Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.2007, Qupperneq 30
, 30 FIMMTUDAGUR 6. DESEMBER 2007
Siðast en ekki sist DV
ástæður
tílaðjóla-
skreyta
1LVSIR UPP SKAMMDEGIÐ
Þar sem við búum á landi þar
sem er dimmt nánast allan sólar-
hringinn eru
jólaseríur og
jólaskreyting-
v ar nauðsynleg
fyrirbæri. Helst
ættiaðsetjalög
sem skipa öll-
um að hengja
upp jólaseríur, á
sama tíma, má
þó setja lög um að fólk sem skreytír
ósmekklega verði sektað. Svo ættu
Islendingar líka að halda jóla-
skrautinu alveg fram í mars því þá
er kannski byrjað að birta örlítið til.
2BÖRNIN
Það er staðreynd að böm elska
v jólaskraut. Sum böm em meira að
segja það almennileg að hjálpa for-
eldrunum við að
skreyta heimilið.
Ef þú ert afl eða
amma er líka
mun líklegra að
barnabörnin
nenni að koma í
heimsókn til þín
efþúertmeð
eitthvað skraut-
legt og skemmtilegt jólaskraut
handa þeim að skoða. Ef það virkar
ekki má múta með smákökum.
3FÖNDURTÍMI
Það er einstaklega skemmtilegt
að fjölskyldan sameinist um að
föndra jólaskrautið fyrir heimil-
ið. Það er til dæmis hægt að baka
piparkökur, skreyta þær skemmti-
legaoghengja
uppílofteða
- búatilsinneigin
aðventukrans.
Heimatilbúið
jólaföndur gefúr
líka heimilinu
persónulegan og
krúttlegan blæ.
Einnigertilvalið
að halda upp á föndrið sem börnin
hafa búið til á leikskólanum.
4HREINGERNINGAR
Maður eiginlega neyðist til að
taka heimilið í gegn áður en maður
setur allt jólaskrautið upp. Það er
eitthvað alls ekki nógu smart við að
setjalitlufallegu
jólaenglana
upp í rykuga
hillueðahengja
jólakransinn út
í drulluskítugan
glugga.Ekkinóg
meðþað heldur
neyðist maður
til að taka til
þegar búið er að taka jólaskrautið
niður því yfirleitt er greni búið að
dreifast út um alla íbúðina.
NÚ GETUR ÞÚ LESIÐ
DVÁDV.IS DVer
aðgengilegt
á dv.is og
kostar
netáskriftin
1.490 kr.á
mánuði
0F MARGAR KONUR
VERÐAFYRIROFBELDI
Sigþrúður Guðmundsdóttir
er framkvæmdastýra Kvennaathvarfsins
sem verður 25 ára í dag. (tilefni af því
býður Kvennaathvarfið til sigurhátíðar í
Ráðhúsi Reykjavíkur og verður dagskrá-
in tileinkuð konunum sem brotist hafa
út úr ofbeldissamböndum. Sigþrúður
hvetur alla til að mæta á hátíðina.
Hver er konan?
„Sigþrúður Guðmundsdóttír."
Hvaðgerirþú?
„Ég er framkvæmdastýra samtaka
Kvennaathvarfsins."
í hverju felst starfið?
„Það felst í því að halda utan um starf
Kvennaathvarfsins og samtakanna,
sjá um kynningarmál, halda utan um
daglegan rekstur og ótal margt ann-
að."
Hver eru þín áhugamál?
„Ég hef alltaf óttast þessa spurningu,
ætli það sé ekki ástæðan fyrir því að
ég hef aldrei tekið þátt í fegurðarsam-
keppni."
Hefur þú búið erlendis?
„Já, ég bjó f Noregi einn vetur þar sem
ég fór í kristilegan lýðháskóla."
Uppáhaldsstaður?
„í augnablikinu er það Vík í Mýrdal,
það er svo langt síðan ég hef komið
þangað."
Besti matur?
„Matur sem ég þarf hvorki að elda sjálf
né borga fyrir."
Eftirminnilegasta bók?
„Á Saltkráku eftir Astrid Lindgren."
Hvernig fagnið þið 25 ára afmæli
Kvennaathvarfsins?
„Við fögnum því með sigurhátíð í Ráð-
húsi Reykjavíkur í dag klukkan 17 með
ýmsum uppákomum eins og upp-
lestri, tónlist og fleiru. Einnig mun-
um við opna ljósmyndasýningu sem
heitir Kraftakonur. Á sýningunni birt-
um við tvö þúsund átta hundruð átta-
tíu og sjö myndir af konum héðan
og þaðan af landinu sem sendu inn
myndir í myndasöfnun sem hefur átt
sér stað að undanfömu en myndim-
ar eru jafnmargar og þær konur sem
dvaflð hafa í Kvennaathvarfinu."
Hvernig gekk þessi
myndasöfnun?
„Hún gekk ljómandi vel, það voru
margar konur sem sýndu því áhuga að
vera með. Vissulega kom mér svolítið
á óvart hvað þetta þurftu á endanum
að verða margar myndir. Það er mjög
mikilvægt að sjóngera þetta svolítið
svo að fólk áttí sig á því hversu marg-
ar hafa leitað tíl Kvennaathvarfsins.
Sýningin er líka hugsuð sem styrkur
fýrir þær konur sem enn búa við of-
beldi og sýna þeim ffarn á að þær séu
ekki einar um það og að það sé aldrei
of seint að að brjótast út úr ofbeldis-
sambandi."
Er mikið um heimilisofbeldi á
íslandi?
„Það verða allt of margar konur fyr-
ir ofbeldi á íslandi í dag, og þeim fer
því miður ekki fækkandi. Konur eru
þó duglegri í dag að leita sér hjálp-
ar en áður fyrr. Það er bara meira en
að segja það að bijótast út úr ofbeld-
issambandi, þú ert ekki bara að yfir-
gefa ofbeldismann heldur líka mann-
inn þinn. Svo er mjög misjafnt hvaða
stuðning þessar konur hafa þegar þær
hafa brotíst út úr ofbeldi og hvort þær
eigi einhverjar eignir eða hvort þær
þurfi að faræ út á þennan erfiða hús-
næðismarkað."
Hver er þín fyrirmynd?
„Hallgerður, kötturinn minn, er mikil
fyrirmynd þar sem hún gerir það sem
henni sýnist og fer sínar leiðir án þess
að traðka á leið annarra."
Hver er draumurinn?
„Draumurinn væri heimur þar sem
fólk fæðist með jöfrí tækifæri tíl góðs
lífs, burtséð frá kyni, kynþættí eða al-
mennu ástandi."
SAJVDKOROí
■ Rammt hefur kveðið að því á
kaffistofum undanfarnar vikur
að talið berist að því að til standi
að sameina
fyrirtækin
BYKOog
MEST, sem
bæði eru
stór á bygg-
ingavöru-
markaði.
Það hefur
gjarnan
verið haft á orði að þarna ætli
BYKO að losa sig við samkeppni
með því að gleypa MEST. f
stuttu samtali við DV blæs
Hjalti Már Bjarnason, forstjóri
MEST, á þessar sögusagnir.
„MEST er ekki, og verður ekki,
til sölu. Við stefnum fremur að
því að kaupa önnur fyrirtæki,"
segir Hjalti og undrast þessar
lífseigu sögusagnir.
■ fbúum á Vesturgötunni brá
nokkuð í brún í síðustu viku,
þegar öflugar vinnuvélar hófu
störf við
sjávar-
síðuna,
vestast í
miðborg-
inni. Taldi
fólk að hér
væru hafnar
framkvæmd-
ir við um-
deilda landfyllingu. Það þóttí
einkennilegt því að Dagur Egg-
ertsson borgarstjóri hafði sagt
í hádegisfréttum sama dags að
ekkert yrði af landfyllingum
þarna í bráð. Eftir samræður
við fulltrúa hjá borgarskipulagi
voru íbúar fullvissaðir um að
þarna væri verið að efla varnar-
garð, sem væri óhjákvæmilegt.
■ Bæjarsjóður í Grindavík end-
urgreiddi á dögunum lóðar-
eiganda í bænum kostnað sem
hann hafði lagt út í vegna bygg-
ingaframkvaémda. Alls er um
nálægt tíu milljónir króna að
ræða, en lóðareigandinn hafði
fengið vilyrði hjá bænum fyr-
ir byggingum sem ekki höfðu
verið formlega samþykktar hjá
byggingarfulltrúa. Bæjarstjór-
inn í Grindavík, Ólafur Öm
Ólafsson, ásamt félögum sín-
um í meirihlutanum sáu sig til-
neydda til þess að endurgreiða
þennan kostnað. Minnihlutinn
er ósáttur við þessi málalok.
sigtryggur@dv.is
HINN DAGINN