Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.2007, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.2007, Blaðsíða 12
12 MÁNUDAGUR 3. DESEMBER 2007 Sport DV Arsenal vann Aston Villa 2-1 í frábærum fótboltaleik. Þrátt fyrir að Cesc Fabregas væri ekki með tóku aðrir leikmenn Arsenal af skarið og kláruðu dæmið. En öruggt var það ekki. Sá besti! Sá flottasti! i! iES Cristiano Ronaldo Ný bók um undrabarnið Cristiano Ronaldo Þessa bók verða allir knattspyrnu- fíklar að eiga! BÓKAÚTGÁFAN HÓLAR ENSKIBOLTINN ER FARINN AÐ RÚLLA! a ♦ h > MYNDBROT UR LEIKJUM > FRETTIR > STAÐAN > LEIKMENN DG SFRFRÆDINOAR BL0G0A wwvyjfisir.is/enski visir.is BENEDIKT BÓA5 HINRIKSSON blaöamaöur skrifar: benni@d\) Arsenal tapaði sínum íyrsta leik í langan tíma í Meistaradeildinni gegn Sevilla og með Cesc Fabregas meidd- an voru blikur á lofti þegar liðið mætti Aston Villa á Villá Park í Birmingham. En liðið er ótrúlegt, spilar magnaðan fótbolta þar sem Alexander Hleb býð- ur í dans og félagar hans dansa með. Vegna fjarveru Fabregas fékk Lass- ana Diarra tækifæri og fór Mathieu Flamini í hlutverksóknarmiðjumanns. Ekki er langt síðan Fabregas spaug- aði með það að hann ætíaði að gefa Flamini eitthvað af sínum mörkum en þeir Hleb og Tomas Rosicky eiga í veðmáli um hver skorar flest mörkin á tímabilinu. Þvert gegn gangi leiksins skoraði Aston Villa fyrsta markið eftir 14 mín- útur. Eftir að hafa horft á Arsenal senda boltann sín á milli náðu Villa-menn boltanum, Bakary Sagna var kominn langt upp völlinn og úr stöðu, John Carew tók á mikinn sprett, sendi bolt- ann fyrir þar sem William Gallas skall- aði boltann fyrir fætur Craigs Gardner sem skoraði. Markið kom sem köld vatnsgusa framan í Arsenal-menn sem lögðu þó ekki niður rófuna heldur héldu áfram og stjómuðu leiknum það sem eftír lifði fyrri hálfleiks. Arsenal jafnaði leildnn þegar téður Flamini skoraði og lagði þar með sitt á vogarskálarnar í veðmálinu. Aston Villa sogaðist að boltanum og Bakary Sagna náði fyrirgjöfmni, Rosicky náði að leggja boltann út þar sem Flamini kom á ferðinni og þrumaði í netið. Flamini hafði aðeins skorað r itt mark 44% ME8 B0LTANN 56% 11 SK0TAÐMARKI 15 3 skotAmark 5 0 RANGSTÖÐUR 2 4 H0RNSPYRNUR 7 18 AUKASPYRNUR 10 3 GULSPJÖLD 2 ) RAUÐ SPJÖLD ( ÁHORFENDUR: 42.018 Carson, Mellberg, Knight, Laursen, Bouma (Berger 76.), Gardner, Petrov (Maloney 32.), Barry, Young, Agbonlahor, Carew. Almunia, Sagna, Toure, Gallas, Qichy, Eboue, Diarra, Ramini, Roskky (Silva 74.), Hleb (Walcott 60.), Adebayor (Bendtner 90.). MAÐUR LEIKSINS Alexander Hleb, Arsenal það sem af er deildinni en hefði get- að skorað þrennu, bara í fyrri hálfleik. Síðara mark Arsenal var frábært. Aft- ur létu Villa-menn soga sig að boltan- um hægra megin, Hleb kom boltan- um til Sagna sem átti ffábæra fyrirgjöf á Emmanuel Adebayor sem skallaði í netíð. 2-1 í hálfleik og ekkert benti til að Villa-menn væru að fara að gera neitt í leiknum. Martin O'Neill, stjóri Villa, breyttí þá leikskipulaginu og hætti að sækja með skyndisóknum. Setti fleiri menn framar á völlinn og Villa-merin fóru að stjóma leiknum. Hófu stórskota- hríð að marki Arsenal sem varðist vel. Carew skallaði í slá og minnstu mun- aði að Martín Laursen jafnaði eftir kraðak í teignum. Arsenal-menn héldu út og fögn- uðu þremur dýrmæmm stígum. Þó hringdu noklórar viðvömnarbjöll- ur, því líkt og gegn Sevilla lenti liðið í vandræðum þegar andstæðingurinn liggur ekki til baka. Villa-menn hefðu vel getað fengið eitt stig út úr þessum leik en eins og svo oft áður eru það mörkin sem telja. Ef og hefði „Mér fannst við eiga eitthvað skilið úr þessum leik," sagði Martin O'Neill eftir letídnn. „Hefðum við náð að jafna þegar Carew skallaði í slá snemma í síðari hálfleik hefði leikurinn get- að farið öðmvísi og við trúlega unnið þennan leik. En það er auðvitað alltaf létt að segja svona eftir leiki. Staðreyndin er hins vegar sú að við fengum ekkert úr leiknum en síðari hálfleikur hjá okkur var frábær, algjör- lega ffábær. Að snúa leiknum svona við á móti Arsenal er magnað. Þar með er ég ekki að segja að þeir hafi ekld átt í erfiðleikum með okkur í þeim fýrri því það áttu þeir svo sannarlega. Leikmenn Arsenal senda boltann svo vel sín á milli og halda honum vel innan liðsins. En það var einstefna í síðari hálfleik og þið sáuð fagnaðarlæti Wengers eftir leikinn, þá sá maður að eitthvað vorum við að gera rétt." Frábærir „Við vomm frábærir og þrautseigir," sagði Arsene Wenger. „í fyrri hálfleik spiluðum við góðan og á köflum frá- bæran fótbolta. Enginn var lengi með boltann og við færðum hann vel á milli kanta þannig Villa komst sjaldan í tæri viðhann. í síðari hálfleik duttum við of langt til baka þannig að þeir komust aftur inn í leikinn. Mér fannst í hálfleik að við gætum ekld tapað þessum leik. Þetta eru stór úrslit og góð. Vegna góðs gengis Villa að undanfömu höfðu þeir mikið sjálfstraust og þess vegna þurftum við eitthvað sérstakt. Kannski í gamla daga hefðum við tapað þess- um leik en við erum orðnir betri og erum reynslunni ríkari. Við förum ekki svo glatt á taugum." Meiddur Alexander Hleb vlrðist alltaf vera straujaður Illa í leikjum Arsenal. Hann meiddist eftirtæklingu Johns Carew.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.