handritið er að verða tilbúið og standa vonir til þess að tökur geti hafist á næsta ári. kristjanh@dv.is Úr Astrópíu Eftir velgengnina á hvíta tjaldinu horfir Gunnar nú til leikhússins. Samfara því vinnur hann þó einnig að handritaskrifum fyrir kvikmyndun Gauragangs.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.