Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.2007, Page 16
16 FIMMTUDAGUR 13. DESEMBER 2007
Sport PV
Ragna Björg
Ingólfsdóttir
féll út í 16 manna
úrslitum á alþjóð-
legu móti í Róm.
RAGNA
SÁTT í RÓM
Ragna Björg Ingólfsdóttir,
badmintonkona úr TBR, gerði
góða ferð til Rómar og komst í 16
manna úrslit á alþjóðlegu móti á
ltalíu. Ragna sigraði stöllu sína Kati
Tolmoff, frá Eistlandi, í 32 manna
úrslitum 21-17 og 21-15.
Næst lék hún við Englendinginn
Elizabeth Cann og tapaði í tveimur
lotum, 21-18 og 21-14. Ragna var
sátt við niðurstöðuna, enda margir
af bestu badmintonspilurum heims
á mótinu.
Ragna var í 57. sæti heimslist-
ans fyrir mótið en fastleg má bú-
ast við að árangurinn fleyti henni
ofar á listann, en mótherjar hennar,
Tolmoff og Cann, sitja sem stendur í
48. og 39. sæti heimslistans.
Ragna sagði leikina hafa verið
erfiða. „Það var andlega erfitt að
spila við Kati því hún er mjög góð
vinkona mín en það var líkamlega
erfitt að spila við Cann, þar sem sá
leikur var aðeins klukkustund eftir
fyrri leikinn. Cann lét mig hlaupa
mikið í síðari leiknum en engu að
síður átti ég að geta gert betur. Ég
var óþolinmóð við að skora á hana
í stað þess að leika upp á að hún
gerði mistök. Eftir á að hyggja átti
ég að beita aðeins annarri taktík
en ég gerði, því ég get vel unnið
hana. Þetta var ekki einn af þessum
leikjum þar sem ég fann að ég átti
ekki möguleika, heldur gerði ég
fleiri mistök og því fór sem fór,"
sagði Ragna að mótinu loknu.
Ragna fer beint til Grikklands
en mótið þar hefst 15. desember
og býst hún við því að koraa heim á
Þorláksmessu. „Maður kemur bara
beint í jólasteikina," sagði Ragna,
en hún er mikil jólastelpa og bíður
spennt eftir að opna jólapakkana.
vidar@dv.is
Aðalsteinn Eyjólfsson, þjálfari kvennaliðs Stjörnunnar í handknattleik, var í gær
dæmdur í leikbann fram til 1. febrúar. Hann fékk að auki fimmtíu þúsund króna sekt.
Aðalsteinn er dæmdur fyrir ummæli sín um dómara leiks Fram og Stjörnunnar og hand-
knattleiksforystuna. Hann ásakaði hana um spillingu og sagði dómarana nákomna
Framliðinu og þjálfara þess.
f rökstuðningi aganefndar Hand-
knattleikssambands fslands segir að
Aðalsteinn hafi tjáð sig mjög um allt
sem við kom leiknum. Hann hefði
ekkert af því viljað draga til baka,
þrátt fyrir að hafa fengið til þess tæki-
færi, heldur ítrekað fyrri ummæli.
„Vó hann þar mjög að æru dómara,
svo nærri að það gæti varðað við ís-
lenska meiðyrðalöggjöf. Jafnframt
vændi hann HSÍ og dómaranefnd
um spillingu. Það verður að telj-
ast mjög alvarlegt þegar þjálfari fer
slíkum orðum um handknattleiks-
hreyfmguna. Líta verður á að þjálf-
arar jafnt sem leikmenn liða í efstu
deild eru fyrirmyndir barna og ungl-
inga og bera ábyrgð sem slíkir. Jafn-
framt er ljóst að órökstuddar dylgjur
í fjölmiðlum um dómara og stjórn-
endur handknattleikshreyfingarinn-
ar skaða hreyfinguna verulega út á
við." Aðalsteinn getur ekld áfrýjað
dómnum. Hjá skrifstofu HSf fengust
þær upplýsingar að bæði þjálfarar og
leikmenn hefðu fengið lengri dóma.
„ Ég er enn hálforðlaus. Ég er að
átta mig á lengd dómsins og hve yf-
irgripsmikill hann er. Hvort tveggja
kemur á óvart. Hann nær til allra
flokka á vegum sambandsins og ég
held að þetta sé þyngsti dómur sem
HSf hefur gefið út hvað þetta varð-
ar. Ég á eftir að skoða stöðu mína og
hvernig ég get snúið mér í henni með
lögfræðingi," sagði Aðalsteinn í sam-
tali við DV í gær.
Svæsnustu ummælin notuð
Aganefndin studdist við viðtöl frá
fjórum fjölmiðlum auk greinargerða
frá dómurunum og Stjörnunni. Að-
alsteinn segir forkastanlegt að hann
hafi ekki verið kallaður fyrir dóminn.
„Ég fæ ekki kost á að senda inn grein-
argerð. Aganefndin notar úrklippur
úr fjölmiðlum þar sem klipptar eru
saman svæsnustu yfirlýsingarnar.
Á þeim baðst ég afsökunar í öðrum
miðli."
Aðalsteinn segir orð sín hafa verið
slitin úr samhengi. „Ég er dæmdur af
ummælum í fjölmiðlum stuttu eftir
leik. Ég hef ekld viljað draga þau orð
til baka. Ef maður meinar það sem
maður segir þegar maður stendur í
eldlínunni, sem ég gerði, lagar það
ekki stöðuna að biðjast fyrirgefning-
ar til að forðast refsingar. Maður á að
vera dæmdur eftir þeim orðum sem
eru látin falla. Það hefúr gerst.
Ég hef beðist velvirðingar á orðinu
fyllirísfélagar. Einar (þjálfari Fram)
og Ómar (dómari) Jónssynir áttu það
ekki skilið. Þeir eru samt góðir kunn-
ingjar. Hjá mér átti að standa upp
úr sú spurning hvort eðlilegt væri
að vinir dæmdu úrslitaleiki hvor hjá
öðrum. Ég var reiður og fúll og lét
stór orð falla. Ég minntist einnig á
spillingu. Ég skýrði nánar á RÚV og
Stöð 2 hvað ég meinti með því. Það
var ekki teldð til greina. Það var ekki
sýnt. Ég sá ekki viðtölin en reiknaði
með að útskýringar mínar kæmu þar
ffarn. Hversu langt á það að ganga að
viðtal sé klippt svo það sé svæsið og,
krassandi? Hvers á einstaklingurinn
að gjalda? Ég spyr - er ekki hægt að
setja fjölmiðla í bann?"
Ekkert rautt á 15 ára ferli
Stjórn HSf bókaði á fúndi sín-
um í gær úlmæli til dómaranefnd-
ar sambandsins að senda eftirlits-
dómara á leiki Fram og Stjörnunnar
í meistaraflokki kvenna um óákveð-'
inn tíma. „Rétúætiskennd minni var
misboðið í leiknum. f honum komu
upp mál sem hreyfingin þarf að taka
á. Ég hef ekki verið í miklum deilum
við dómara, utan einn nefndarmann
dómaranefndar. Ég er meðal þeirra
þjálfara sem hafa fengið fæst spjöld.
Ég man ekki efúr að hafa fengið rautt
spjald á fimmtán ára dómaraferli."
Aðalsteinn missir af fjórum úr-
valsdeildarleikjum Stjörnunnar í
janúar auk deildarbikarkeppninnar
sem fram fer milli jóla og nýárs.
Aganefndin tók einnig fyrir um-
mæli Einars Jónssonar, þjálfara
Fram, en hann kvartaði undan dóm-
urunum. Hann hefur dregið ummæli
sín til baka og beðið dómarana af-
sölcunar á þeim. Einar var ávíttur og
áminntur úm að gæta að orðum sín-
um við fjölmiðla í hita leiksins. gg
Bannaður „Ef maður meinar það sem maður
segir þegar maður stendur í eldlínunni, sem ég
gerði, lagar það ekki stöðuna að biðjast fyrirgefn-
ingar til að forðast refsingar. Maður á að vera
dæmdur eftir þeim orðum sem eru látin falla."
Sá besti!
Sá flottasti!
[ £ J j | \ M B ^ |H| I
mm\ l.W f W N Cristiano Ronaldo
m ' r~y: mj ■ -V- P'Á
Guðjon Ingi Eiríksson • A ~ . _
Ný bók um
undrabarnið
Cristiano
Ronaldo
Þessa bók
verða allir
knattspyrnu-
fíklar að eiga!
BÓKAÚTCÁFAN HÓLAR
Lyon og Fenerbahce seinust inn:
Lyon svekkti Rangers
Lyon og Fenerbahce nældu sér í
seinustu lausu sæún í 16 liða úrslitum
Meistaradeildarinnar. Lokaumferð
riðlakeppninnar fór fram í gærkvöldi.
Lyon þurfti að vinna Glasgow
Rangers á Ibrox og tókst það. Karim
Benzema skoraði tvö mörk í lokin en
Sydney Govou kom Lyon yfir. Jean-
Claude Darchevill klúðraði gullnu
færi til að jafna og koma Rangers
áffarn þegar hann skaut yfir af mark-
teig.
„Við stjórnuðum leiknum í seinni
hálfleik en þeir geta slátrað liðum.
Mér fannst við byrja ágæúega en
misstum dampinn efúr fyrsta mark-
ið. Það versta var annað markið því
við æúuðum að skipta um leikmann
og auka pressuna. Við fengum aldrei
tækifæri úl þess," sagði Walter Smith,
stjóri Rangers.
Eiður Smári Guðjohnsen lék 52
mínútur fyrir Barcelona sem sigraði
Stuttgart 2-1. Börsungar unnu í E-
riðli.
Sex sárir í Róm
Fenerbahce hélt öðru sæú G-rið-
ils með 3-1 sigri á CSKA Mosvku.
Ugur Boral skoraði tvö mörk fyrir
Fenerbahce og Alex eitt. Tyrkneska
liðið lenú undir þegar Edu skoraði
sjálfsmark.
Fimm stuðningsmenn Manchester
United og einn Rómverji þurftu á
sjúkrahús í Róm vegna stungusára
efúr að áhangendum United og Roma
lenú saman fyrir leildnn. Ástand
þeirra var ekki talið alvarlegt. Tveir
Bretar voru handteknir. Leik liðanna
íF-riðlilaukmeð 1 -ljafntefli. Gerard
Pique kom United yfir en Mancini
jafnaði í síðari hálfleik. gg