Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.2007, Page 30
30 MÁNUDAGUR 3. DESEMBER 2007
Síðast en ekki sist DV
A-
TENGSL
Michael Jackson og Madonna eiga
það sameiginlegt að hafa selt
milljónir á milljónir ofan af hljómplöt-
Söng- og leikkonan Madonna á það
sameiginlegt með Friðriki Þór
Friðrikssyni að hafa verið tilnefnd til
óskarsverðlauna.
NÚ GETUR ÞÚ LESIÐ
DVÁDV.IS DVer
aðgengilegt
á dv.is og
kostar
netáskriftin
1.490 kr.á
mánuði
Lars von Trier á það sameiginlegt
með Björk Guðmundsdóttur að hafa
unnið með Thome Yorke I Radiohead.
Björk Guðmundsdóttir söng eitt
sinn dúett með Thom Yorke. Það var
í bíómynd eftri Lars vonTrier.
r» -S-
Thom Yorke og Michael Jackson
hafa báðir verið beðnir að syngja
dúett með Paul McCartney.Thom
Yorke hafnaði tilboðinu, öfugt við
Jackson.
DREYMIRUMFRIÐÁ
JÖRÐÁAÐVENTUNNI
Hver er konan?
„Kolbrún Halldórsdóttir."
Hvað gerir þú?
„Bara það sem mér þykir best og
réttast á hverjum tíma."
Hver eru þín áhugamál?
„Leiklistin, börnin mín og lífið og
tilveran."
Stundar þú einhverjar íþróttir?
„Ég syndi á hverjum degi og hef
gert í nokkur ár, það er nauðsynlegt
að hafa gott úthald í pólitíkinni."
Hefur þú búið erlendis?
„Nei."
Hver er uppáhaldsstaðurinn?
„Það fyrsta sem kemur í hugann
er Rauðisandur á Barðastönd en
þaðan er hún móðir mín."
Besti matur?
„Jólamaturinn hans Ágústar,
forláta innbakaður hrísgrjóna- og
möndluhleifur."
Kolbrún Halldórsdóttir
alþingismaður vinstri grænna, komst
í sviðsljósið fyrir að andmæla
samningi Ríkisútvarpsins og Björg-
ólfs Guðmundssonar. Þegar hún er
ekki með hugann við pólitík lætur
hún sig dreyma um að setjast á
leikstjórastól.
Eftirminnilegasta bók?
„Blómin í ánni, eftir Edida Morr-
is, hún fjallar um kjarnorkusprengj-
urnar í Hiroshima og Nagasaki. Það er
áhrifaríkt að lesa um þessa hræðilegu
ógn og þessi ógnvænlegu völd sem
menn geta eignast í krafti yfirburða á
sviði hernaðar."
Hefur þú skipt um dekk?
„Já, það hef ég sko gert."
Hvaða leið hefðir þú frekar valið?
„Ég hefði tryggt RÚV opinber-
ar greiðslur. Óhlutdrægni verður að
vera óumdeild."
IVIAÐUR
DAGSINS
Megum við búast við að sjá þig í
leikstjórastólnum á næstunni?
„Ég leyfi mér að láta mig dreyma
um það á hverjum degi."
Af hverju hefur þú efasemdir um
samstarf RÚV og Björgólfs?
„Ég tel að samstarf opinberra að-
ila og einkaaðila þurfi að vera í föst-
um skorðum og fara að opinberum
reglum. Ég tel að samningurinn brjóti
í bága við lög um RÚV ohf. Ég tel einnig
að ákveðin hætta sé á að frelsi útvarps-
ins sem almannamiðils standi ógn af
jafn sterku sambandi við einn aðila."
Hvaða áhrif telur þú að það hafi á
íslenska fjölmiðla að þeir séu í
eiguauðmanna?
„Ég er alveg til í að viðurkenna að
það ríkir ákveðið frelsi í þessum efn-
um. Ég er hins vegar þeirrar skoðunar
að þjóð með jafri sérstaka menningu
og íslendingar þurfi að eiga einn öfl-
ugan ríkisfjölmiðil. Hann verður að
gæta hagsmuna almennings og vera
hlutlaus í hvívetna."
Hver er framtíð fjölmiðla á
fslandi?
„Ég læt mig dreyma um að stefn-
unni verði breytt og ég mun áfram
beita mér fyrir því."
Hvað erfram undan?
„Að borða sushi með fjölskyld-
unni, sonur minn kemur í heimsókn
og þá borðum við fjölskyldan sushi
saman."
Hver er draumurinn?
„Svona í tilefni aðventunn-
ar, dreymir þá ekki alla um frið á
jörð?"
SANDKORN
■ Hún er umdeild sú ákvörð-
un Hagkaupsmanna að gera
sérstakt athvarf fyrir karlpen-
inginn á
1 meðan kon-
urnar versla.
Á meðan
CáLJm Þærþurfa
að arka í
gegnum
^úlfik stressaðan
BrJ lMr-^ mannfjöld-
miunn
í röðum geta
karlmennirnir fengið sér sæti,
látið líða úr sér og horft á enska
boltann. Ómar Ragnarsson
fagnar þessari nýjung á þeim
forsendum að sumum finnst
gaman að versla og sumum
ekki. Sóley Tómasdóttir femín-
isti er steinhissa yfir þessu öllu
saman - henni finnst að bæði
kynin eigi að bera ábyrgð á
innkaupum fjölskyldunnar.
Ljái henni hver sem vill - finnst
einhverjum gaman í matvöru-
verslun?
■ Það var afmælisstemning
upp í Efstaleiti í gær þegar út-
varpsþátturinn Rokkland fór í
loftið í 600.
skipti. Þátt-
urinn sem
er uppfinn-
ing útvarps-
mannsins
ástsæla
Ólafs Páls
Gunnars-
sonar hóf
göngu sína
í september árið 1995 og er
því orðinn hvorki meira né
minna en 12 vetra. f þættin-
um í gær var farið yfir nokkra
af hápunktum Rokkiands í
gegnum tíðina en áhugasamir
geta hlustað á þáttinn á morg-
un þegar hann er endurtekinn
kukkan 22.10 til 24.00.
■ Smáskífa hljómsveitarinn-
ar Gus Gus, Need In Me, af
nýjustu afurð sveitarinnar,
Forever,
hefur verið
að gera frá-
bæra hluti
á útvarps-
stöðvum,
klúbbum og
vinsælda-
listum víðs
vegar um
heiminn.
Smáskífan er nú mest selda
smáskífan á stafrænu formi,
vínyl og langvinsælasta lagið á
safnplötum. Það eru margar af
virðulegustu útvarpsstöðvum
heims sem keppast við að spila
lagið auk þess sem gagnrýn-
endur hafa hrósað sveitinni í
hástert.
asgeir@dv.is