Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.2007, Side 4

Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.2007, Side 4
4 FIMMTUDAGUR 13. DESEMBER2007 Fréttir DV Hvarer kirkju- málaráðherra? „Hvar er kirkjumálaráð- herrann meðan sótt er að kirkj- unni og kristni í landinu?" sagði Guðni Ágústsson, formaður Framsóknarflokksins, í utan- dagskrárumræðum um stöðu Idrkjunnar og kristinfræðslu á Alþingi í gær. Guðni var upphafs- maður umræðunnar og sagði mikilvægt að tryggja stöðu kristn- innar en jafnframt tryggja trúfrelsi. Bjöm Bjamason, dóms- og kirkjumálaráðherra, svaraðiþví til að það yrði þjóðinni til tjóns ef drægi úr virðingu fyrir kristni og kjrkju. Tvö innbrot á tveimurvikum Brotist var inn (Breið- holtsskóla í fyrradag. Þetta er í annað skiptið sem brotist er inn í skólann á tveimur vikum. Að sögn skólastjóra er talið að um sama aðilann sé að ræða. Ummerkin eftir þjóf- in voru sóðaleg og virðist sem hann hafi ekki verið lengi að sópa út munum. Sigþór Magnússon skóla- stjóri, segir einnig að þetta hafi verið smærri hlutir en í síðasta innbroti sem auð- veldara er að selja. Hann telur ólíklegt að það hafi verið nemandi sem framdi verknaðinn og treystir lögregl- unni til að finna hinn seka. Brýntað gæta öryggis „Mér finnst nauðsynlegt að taka það til skoðunar þegar á íslandi eru margar af bestu veiði- ám heims og það em mikil verð- mæti fólgin í þeim," segir Siv Friðleifsdóttir alþingismaður um fyrirspurn sína á þingi til um- hverfisráðherra um hvort hún hyggist beita sér fyrir því að gerð verði úttekt á öryggismálum í sundlaugum landsins í ljósi um- hverfisslyssins í Varmá. Siv er sjálf mikili veiðiáhugamaður. Krefjast aðgerða gegn óhollustu Transfitusýrur em óhollar og almenningur á rétt á að þessar fitusýrur verði takmarkaðar í mat- vörum eins og kostur er. Neytenda- samtökin hafa sent umhverfisráð- herra og heilbrigðisráðherra bréf þar sem óskað er eftir aðgerðum til að draga úr notkun á transfitusýr- um. Lyfjastofnun Bandarfkjanna hefur úrskurðað að ekki sé til neitt öruggt viðmið þegar transfitusýr- ur em annars vegar og því er fram- leiðendum í Bandaríkjunum skylt að upplýsa um magn transfitusýra á umbúðum. Þannig geta neytend- ur forðast matvæli sem innihalda transfitusýrur kjósi þeir það. Hafdís H. Hákensson öryrki segir að hún gæti gleymt því að halda jól ef ekki væri fyrir Fjölskylduhjálpina. Hún kemur þangað vikulega og fær mat fyrir tvíburasyni sína tvo. Hafdís segir frá veikindum þeirra með tárin í augunum. Hún sér ekki fram á að komast út úr þessari neyð. Blaðamaður DV var við fyrstu jólaúthlutun ársins hjá Fjölskylduhjálpinni í gær. Ragnhildur Gísladóttir aðstoðaði við úthlutunina og vill hún opna augu fólks fyrir því meini sem fáktækt á íslandi er. ERLA HLYNSDOTTIR bladamadur skrifar: erla<í»dv.is „Mér finnst hrikalega erfitt og leið- inlegt að þurfa að koma hingað, og skammast mín fyrir það. Þetta er al- gjör pína," segir Hafdís H. Hákensson öryrki sem hefur ámm saman leitað til Fjölskylduhjálparinnar vegna fátækt- ar. Vonleysið skín úr augum þeirra sem bíða í röð eftir jólaúthlutun Fjöl- skylduhjálparinnar. „Það er hryllilegt að standa í biðröð í von um að grípa brauðmola sem kannski er farinn þegar kemur að þér," segir hún. Þegar hafa um 400 fjölskyldur skráð sig hjá Fjölskylduhjálpinni og óskað eftir jólaaðstoð. Fyrsti úthlut- unardagurinn var í gær og fengu um hundrað manns matvæli fyrir jólin. Alvarlega veikir synir Hafdís er einstæð móðir og öryrki. Hún á 15 ára tvíburadrengi sem báð- ur em veikir, annar er ofvirkur með athyglisbrest en hinn með melting- arsjúkdóm. „Ég á ekki fyrir mat ofan í mig og þarf að koma hingað í hverri einustu viku til að eiga mjólk og brauð handa drengjunum. Ástandið hefur verið miserfitt hjá mér. Stundum hef ég komið einu sinni í mánuði en núna þarf ég að koma í hverri viku og fá mat," segir Hafdís um bága fjárhagsstöðu sína. Tárin streyma niður kinnarnar Synir Hafdísar þurfa báðir á öllum hennar tfrna að halda. „Þeir em með umönnunarkort vegna lyfjakostnaðar. Annars væri þetta ekki hægt." Hún segir annan son sinn mjög erfiðan í samskiptum og hann eiga nl að eyðileggja hluti. „Hinn lá lengi inni á Bamaspítala Hringsins," segir Hafdís og greinilegt er að henni finnst erfitt að ræða veikindi drengjanna. „Hann er nýlega hættur á lyfjum en er að byrja aftur að veilq'ast," segir hún með ekka og brátt fyllast augu hennar af tárum sem streyma síðan rólega niður kinnarnar. Án barnanna um jólin Hafdís flutti hingað til lands frá Svíþjóð árið 1991. Hún á enga Hafdís H. Hákensson Hafdís er einstæð móðir og öryrki. Hún þarf að leita á náðir Fjölskylduhjálpar (hverri viku til að hafa í sig og syni sína tvo og segir gífurlega erfitt að vera (sKkri neyð. ættingja hér nema synina tvo. Þrátt fyrir jólaaðstoðina getur hún ekki verið með þá hjá sér um jólin. Þeir verða hjá föður sínum þar sem fjárráð hans em rýmri en Hafdísar. Aðstoðin kemur sér þó vel og segist hún alveg geta gleymt jólahaldi ef ekki væri fyrir Fjölskylduaðstoðina. Þrátt fýrir erfiðan fjárhag reynir hún að halda í stoltið. „Fólk sem lítur niður á þá sem þurfa að leita sér hjálpar vegna fátæktar á bágt í sálinni," segir hún. Hún segist ekki geta hugsað til þess hvernig lífið væri án Fjölskylduhjálparinnar. „Það væri hræðilegt. Ætli maður yrði ekki að finna einhverja karla til að hjálpa sér. Hvað ætti einsömul kona að gera annað? Ég veit það ekki. Kannski betla?" segir Hafdís í spumartón. Hún hefur sem betur fer ekki komist í þá að- stöðu. Sjálfboðaliðar gefa til baka JóhannSteingrímssonersjálfboða- liði hjá Fjölskylduhjálpinni. Hann var áður skjólstæðingur. „Það gefur mér bara svo mikið að geta aðstoðað aðra," segir hann, spurður um ástæðu þess að hann lætur verkin tala. „Ég er öryrki og þurfti sjálfur lengi að leita eftir aðstoð hér. Nú get ég gefið af mér til baka," segir hann brosandi og nýtur þess sannarlega að geta hjálpað fólki í jólaösinni. Ragnhildur Gísladóttir tónlistar- maður er vemdari Fjölskylduhjálpar- Verndari Fjölskylduhjálpar Ragnheiður Gfsladóttir gekk til liðs við Fjölskylduhjálpina á haustmánuðum og aðstoðar þar reglulega ásamt Bryndísi dóttursinni. innar en hún tók við því hlutverki af Bryndísi Schram á haustdögum. Ragnhildur segir sitt helsta markmið með starfinu að opna augu fólks fyrir þeirri neyð sem ríkir í íslensku samfélagi þrátt fyrir hina augljósu velmegun. Barðir niður í lífinu Dóttir Ragnhildar, Bryndís Jakobs- dóttir söngkona, kemur oftmeðmóður sinni og aðstoðar í Fjölskylduhjálpinni en fyrir utan hina árlegu jólaaðstoð er þar opið alla miðvikudaga. „Okkur brá alveg rosalega þegar við komum Jiingað fyrsL Ég gerði mér enga grein fyrir hversu margir em illa staddir og hafa verið barðir niður í lífinu. Þá á ég til dæmis við örorku, gjaldþrot og alvarleg veildndi. Þegar slíkt gerist getur verið erfitt að reisa sig upp á ný og hafa ofan í fjölskylduna. Þetta getur komið fyrir alla," segir Ragnliildur. Hún heldur að margir hreinlega vilj i ekki sjá það vandamál sem fátækt er í íslensku samfélagi. „Fólld finnst þetta óþægileg staðreynd," segir Ragnhildur sem hvetur alla til að láta til sín taka. „Það þarf ekki að gera mikið til að hjálpa sínum minnstu bræðrum. Ef allir leggjast á eitt getum við áorkað gífurlega mildu," segir hún. ,,/íí, ég er hlyimlur því tu) olíuveröid sé hluli afvísitölu neyslu- verös. Nutkun ú olíu er hluti af neyslu landsmanna ogþessi vísi- >tala er notuö til þess aö tnœla Iwernig viö eyöum okkar pening- unt.,“ segir Ágúst Ólafur Agústsson alþingismadur. Hann jfp® hendir á aö þaö ntyndi gefa ranga ntynd afneysluvenjuni landsntanna ef þessi eini þáttur væri tekinn út úr mæl- ingunni. I’aö væri eins og aö taka liitamælinn úr sam- bandi. 1„Séu ntenn ásáittir viö einhverja þætti íþessari mældu neyslu er eklci liægt aö takast á viö þaö meö því aö hætta hara aö mæla. Þá væri alveg einshœgt aö taka tóhakiö út. F.öa húsnæöisveröiö, sem ofl er rætt tim," segir Ágúst Ólafur. Hann segir aö hreytingar á olíuveröi hafi álirif á vexti og veröhólgu komi til vegna hinnarsérslöku i'erötiyggingar sem notast sé viö Itér á landi. „Þaö er i rauninni veröhólgan sent er okkar helsti óvin- ur og viö þiirfum aö beita ölluni tiltækum ráöum til þess aö ná lieniii niöur. Þaögerum viö ekki meö því aö strípa visitöluna af einstökum þáttum." JÓHANNES GUNNARSSON, formaöur Neytendasamtakanna Eykur áþján „Þager maður sér hvaða áhrifþœttir eins og eldsneyti og húsnœðisverð hafa á lánakjör fólksins í landinu er ansi freistandi aö fara að plokka einstaka liði út úr vísitölunni. Það er hins vegar það hvernig þessi vísitala er tengd við lánin sem hefur mest neikvœð áhrifog eykur mjög á verðtryggingaráþján heimilanna," segir Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytendasamtakanna. Hann segir að sjálf vísitalan eigi þó helst aföllu að mœla og endurspegla raunverulegar verðbreytingar í samfélaginu. „Þessar vísitölur eru notaðar víðast hvar. Það er svo annar handleggur að tengja lánin við vísitöluna." Jóhannes bendir á að hin raunverulega spurning cetti því að lúta að því hvaöa mceling sé notuð til þess að reikna út vexti á verðtryggðum lánum. „Hlutum iþeirri mœlingu hefuráður verið breytt og það er alls ekkert heilagt við það að hvernig þetta er gert í dag. En vísitala neysluverðs verður helst aföllu að fá að halda áfram að mœla raunverulegt verðlag." Á OLÍUVERÐ AÐ TILHEYRA VÍSITÖLU NEYSLUVERÐS? ÁGÚST ÓLAFUR ÁGÚSTSSON alþingismaður MEÐOGÁMÓTI

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.