Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.2007, Qupperneq 21

Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.2007, Qupperneq 21
DV Sport MÁNUDAGUR 3. DESEMBER 2007 21 Pakkinn þéttist í ensku Championship-deildinni eftir leiki helgarinnar. Watford heldur efsta sætinu þrátt fyrir tap gegn Bristol 2-1. Jóhannes Karl Guðjónsson lék síðasta hálf- tímann með Burnley gegn Charlton. BENEDIKT BÓAS HINRIKSSON blaöamaður skrifar: benrh&dv.is Watford tapaði óvænt fyrir Bristol City 1-2 á heimvelli. Þetta var þriðja tap Watford á einni viku. Bristol- menn voru sterkari í upphafi og að- eins Mart Poom, markvörður Wat- ford, kom í veg fyrir að liðið lenti ekki snema undir. Það kom því ekki á óvart þegar Enoch Showunmi kom Bristol yfir í fyrri hálfleik en John-Joe O'Toole jafnaði skömmu fyrir leikslok. Héldu margir að eitt stig væri komið í hús fyrir heimamenn en Darren Byfield kom öllum á óvart og skoraði sigur- markið í uppbótartíma. Jóhannes Karl Guðjónsson spil- aði síðasta hálftímann hjá Burnley þegar liðið vann Charlton 3-1. Owen Coyle hefur haft tröllatrú á Jóhannesi en frá því hánn tók við hefur hlutverk Jóhannesar aukist mikið. Burnley var betra liðið allan tímann og skor- aði tvö mörk á fyrstu 15 mínútunum. Andy Gray og Chris McCann gerðu það. Andy Reid minnkaði mun- inn skömmu fyrir hálfleik en Danny Mills handlék knöttinn innan teigs og Gray skoraði annað mark sitt úr vítaspyrnu, sendi Nicky Weaver í vit- laust horn. Tvö lið sem berjast við falldraug- inn, Blackpool og QPR, mættust á Bloomfield Road, heimavelli Black- pool. Það sást á leik liðanna að þau vissu hvað biði þeirra, hvort liðið sem tapaði. Engir sénsar voru teknir og var þetta hundleiðinlegur leikur á að horfa. En í uppbótartíma skoraði Ben Burgess sigurmarkið og heima- menn hreinlega gengu af göflunum í fagnaðarlátunum. WBA misstí af tækifærinu til að komast á toppinn með því að gera 1- 1 jafntefli við Crystal Palace á Shel- hurst Park. Mark Hudson skoraði fyrsta mark leiksins fyrir WBA eftir aðeins átta mínútna leik. Skömmu fyrir hálfleik jafnaði Clinton Morris- son metin þegar hann fylgdi á eftir skoti Bens Watson. Bæði lið fengu góð færi í síðari hálfleik en inn vildi boltinn ekki og þurftu þau að sætta sig við eitt stig. Dramatík hjá Robson Liðsmenn Bryans Robson í Sheffi- eld United skoruðu sigurmark gegn Coventry á lokaandartökum leiksins á Rioch Arsena. Gamla brýnið Chris Armstrong gerði það með góðu skoti. Coventry lék vel í leiknum og átti eitt stig verðskuldað úr leiknum en eins og í mörgum íþróttum eru það mörk- in sem telja. Dramantíkin ríkti einnig á KC- vellinum þegar Cardiff marði jafn- tefli við Hull, 2-2. Stephen McPhee kom Hull yfir eftir aðeins þriggja mínútna leik. Skömmu síðar jafnaði Steven Thompson metin með skoti Hvað er í gangi? Marlon King og félagar hans i Watford hafa tapað þremur leikjum í röð. Hér er King i leik Watford og Burnley. sem Boaz Myhill réð ekki við. Kasper Schmeichel varði svo víti frá Dean Windass en réð ekki við skot Ri- chards Garcia skömmu síðar og Hull komið yfir. En skömmu fyrir leikslok jafnaði Roger Johnson metin og þar við sat. Ipswich og Barnsley gerðu hrút- leiðinlegt 0-0 jafntefli þar sem mark- vörður Barnsley, Heinz Muller, var maður leiksins. Southampton snéri taflinu við gegn Leicester og vann 2-1. Stern John kom gestunum yfir en Andy King jafnaði skömmu fyrir hálfleik fyrir Leicester. Leikurinn réðist á umdeildri vítaspyrnu. Gareth McAu- ley fékk boltann í höndina og dóm- arinn flautaði víti. Andrew Surman tók vítið og skoraði af miklu öryggi og tryggði Southampton stigin þrjú. Plymouth sannaði að það er líf eftir Ian Holloway því liðið burstaði Scunthorpe 3-0 og hefði geta unn- ið enn stærra. 0-0 var staðan í hálf- leik en heimamenn tóku öll völd á vellinum og skoruðu þrisvar. Sylvan Ebanks-Blake skoraði fyrsta mark leiksins, Krisztian Timar bætti öðru við og Nadjim Abdou skoraði það þriðja undir lokin. Gamla brýnið Teddy Shering- ham skoraði eftir aðeins 52 sekúnd- ur þegar Colchester vann Miðviku- dagsmenn í Sheffield, 2-1. Hinn 41 árs gamli Sheringham skoraði með góðu skoti frá vítateigshorn- inu. George Elokobi kom Colchest- er í 2-0 áður en Akpo Sodje minnk- aði muninn. Þar með lauk sjö leikja taphrinu Colchester. Stoke vann Norwich 2-1 þrátt fyrir að lenda 1-0 undir. Dar- ren Huckerby kom gestunum yfir snemma leiks en þar með lögðu Norwich-menn árar í bát og hættu að spiia. Stoke tók öll völd á vell- inum og jafnaði með marki Leons Cort. Richard Cresswell skoraði svo sigurmarkið fyrir gamla fslendinga- liðið og Norwich er sem fyrr neðst í deildinni. Úlfarnir unnu Preston 1-0 og halda áfram að þokast upp töfluna. Karl Henry skoraði sigurmarkið þegar hálftími var eftir. Harry Redknapp var handtekinn í síðustu viku vegna spillingar á Englandi: EKKIÁNÆGÐUR MEÐ LÖGREGLUNA Harry Redknapp knattspyrnu- stjóri Portsmouth er ævareiður út í lögregluna á Englandi fyrir að hafa handtekið hann en Redknapp var handtekinn vegna rannsóknar á spillingu í enskri knattspymu. Red- knapp á þó ekki hlut að máli þar sem hann var einungis að hjálpa lögregl- unni. Hann er hins vegar allt annað en sáttur við vinnubrögð lögreglunn- ar sem kom heim til hans að morgni og handtók hann. „Þetta hefur sært mig mikið, líf mitt hefur breyst. Ef ég hefði gert eitthvað rangt þá ætti að sparka mér út úr fótbolta og mála mig sem svartan sauð. Ég hefði ekki bara eyðilagt mitt líf heldur lík líf fjöl- skyldu minnar og af hverju ætti ég að gera það? Það eru ekki til svo miklir peningar í heiminum að ég myndi gera það," sagði Redknapp Ekki sáttur Redknapp er ekki ánægður með lögregluna. sem segist hafa verið að hjálpa lögreglunni. „Við hjálpuðum allir lögreglunni og svöruðum spurn- ingum hennar. Þetta tengist mér ekki beint, það eru aðrir sem eru flæktir inn í þetta. Ég var að svara spurningum og hjálpa lögreglunni. Spurningar þeirra snerust ekki um mig. Þeir verða að handataka þig til að tala við þig, til að þú farir á lög- reglustöðina.Ég held að ég komi ekki meira við sögu þar sem þetta tengist mér ekki." Redknapp segir að þetta hafi eyðilagt alla möguleika hans á því að verða næsti þjálfari enska lands- liðsins. „Ég er ekki að segja að starf- ið hafi verið mitt en öll þessi öm- urlega meðferð sem ég hef fengið hefur breytt öllu. Ég er ekki að segja að ég hafi verið á eftir starfinu, ég elska Portsmouth og ég vil ekki fara héðan. Það er gaman að fólk tal- ar um að ég standi mig hérna og hversu góður ég er í þessu starfi. Mér finnst eins og ég hafi bara verið handtekinn af því að ég er frægur," sagði Redknapp að lokum. ÚRSLIT HELGARINNAR SPÆNSKA ÚRVALSD. Espanyol - Barcelona 1-1 - Eiður Smári Guðjohnsen var (byr- junarliði Barcelona og lékfyrsta 72. mínútur leiksins. Almeria - Sevilla 1-0 Real Madrid - - Racing S. 3-1 Deportivo - Osasuna 1-2 Getafe - Levante 2-1 Mallorca - Murcia 1-1 Recreativo - Real Zaragoza 2-1 Valladolid - Villarreal 2-0 Real Betis - Atletico M. 0-2 Valencia-A.Biibao 0-3 Staðan Lið L u J T M St 1.R. Madrid 14 10 2 2 33:14 32 2. Barcelona 14 8 4 2 27:11 . 28 3. Villarreal 14 9 1 4 26:21 28 4. Espanyot 14 7 5 2 20:15 26 5. A. Madrid 13 7 3 3 27:17 24 ö.Valencia 14 8 0 6 20:23 24 7. Racing 14 6 5 3 12:12 23 8. Mallorca 14 5 5 4 24:21 20 9. Zaragoza 14 5 3 6 21:22 18 10. Getafe 14 5 3 6 16:17 18 11.A. Bilbao 14 4 5 5 15:16 17 12. Almeria 14 4 4 6 12:15 16 13. Valladol. 14 4 4 6 21:26 16 14. Sevilla 13 5 0 8 24:20 15 15. Osasuna 13 4 3 6 16:17 15 16. Murcia 14 3 6 5 10:15 15 17. Recreat. 14 4 3 7 10:19 15 18. Deport. 14 3 4 7 13:21 13 19. Betis 13 2 5 6 13:20 11 20. Levante 14 2 1 11 11:29 7 Markahæstu menn: Leikmaður Lið Lionel Messi Barcelona Luis Fabiano Sevilla Raul Real Madrid ÍTALSKA ÚRVALSD. Sampdoria - Reggina 3-0 -Emil Hallfreðsson lékfyrri hálfleikinn í liði Reggina. Milan - Juventus 0-0 Atalanta - Napoli 5-1 Cagliari - Livorno 0-0 Catania - Palermo 3-1 Fiorentina - Inter 0-2 Parma - Empoli 1-0 Roma - Udinese 2-1 Siena - Lazio 1-1 Torino-Genoa 1-1 Mörk 8 8 8 Staðan Liö L u J T M St l.lnter 13 9 4 0 26:8 31 2. Roma 13 8 4 1 28:17 28 3.Juventus 14 7 5 2 29:13 26 4. Udinese 14 7 4 3 17:15 25 5. Fiorentina 14 6 6 2 19:11 24 6. Atalanta 13 5 6 2 21:16 21 7. Sampdor. 14 6 2 6 18:17 20 8. Milan 13 4 6 3 20:10 18 9. Napoli 14 5 3 6 22:20 18 10.Catania 14 4 6 4 14:14 18 ll.Palermo 14 4 6 4 18:24 18 12.Torino 14 2 9 3 14:15 15 13. Parma 14 3 6 5 16:22 15 14. Genoa 14 3 6 5 13:19 15 15. Lazio 13 3 5 5 13:17 14 16. Livorno 14 3 4 7 17:25 13 17. Siena 14 1 7 6 13:21 10 18. Cagliari 13 2 4 7 11:20 10 19. Reggina 14 1 7 6 9:21 10 20. Empoli 14 2 4 8 7:20 10 ÞÝSKA ÚRVALSD. Rostock - Hannover 0-3 Cottbus - Karlsruhe 2-0 Hertha B.- B. Leverkusen 0-3 Schalke - Bochum 1-0 Stuttgart - Dortmund 1-2 Wolfsburg - Frankfurt 2-2 W. Bremen - Hamburger 2-1 Bielefeld - B. Múnchen 0-1 Duisburg - Nurnberg 1-0 Staðan Lið L U J T M St 1. Bayern M. 15 10 4 1 31:8 34 2. W. BremenlS 10 3 2 34:18 33 3. Hamburg. 15 9 3 3 23:12 30 4. Leverkus. 15 8 3 4 27:11 27 5. Karlsruhe 15 8 2 5 16:18 26 6. Schalke 15 6 7 2 22:14 25 7. Hannover 15 7 3 5 22:20 24 8. Stuttgart 15 7 1 7 21:22 22 9. Hertha B. 15 6 1 8 18:22 19 10. Frankfurt15 4 7 4 16:21 19 11. Bochum 15 5 3 7 23:23 18 12. Dortmu. 15 5 3 7 20:25 18 13. Wolfsbu. 15 4 5 6 25:27 17 14. Bielefeld 15 4 3 8 16:32 15 15. Rostock 15 4 2 9 14:23 14 16. Nurnbe. 15 3 3 9 18:25 12 17. Duisbu. 15 4 0 11 14:25 12 18. Cottbus 15 2 5 8 12:26 11

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.