Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.2007, Page 10
10 FIMMTUDAGUR 6. DESEMBER 2007
Fréttir DV
„Aögengileg, falleg,
fró&leg og síöast en ekki
síst skemmtileg bók -
alvöru hvatning fyrir
hörbustu Innipúka til ab
laumast út á svalir eba f
garblnn sinn og prófa ab
rækta eigib grænmeti!"
Bryndís Loftsdóttir
Vörustjóri Eymuiuisson
BókabúÖ Máls oy nwimingar
SUMARHUSID
MGARDURINN
Sibumúla 15. 108 Reykjavík
Sími 586 800J, www.rit.is
Minnistöflur
www.birkiaska.is
Umboðs- og söluaðili
Birkiaska ehf.
sími: 551 9239
FOSFOSER
MEMORY Valið fæðubótarefni ársins 2002 í Finnlandi
Sá besti!
Sá flottasti!
Ný bók um
undrabarnið
Cristiano
Ronaldo
Þessa bók
verða allir
knattspyrnu-
fíklar að eiga!
©
BÓKAÚTGÁFAN HÓLAR
Á leiði
í garðinn
lýsa allt að 30 daga samfleytt.
sími 530 1700 /'
■H
Trúnaðarmenn Strætós bs. undirbúa þrjár kærur á hendur
yfirmönnum sínum. í öllum tilvikum telja þeir að stjórn-
endurnir séu lögbrjótar og nú er svo komið að þeir telja sig
ekki lengur geta við unað. Jóhannes Gunnarsson, fráfar-
andi fyrsti trúnaðarmaður Strætó bs., segist vera kominn
með alveg nóg af kúgun og yfirgangi yfirmannanna.
Saman til loggunnar Hópur
trúnaðarmanna lagði inn kæru gegn
yfirmönnum sínum hjá Strætó í gær. ýg
VAGNSTJÓRAR
KÆRAYFIRMENN
TRAUSTI HAFSTEINSSON
bladamadur skrifar: traustl@dv.is
Trúnaðarmannahópur Strætós bs.
leitaði í gær til lögreglunnar á höf-
uðborgarsvæðinu og lagði fram tvær
kærur gegn stjórnendum fyrirtækis-
ins. Báðar snúa þær að meintum lög-
brotum yfirmannanna. Þriðja kær-
an er síðan í undirbúningi og verður
lögð fram á næstunni.
Undanfarna daga er óhætt að
segja að allt hafi verið í hers höndum
hjá Strætó bs. Ásakanir ganga á víxl
þar sem stjórnendur saka starfsmenn
um ölvun í starfi eftir móttöku sem
haldin var vegna trúnaðarmanna-
skipta fyrirtækisins. Veitt var áfengi á
staðnum og að móttöku lokinni hélt
hópur trúnaðarmanna á Hlemm þar
sem þeir hittu starfsfélaga sína á bið-
stofu og tóku síðan strætó heim til sín.
Allir voru þeir óeinkennisklæddir en
höfðu fengið leyfi frá störfum vegna
félagsstarfa. Forsvarsmenn Strætós
telja ólíðandi að þeir hafi skilað sér
ölvaðir frá félagsstörfúm sínum.
Trúnaðarmennirnir eiga von á
áminningu fyrir ölvun í starfi og eru
æfir út í yfirmenn sína. Þeir hafa all-
ir sagt af sér sem trúnaðarmenn og
æda í hart.
Brotá lögum
Fyrsta kæran snýr að meint-
um lögbrotum framkvæmdastjóra
Strætós bs., Reyni Jónssyni, er hann
lét lögreglu elta uppi trúnaðarmann,
Friðrik Róbertsson, morguninn eft-
ir móttökuna þar sem hann grunaði
vagnstjórann um ölvun í akstri. Frið-
rik hefur kært athæfið á þeim for-
sendum að Reynir hafi brotið lög með
því að hindra ekki vagnstjórann í að
setjast undir stýri hafi hann haft við-
komandi grunaðan um ölvun. Þess í
stað hleypti hann Friðriki af stað og
lét síðan lögregluna elta hann uppi.
Önnur kæran er gegn stjómend-
um Strætós bs. fyrir að bjóða vagns-
tjómm fyrirtækisins upp á leiðakerfi
og tímaáætíun sem óraunhæft sé að
standast. Að mati trúnaðarmanna-
hópsins er kerfið til þess fallið að
knýja vagnstjóra til hraðaksturs og
þannig til lögbrota því iðulega neyð-
ist þeir til að fara nokkuð yfir leyfi-
legan hámarkshraða. Kæran var lögð
fram í gær.
Sú þriðja er í undirbúningi hjá
trúnaðarmannahópi vagnstjóra og
hefur að gera með launaútreikninga
og vaktakerfi Strætós bs. Að mati
starfsmannanna brýtur fyrirtækið lög
með launakerfi sínu og hafa þeir nú
þegar reifað málið við lögreglu. Þessi
liður verður jafnframt tilkynntur til
Vinnueftirlits ríkisins.
Enginn afsláttur
Jóhannes Gunnarsson, fráfar-
andi fyrsti trúnaðarmaður Strætó
bs., er vemlega ósáttur við fram-
ferði yfirmanna sinna og hótan-
ir sem þeir hafa viðhaft síðustu
daga. Hann er ósáttur við bavíana-
stimpil sem vagnstjórar hafa feng-
ið vegna ólögmætrar tímaáætlunar
fyrirtækisins. „Við erum búnir að fá
nóg. Það er augljóst að stjórnend-
ur vilja ekki leysa þessa deilu og
því er staðan stál í stál. Að stjórn-
endur viðhafi hótanir í okkar garð
er óþolandi. Það verður enginn af-
sláttur gefinn og menn orðnir mjög
reiðir. Það er ljóst að tímakerfið
neyðir vagnstjóra í hraðakstur og
slíkt hljótum við að kæra. Við vilj-
um ekki vera í ónáð hjá farþegum
vegna hraðaksturs sem er afleiðing
af slæmri stjórnun fyrirtækisins,"
segir Jóhannes.
„Það er Ijóst að tíma-
kerfið neyðir vagnstjóra
í hraðakstur og slíkt
hljótum við að kæra"
Geir Jón Þórisson Yfirlögregluþjónn.
Geir Jón Þórisson, yfirlögreglu-
þjónn lögreglunnar á höfúðborg-
arsvæðinu, segir kæmrnar verða
teknar til meðferðar hjá embætt-
inu. Hann segir lögreglu áður hafa
velt fyrir sér hraðakstri strætisvagna
vegna tímaskorts í leiðakerfi. „Rétt-
ara hefði auðvitað verið að bflstjór-
anum hefði ekki verið hleypt af stað
sökum gmnsemda um ölvun. Allir
bflstjórar eiga að fylgja landslögum
og við gefum engan afslátt af því.
Við höfúm vitað af flýti vagnanna,
bæði í þessu leiðakerfi og öðrum.
Það á enginn bílstjóri að þurfa að
sæta skipunum sem leiða til ólög-
legs aksturs," segir Geir Jón.