Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.2007, Síða 32
Litlar samlokur 399 kr.
+ litid gosglas 100 kr.
= 499 u,
FRÉTTASKOT
51 2 70 70
DV borgar 2.500 krónur fyrir fréttaskot sem leiðir til frétta.
Fyrir fréttaskot sem verður aðalfrétt á forsíðu greiðist 25.000 krónur.
Fyrir besta fréttaskot vikunnar greiðist allt að 50.000 krónur.
Alls eru greiddar 100.000 krónur fyrir besta fréttaskot hvers mánaðar.
FIMMTUDAGUR 6. DESEMBER 2007 ■ DAGBIAÐIÐ VlSIR STOFNAÐ 1910
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
Gullfoss í
klóm græningja
Pétur Blöndal þingmaður varar
við því í fyrirspurn til Þórunnar
Sveinbjarnardóttur umhverfisráð-
herra að svo geti farið að umhverf-
isverndarsamtök muni krefjast þess
að helstu náttúruperlur íslands
verði virkjaðar. Svona geti farið
vegna þess að vatnsaflsvirkjanir
spari mannkyninu mengun með því
að koma í stað kolaorkuvera.
„Við þurfum að vera undir það
búin að við verðum krafin um að
virkja allt sem hægt er að virkja,
Gullfoss þar með talinn, vegna um-
hverfisverndarsjónarmiða," segir
Pétur.
Tekjurmaka
skerða ekki tekjur
Frítekjumark ellilífeyrisþega
hækkar í allt að 100 þúsund
krónur og skerðing trygginga-
bóta vegna tekna maka verður
afnumin 1. apríl næstkomandi.
Þetta er hluti af þeim aðgerðum
sem stjórnvöld hafa boðað til að
styrkja stöðu aldraðra og öryrkja.
Þessu til viðbótar á að hækka
vasapeninga vistmanna á stofn-
unum úr 28.500 krónum í 36.500
krónur og stjórnvöld hyggjast
tryggja að ellilífeyrisþegar fái að
lágmarki 25 þúsund krónur á
mánuði frá lífeyrissjóðum. Ráða-
menn boða einnig aðgerðir til
að draga úr því að bótaþegar fái
borgað of mikið eða lítið í trygg-
ingabætur.
Lítið í pokanum
„Ég á ekki von á því að við för-
um að ræða peninga almennilega
fyrr en í næstu viku," segir Kristján
Gunnarsson, formaður Starfsgreina-
sambandsins.
Undirnefndir Starfsgreinasam-
bandsins hafa þessa viku fundað
með fulltrúum Samtaka atvinnulífs-
ins og unnið í markmiðssetningum
kjarasamningaviðræðna. Kristján
segir síðustu daga hafa einkennst af
eldhúsumræðum þar sem aðallega
hafi verið farið í textavinnu samn-
inga. „Að svo stöddu er lítið að
frétta, við erum eiginlega bara stödd
í textavinnu þessa vikuna. Ég get
ekki sagt að mikið hafi komið inn í
pokann undanfarið," segir Kristján.
I.aprfl!
Mikil óánægja vegna ráðningar nýs framkvæmdastjóra hjá Fjöliðjunni á Akranesi:
FURÐA SIG A RAÐNINGU
GAMLA BÆJARSTJORANS
TRAUSTI HAFSTEINSSON
blaðamadur skrifar:
„Ég lýsi yfir miklum vonbrigðum
með þessa ráðningu og það er óþol-
andi að menn með pólitískan bak-
grunn komist alls staðar að þar sem
þeir vilja," segir Sigurður Þór Sigur-
steinsson iðjuþjálfi. Hann var einn
umsækjenda um starf forstöðu-
manns Fjöliðjunnar sem nýlega var
auglýst og er ósáttur við niðurstöðu
ráðningarinnar.
Alls sóttu 10 einstaklingar um
starfið og meðal þeirra er að finna
einstaklinga sem hafa mikla reynslu,
ýmist úr iðjuþjálfun eða málefnum
fatlaðra. Auglýst var eftir einstakl-
ingi sem annaðhvort hefði faglega
reynslu eða stjórnunarreynslu. Nið-
„Ég hafði reyndar ver-
ið varaður við því að
sækja um því Ijóst væri
frá upphafi hveryrði
ráðinn"
urstaðan varð sú að Guðmundur Páll
Jónsson, bæjarfulltrúi og fyrrverandi
bæjarstjóri Akraneskaupstaðar, var
ráðinn.
hans þegar kemur að iðjuþjálfun og
málefiium fatlaðra.
Starf forstöðumanns Fjöliðjunn-
ar var nýlega auglýst eftir að Þor-
varður Magnússon, fyrrverandi for-
stöðumaður, sagði starfi sínu lausu
eftir að grunsemdir vöknuðu um að
ekki væri allt með felldu í fjárreiðum
stofnunarinnar. Áður hafði hann ver-
ið kærður fyrir fjárdrátt í starfi sem
gjaldkeri íþróttabandalags Akraness.
Ríkisendurskoðun vinnur að úttekt á
fjármálum Þorvarðar.
I skugga fjárdráttar
Fjöliðjan heyrir undir Svæðisskrif-
stofu Vesturlands sem aftur heyrir
undir félagsmálaráðuneytið þar sem
Guðmundur var áður aðstoðarmað-
ur félagsmálaráðherra, Magnúsar
Stefánssonar. Gagnrýnendur benda
hins vegar á takmarkaða reynslu
Augljós þráður
Sigurður Þór hefur ritað Svæðis-
skrifstofunni harðort bréf þar sem
ráðningin er gagnrýnd. Hann segir
ljóst að pólitík en ekki fagmennska
hafi ráðið för. „Ég er klárlega ansi
svekktur. Ég hafði reyndar verið var-
aður við því að sækja um því ljóst
væri frá upphafi hver yrði ráðinn.
Með fullri virðingu fyrir Guðmundi
Páli, þá hann kemur beinlínis úr
ráðuneytinu sem sér um þennan
málaflokk. Þráðurinn er svo augljós
og ég gagnrýni hversu auðvelt er fyr-
ir pólitíska fulltrúa að komast að. Ég
var að vona að fagleg sjónarmið yrðu
látin ráða," segir Sigurður Þór.
Magnús Þorgrímsson, fram-
kvæmdastjóri Svæðisskrifstofu á
Vesturlandi, vísar gagnrýninni alfarið
á bug. Hann staðfestír að meðal um-
sækjenda hafi verið að finna einstakl-
inga með meiri reynslu í málefhum
fatlaðra og iðjuþjálfun. „Ég er ekki til-
búinn í svona vangaveltur. Guðmund-
ur Páll sóttí um og annað er ég ekki
tilbúinn að ræða. Það er engin pólit-
ík í þessu því fólk hjá okkur er ráðið á
faglegum forsendum. Að halda öðru
fram er fáránlegt," segir Magnús.
Verslað í Vísi Bananar, epli og ýmsir aðrir ávextir blasa við í glugganum á versluninni Vísi á Laugaveginum. Fyrir innan áttu þær
samtal, viðskiptamaðurinn og verslunarkonan. DV-mynd Stefán
Brynjólfur Árnason sveitarstjóri grunaður um margvísleg brot:
Keypti lyftara á kostnað hreppsins
Brynjólfur Arnason, sveitarstjóri
Grímseyjarhrepps, er grunaður um
að hafa keypt muni fyrir fleiri millj-
ónir í nafni hreppsins.
Hann er meðal annars grunað-
ur um að hafa keypt skotbómulyft-
ara að andvirði fimm til sex milljónir
króna í nafni Grímseyjarhrepps. Lyft-
arann notaði hann við höfnina til að
afgreiða birgðir úr Grímseyjarfeiju.
Aðrir sveitarstjórnarmenn höfðu
ekki hugmynd um kaupin og voru
þau aldrei rædd á fundum. Þegar í
ljós kom að ekki væri allt með felldu
varðandi kaupin reyndi Brynjólfur
að hylma yfir þau, samkvæmt heim-
ildum DV. Hann sagðist hafa borgað
lyftarann með fé úr eigin vasa.
Þetta er einungis brot af því fjár-
málamisferli sem Brynjólfur er grun-
aður um að vera viðriðinn. Undan-
farna daga hafa sveitarstjórnarmenn
ásamt endurskoðendum frá fyrirtæk-
inu Díl farið yfir bókhald hreppsins.
Ekki var unnt að halda rann-
sókninni áfrarn í gær þar
sem ófært var út í Gríms
ey. Rannsóknin heldur
áffam næstu daga og
gætí lokið á morgun.
íslandspóstur hef-
ur staðfest að innan-
húsrannsókn sé haf-
in á störfum Brynjólfs,
hann starfaði um ára-
bil sem umboðsmaður fs-
landspósts í Grímsey.
Brynjólfur gegndi
áður starfi um-
boðsmanns Olíu-
Sveitarstjóri Keypti skotbómulyftara
fyrir fimm til sex milljónir króna.
dreifingar ehf. en í því starfi dró hann
að sér 12.900 lítra af olíu. Fyrir það
var hann dæmdur í þriggja mánaða
skilorðsbundið fangelsi.
Málið er ekki enn orðið að lög-
reglumáli en samkvæmt
heimildum DV verður mál-
ið kært til lögreglu um
leið og rannsókn á bók-
haldi lýkur. Engar líkur eru
taldar á því að Brynjólf-
ur muni sitja áfram sem
sveitarstjóri. Hann hefur
glímt við heilsubrest að
undanförnu en ekki ligg-
ur fyrir hvort eða þá hvenær
varamaður tekur við
starfi hans.
einar@dv.is
Fangelsi
fyrir hrákann
* Héraðsdómur Vestfjarða
dæmdi í gær karlmann í eins
mánaðar skilorðsbundið fangelsi
fyrir að hrækja ffaman í lögreglu-
þjón. Tveir aðrir voru sektaðir
um sextíu þúsund krónur fyrir að
trufla störf lögreglunnar. Atvikið
áttí sér stað á ísafirði en lögreglu-
þjónn þurfti að hafa afskipti af
manni við veitíngastað þar í bæ.
Áttu þá tveir að hafa kallað til lög-
reglunnar að láta hann lausan og
ýtt við lögreglumanninum þannig
að maðurinn slapp. Annar þeirra
hrækti þá framan í lögregluþjón-
inn. Allir þrír játuðu brot sín.
Játar ekki
„Það liggur ekki játoing fyrir en
við munum halda áfram með málið,"
segir Gunnar Schram, yfirlögreglu-
þjónn hjá lögreglunni á Suður-
nesjum. Gunnar segir að rannsókn
banaslyssins í Reykjanesbæ síðasta
föstudag sé að mestu lokið.
Trefjar úr fötum fundust á bílnum.
Til að hægt sé að skera úr um hvort
þau séu úr fötum drengsins sem lést
þarf að senda sýni utan. Það gæti
tekið nokkrar vikur. Karlmaður á fer-
tugsaldri var handtekinn grunaður
um að hafa ekið á drenginn. Hann
var úrskurðaður í gæsluvarðhald
sem rennur út í dag. Gunnar segist
gera ráð fyrir því að farið verði fram á
áffamhaldandi gæsluvarðhald.
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4