Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.2007, Page 6

Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.2007, Page 6
6 MÁNUDAGUR 3. DESEMBER 2007 Fréttir DV A FRÉTTIR fc DOTTURM NN Launanefnd lögð niður „Ég tel að dagar Launa- nefndarinnar séu taldir," sagði Ragnar Örn Pétursson, formað- ur Starfsmannafélags Suður- nesja, í viðtali við Víkurfréttir fyrir helgi. Það telur hann í ljósi þess að láglaunastefna Launa- nefndar sveitarfélaga hafi ekki virkað undanfarin misseri þar sem stór hluti félagsmanna Starfsmannafélags Suðurnesja hefði ekki fengið launahækkan- ir í samanburði við hópa á höf- uðborgarsvæðinu. „Nefndin ræður ekki við verkefnin. Þannig er eins gott að sveitarfélögin semji bara beint við stéttarfélögin óháð launanefndinni. Þeir eru of fáliðaðir til að vinna að þessu mikla verkefni og eru ekki vandanum vaxnir," segir Ragnar. Vændi skoðað í Vesturbænum Kynferðisbrotadeild lög- reglunnar á höfuðborgarsvæð- inu í samstarfi við Barnavernd Reykjavíkur rannsakar enn ásakanir á hendur erlendri vændiskonu í Vesturbænum í Reykjavík. Fyrrverandi sambýl- ismaður sakar hana um vænd- isstarfsemi á heimilinu og van- rækslu á tveimur sonum sínum, 10 og 12 ára. Um gang rann- sóknar fást litlar upplýsingar. Halldóra Gunnarsdóttir, fram- kvæmdastjóri Barnaverndar Reykjavíkur, getur ekki rætt ein- staka mál sem til skoðunar eru. Almennt segir hún tilefni til að skoða allar svona ásakanir. Þriggja ára dóttur Veru Pálsdóttur ljósmyndara var ekki skilað á tilsettum tíma í París og faðirinn fór í felur með barnið. Móðirin berst örvæntingarfullri baráttu til að fá barn- ið sitt aftur en faðirinn neitar. Vera hefur fengið að tala við stúlkuna í síma en aðeins á frönsku. Fjórir lögreglumenn reyndu að ná barninu en máttu ekki beita hörku og urðu frá að hverfa. Sendiráð íslands í málið. „Mér finnst ég vera fullkomlega bjargarlaus. Faðir Sóleyjar átti að skila henni á miðvikudag í seinustu viku en gerði það ekki. Ég upplifði það að dóttur minni var rænt. Hann hefur sagt lögreglunni að það komi ekki til greina að ég fái að fara með hana aftur til lslands," segir Vera Pálsdóttir ljósmyndari sem berst fyr- ir því að fá þriggja ára dóttur sína aft- ur eftir að faðir barnsins og íyrrver- andi sambýlismaður Veru neitaði að skila henni aftur eftir að samkomu- lag hafði verið gert milli lögmanna Besta jólagjöfin ...í takt við tíðarandann! Matjurtir Um*w ® mmm t •V : „Abgengileg, falleg, fróbleg og síöast en ekki síst skemmtlleg bók - alvöru hvatning fyrir hörbustu Innipúka til ab laumast út á svallr eba ( garbinn slnn og prófa ab rækta elglb grænmetl!" Bryndts Loftsdótttr VOnistlórl Eymmdsson Ik'ikubiíti Miíls og mmnlngur SUMARHÚSIÐ RHGardurinn Síftumúla 1S, 108 Reykjavík Siml 586 8003, www.rlt.is þeirra um að hann hefði dóttur þeirra í tæpa viku. „Hann átti að koma með hana til mín á miðvikudagsmorgun eftir að Sóley hafði verið hjá hon- um í tæpa viku. Þegar ég reyndi að ná í hann í síma á þriðjudagskvöldið svaraði hann ekki. Þá læddist að mér illur grunur. Það kom svo í ljós morg- uninn eftir að hann ætiaði sér ekld að skila Sóleyju." Faðir Sóleyjar fór í fyrstu með hana í felur en var síðan með barn- ið heima hjá sér. Vera hefur notið lið- sinnis íslenska sendiráðsins í Par- ís við að reyna að ná barninu aftur. Einnig hefur lögreglan farið heim til mannsins hennar fyrrverandi en ekkert getað aðhafst. „Mér finnst ég gjörsamlega vera í lausu lofti. Dóttir mín, sem varð þriggja ára í seinustu viku, hefur verið með mér næstum alltaf frá því hún fæddist, en er það ekki núna. Ég er dofin og sef illa. Undanfarnar nætur hef ég hrokk- ið upp hvað eftir annað frá slæmum draumum til þess eins að átta mig á þeirri martröð að Sóley er ekki hjá mér. Það er blákaldur veruleildnn." Andlegt ofbeldi Vera og sambýlismaðurinn fýrr- verandi bjuggu saman í sjö ár í París þar sem hún starfaði sem tískuljós- myndari við góðan orðstír. „Sam- band okkar einkenndist alla tíð af andlegri kúgun af hans hálfu. Ég hef „Héðan mun ég ekki fara án Sóleyjar þótt ég þurfi að eyða jólunum í París." Mæðgurnar þrjár Vera hefur notið stuðnlngs móður sinnar, Borghildar Maack, og systur, Nöndu Maríu Maack, sem eru með henni (Paris að reyna að ná litlu stúlkunni. verið talin frekar sterkur einstakling- ur en í sambandinu tókst honum að brjóta mig niður og ég gekk inn í það hlutverk að vera kúguð og nær ósjálf- bjarga. Eftir að Sóley fæddist árið 2004 gerði ég mér grein fyrir ástand- inu. Eg var kúguð og óhamingjusöm og gat ekki hugsað mér að dóttir mín þyrfti að alast upp með þannig móð- ur. Ég hafði getað ómeðvitað boð- ið sjálfri mér upp á þessar skelfilegu aðstæður en ég gat ekki boðið dótt- ur minni upp á það sama. Ég tók því þá ákvörðun að slíta sambandinu." Vera bjó áfram í París fyrst eftir sam- bandsslitin en hún segir að kúgun- in hafi haldið áfram og hann notað bamið til að kúga hana andlega. Hún komst að þeirri niðurstöðu að ekki væri annað til ráða en að fara heim til íslands. Þangað komu mæðgurn- ar í desember fyrir ári. „Ég lét hann vita að við værum á förum heim í jólafrí. Hann var ósáttur við það og heimtaði að ég samþykkti sameigin- lega forsjá eða að öðrum kosti myndi hann krefjast farbanns á Sóleyju. Á það gat ég ekki fallist og fórum við án hans vitneskju til íslands. Þann 8. janúar gekk dómur fyrir undir- rétti í París um að hann hefði tíma- bundið forræði yfir Sóleyju. Ég vissi ekki af því máli fyrr en löngu síðar en hann hafði gefið upp rangt heimilis- fang hjá mér og ég var aldrei boðuð. Þá höfðaði hann mál til að fá Sóleyju framselda til Frakklands. Hæstirétt- ur íslands hafnaði þeirri kröfu og

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.