Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.2007, Page 15
DV Sport
FIMMTUDAGUR 13. DESEMBER 2007 15
Rakel Dögg Bragadóttir, fyrirliði Stjörnunnar og islenska landsliðsins í handbolta, er á leið í aðgerð á öxl:
FYRIRLIÐINN FRÁÍ6VIKUR
Rakel Dögg Bragadóttir, leik-
maður og fyrirliði Stjörnunnar í
handbolta, þarf að gangast undir
aðgerð á öxl. Meiðsli hafa plagað
hana síðan í upphafi móts en hún
hefur bitið á jaxlinn og spilað þrátt
fyrir mikinn sársauka.
„Öxlin hefur verið slæm frá upp-
hafi tímabilsins, það byrjaði eigin-
lega um leið og við fórum að æfa
inni í sal eftir sumarfrí og þau hafa
í raun versnað og versnað. Ég hef
í raun ekkert getað æft síðan í lok
september. Bara spilað leikina.
Þetta er einhver kalkmyndun í
beininu, þannig að beinið klemm-
ir sinina í öxlinni þannig að öllu
því sem tengist að kasta boltan-
um fylgir sársauki. Það á að skrapa
beinið þegar ég fer í aðgerðina."
Rakel er einnig landsliðsfyrirliði
og fór fyrir landsliði íslands sem
náði frábærum árangri í Litháen,
þar sem liðið komst í umspil um
laust sæti á EM. Rakel spilaði fimm
leiki á sex dögum þrátt fyrir að hafa
ekkert æft með landsliðinu.
„Ég var í sjúkraþjálfun tvisv-
ar, þrisvar á dag þarna úti og við
náðum að halda meiðslunum
niðri. En það var sama sagan þar,
ég æfði ekkert með liðinu held-
ur spilaði bara. Þannig að þetta
er orðið bara hundleiðinlegt og
maður nennir ekki að vera svona
allt tímabilið."
Batinn eftir slíka aðgerð tekur
um sex vikur, því mun Rakel missa
af deildarbikarnum með Stjörn-
unni. Stjarnan er komin í jólafrí í
deildinni en liðið situr hjá í næstu
umferð í Nl-deild kvenna.
„Ég vona að það verði ekki
lengra en sex vikur. Það lítur út fyrir
að ég verði í fatla um jólin þannig
að maður kemst ekki í jólakjólinn,"
sagði Rakel og hló.
benni@dv.is