Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.2007, Side 6
6 FIMMTUDAGUR 13. DESEMBER2007
Frittir OV
A __
DV
FRÉTTIR
Freyjavalin
kona ársins
Freyja Haraldsdóttir var valin
kona ársins 2007 af tímaritinu
Nýju Lífi en valið var tilkynnt í
afrnælisveislu tímaritsins sem
haldin var á Hótel Borg í gær.
Freyja hefur ferðast milli skóla
og flutt fyrirlestur sinn „Það eru
forréttindi að lifa með fötlun"
sem hefur það markmið að opna
augu fólks fyrir því að hægt er að
lifa góðu lífi með fötlun ef aðstoð
er næg. Freyja gaf nýlega út
bókina Postulín ásamt vinkonu
sinni Ölmu Guðmundsdóttur, en
hún fjallar um líf Freyju sjálffar.
Vísitala neyslu-
verðs hækfar
Vísitala neysluverðs hefur
hækkað um 0,68% frá síðasta
mánuði og er ársverðbólgan
orðin 5,9%. Mesta hækkunin
var rekstarkostnaður bifreiða,
þar sem bæði verð á eldsneyti
og bifreiðum hefur hækkað.
Næst koma matur og drykkir.
í húsnæðismálum hafa
vextir hækkað en hafa engin
áhrif á heiidarvísitölu. Á vef
Alþýðusambands íslands
segir að hefðu breytingar á
vísitölu neysluverðs ekki orðið
1. mars síðastliðinn, mældist
verðbólgan 7,7% sem þýðir
að undirliggjandi verðbólga
er mikil.
Harðurárekstur
íReykjanesbæ
Kona slasaðist alvarlega í
hörðum árekstri við Njarðarbraut
í Reykjanesbæ síðdegis í gær.
Fjórir aðrir slösuðust en minna.
Atburðarásin var á þann veg
að tveir bflar úr gagnstæðri
átt skullu saman með þeim
afleiðingum að annar þeirra
lenti út af veginum. Brunavarnir
Suðurnesja þurftu að klippa
ökumann bflsins út. Hinn bflinn
valt á hliðina. Kona var flutt á
Landspítala - háskólasjúkrahús
og lítið vitað um líðan henanr að
svo stöddu.
Þjófar gómaðir
Þýfi fannst við húsleit lög-
reglu í austurborg Reykja-
víkur í gær. Lögreglan hefur
unnið að rannsókn innbrots í
Austurbæjarskóla sem átti sér
stað um síðustu helgi. Ýipsu
var stolið úr skólanum, svo
sem myndavélum, tölvum og
myndvarpa, en þjófnaðurinn
uppgötvaðist á sunnudag. f
framhaldi af rannsókn lög-
reglu voru gerðar húsleitir og
í einni þeirra fannst þýfið úr
Austurbæjarskóla en einnig
æduð fíkniefni, 8 útieftirlits-
myndavélar og flatskjár sem
líklega er þýfi.
Sævar Pétursson, framkvæmdastjóri Sporthússins, tekur undir gagnrýni Björns
Leifssonar í World Class. Báöir hafa þeir kært samstarf Kópavogsbæjar og
líkamsræktarstöðvarinnar Nautulus en þeir segja báðir að Kópavogsbær hafi
niðurgreitt rekstur líkamsræktarstöðvarinnar. Gunnar Birgisson gefur lítið fyrir
þessar ásakanir og vísar í úrskurð Samkeppniseftirlitsins.
KÆRUR UR OLLUM ATTUM
VALGEIR ÖRN RAGNARSSON
blaðamoður ikrifar: valgeiriodv.is
„Þetta er ofboðslega mikil hjálp
frá bæjarfélaginu gagnvart einum
aðila. Þó að þeir vilji ekki viður-
kenna það er augljóst að Kópavog-
sbær niðurgreiðir reksturinn," segir
Sævar Pétursson, framkvæmdastjóri
Sporthússins, sem hefur aðstöðu
sína í Kópavogi. Björn Leifsson,
framkvæmdastjóri World Class,
gagnrýndi í DV í gær bæjaryfirvöld
í Kópavogi fyrir að hygla
líkamsræktarstöðinni Nautulus um-
fram aðrar þar sem reksturinn sé
niðurgreiddur í gegnum sundkort
sem bærinn selur. Sævar tekur undir
þá gagnrýni.
„Nýlega ætlaði ég að kaupa árskort
í sund fyrir son minn, mér var tjáð að
sundkortið kostaði 17.500 krónur, en
ef ég bætti 2.400 krónum við fengi
ég einnig árskort í líkamsrækt," segir
Sævar og bætir við: „En við það að
starfsmaður Kópavogsbæjar selji
kortið með þessum hætti, er augljóst
að hagnaður bæjarins fer úr 17.500
krónum niður í 7.000 krónur," en það
er upphæðin sem rennur til Kópa-
vogsbæjar af seldum árskortum í
líkamsræktarstöðina Nautulus.
Verulega gruggugt
Sævar segir alveg ljóst að samstarf
Nautulus og Kópavogsbæjar hafi
gríðarleg áhrif á rekstur Sporthússins.
„f sjálfu sér skerðir þetta minn
samkeppnisgrundvöll. Ég þurfti að
lækka verð mitt þegar þeir komu á
markað. Málið er að fyrir sjö þúsund
krónur er Nautulus að kaupa sér
starfsmann, daglegt uppgjör, pappír,
sápur, heitt vatn og fleira. Það sér það
hver maður að það er ekki nokkur
möguleiki að sú upphæð geti staðið
undir kostnaði."
Sævar segir að fyrir sér líti málið
út eins og Kópavogsbær sé að hygla
tilteknum einstaklingum. „Manni
finnst eitthvað mjög gruggugt í
þessu, því það er alveg pottþétt
að ef Kópavogsbær selur árskort í
sund á sjö þúsund er bullandi tap
á rekstrinum. Það er engin leið að
reka þau mannvirki sem tilheyra
sundlauginni fyrir þann pening."
Hann bendir á að sér finnist
langeðlilegast að samstarfið sé
rekið með þeim hætti sem gert
er hjá World Class í Laugum, þar
sem eigendur fyrirtækisins greiða
sjálfir samkvæmt teljara fyrir heim-
sóknir í sundlaugina, auk þess sem
korthafar World Class verða að
nota búningskiefa stöðvarinnar.
„Þegar þú ert með djúpa vasa eins
og Kópavogsbær, þá er auðvelt að
færa krónur á miili og sætta sig við
tap á þessu en á sama tíma iabba
einkaaðilar burt með krónurnar frá
bænum, brosandi út að eyrum."
„Það er nú þannig að
sjaldan launar kálfur-
inn ofeldið!'
Sjaldan launar kálfurinn
ofeldið
Gunnar Birgisson furðar sig á
kærumálum þeirra Björns Leifssonar
og Sævars Péturssonar og segir
ekkert óeðlilegt við þessa starfshætti.
„Þegar Sævar kærði okkur hafði
hann ekki erindi sem erfiði. Aftur
á móti höfum við veitt honum frí
bflastæði við Sporthúsið og hann
hefur ekki þakkað fyrir það hingað
til. Það er nú þannig að sjaldan
launar kálfurinn ofeldið," segir hann.
Gunnar bendir á að samstarf Naut-
ulus og Kópavogsbæjar hafi upp-
haflega verið tilraunaverkefni en við
laugina í Versölum hafi Nautulus
einfaldlega átt hæsta tilboðið þegar
bærinn stóð fyrir útboði. „Það er alls
ekkert óeðlilegt í þessari stöðu."
Sævar Pétursson „Málið er
að fyrir sjö þósund krónur er
Nautulus að kaupa sér
starfsmann, daglegt uppgjör,
pappír, sápur, heitt vatn og
fleira. Það sér það hver
maður að það er ekki nokkur
möguleiki að sú upphæð geti
staðið undir kostnaði."
f R
Guðlaugur Þór Þórðarsson gagnrýnir málfutning Ögmundar Jónassonar:
Sölumiðstöð sjúklinga
Deilt um einkavæðingu Ögmundur Jónasson heldur fast I að heilbrigðisráðherra
stefni á að einkavæða heilbrigðiskerfið, þrátt fyrir mótbárur þess síðarnefnda.
„Hann óskar þess að við veitum
honum heimild til að setja á laggim-
ar sölumiðstöð sjúklinga," segir Ög-
mundur Jónasson, þingmaður vinstri
grænna, sem gagnrýnir harðlega frum-
varp Guðlaugs Þórs Þórðarsonar heil-
brigðisráðherra til breytinga á lögum
um almannatryggingar.
Ögmundur segir að með nýju frum-
varpi fari Guðlaugur Þór fram á að fá
óútfylltan tékka til að spila með í því
skyni að einkavæða heilbrigðisþjón-
ustuna.
Guðlaugur brást harkalega við
þessum ummælum á Alþingi í fyrra-
dag og sagði hvorki Ögmundi né þing-
inu til sóma að fara með slflcar rang-
færslur. „Að sá sem hér stendur hafi
farið fram á að einkavæða eigi allt sem
hægt er að einkavæða er ekki satt," seg-
ir Guðlaugur.
Ögmundur segir skort á fjár-
magni vera helsta vandamál heil-
brigðisþjónustu á íslandi. „Það er sá
vandi sem ríkisstjómin horfist ekki
í augu við," segir hann. Máli sínu til
stuðnings bendir hann á þau fjöl-
mörgu aðstandendafélög sjúklinga
á hjúkrunarheimilum sem hafa
ályktað í þá vem að sinna þurfi öldr-
uðum betur. Ögmundur vísaði til
þess að aðstandendafélög bæði Drop-
laugarstaða og Skjóls hafa sent frá sér
líkar ályktanir nýlega.
Ásta Möller, formaður heilbrigðis-
nefndar, mótmælir Ögmundi og segir
að í fjárlögum eigi að stórauka eigi
fjármagn til heilbrigðisþjónustunnar.
f frumvarpi Guðlaugs er gert ráð
fyrir að skilið verði annars vegar á milli
almennrar öldrunarþjónustu og hins
vegar heilbrigðisþjónustu fyrir aldraða.
Meirihluti heilbrigðisnefndar, undir
forrystuÁstu, bendirþó á að öldrun fylgja
oft veikindi og aldraðir einstaklingar
glíma oft við fjölþætta sjúkdóma. Þeir
einstaklingar þurfi ekki aðeins öldrunar-
og umönnunarþjónustu, heldur einnig
faglega heilbrigðisþjónustu.
erla@dv.is