Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.2007, Side 32
Björn að hætta?
Tímaritið Mannlíf telur sig hafa
traustar heimildir fyrir því að Björn
Bjarnason dómsmálaráðherra láti
af þingmennsku og ráðherradómi
á fyrri hluta næsta árs. Þetta kemur
fram í úttekt tímaritsins á væringum
innan Sjálfstæðisflokksins þar sem
armar Davíðs Oddssonar, fyrrver-
andi formanns, og Geirs H. Haarde
forsætisráðherra togast enn á um
áhrif og völd í flokknum.
f Mannlífi, sem kemur í verslanir
í dag, er Sjálfstæðis-
flokknum líkt
við Kötlu - hann
sé kominn að
gosi. Allt sé enn
þá slétt og fellt
á yfirborðinu
en undir niðri
kraumi illdeilur
smðningsmanna
Geirs Haarde
við gamla hirð-
menn Davíðs
Oddssonar.
Með brotthvarfi
Björns munu
áhrifDavíðsí
flokknum minnka
enn frekar.
Fólki mismunað
Aldraðir, fatlaðir, konur og
ýmsir minnihlutahópar eru þeir
hópar sem verða mest út undan
þegar kemur að neyðaraðstoð
í kjölfar hamfara. Þetta kemur
fram í árlegri skýrslu sem Alþjóða
Rauði krossinn gefur út og hefur
þann tilgang að gera úrbætur á
þáttum sem koma hvað verst út
úr hamförum. Talið er að þessir
jaðarhópar hafi ekki getu í að
hjálpa sér sjálfir og verði því
undir. í kjölfarið vinnur Rauði
krossinn að því að gera úrbætur
auk þess sem mannúðarsamtök
þurfa að taka ábyrgð á að
mismuna ekki hópum.
Varði gyðinga
Hassan Askari múslimi er nýj-
asta hetja New York-borgar eftir
að hafa varið gyðingapar fyrir árás
hóps kristinna í neðanjarðarlest
borgarinnar. Hópurinn réðst að
parinu eftir að það hafði óskað
gleðilegrar Hanukkah, ljósahátíðar
gyðinga. Askari kom þeim til varnar
og náði að toga í neyðarhemil
lestarinnar. ,„Ungur múslimi
sem kemur gyðingi til bjargar á
ljósahátíðinni. Þetta er kraftaverk"
sagði Walter Adler, 23 ára, annað
fórnarlambanna. Sjálfur vildi Askari
gera lítið úr hetjudáðinni og sagðist
einfaldlega hafa gert það sem
foreldrar hans kenndu honum.
Eru súlur á Elliðavatni?
FRÉTTASKOT
51 2 70 70
DV borgar 2.500 krónurfyrir fréttaskot sem leiðirtil frétta.
Fyrir fréttaskot sem verður aðalfrétt á forsíðu greiðist 25.000 krónur.
Fyrir besta fréttaskot vikunnar greiðist allt að 50.000 krónur.
Allseru greiddar 100.000 krónurfyrir besta fréttaskot hvers mánaðar.
FIMMTUDAGUR 13. DESEMBER 2007 ■ DAGBLAÐIÐ VlSIR STOFNAÐ 1910
/
/
/
/
/
/
/
/
/
/
Á
Ásgeir Davíðsson veitingamaður hefur næmt auga fyrir veiðiþjófum:
GEIRIA GOLDFINGER ER
V0RDUR ELLIÐAVATNS
VALGEIR ÖRN RAGNARSSON
blaðamoður skrifar: valgeimdv.is
hannað með tiiliti til veiðivörslunnar,
meðal annars gemr Geiri fylgst með
allri hreyfingu á vatninu í gegnum'
sjónauka úr stofuglugganum.
„Já, svo segir óðalsbóndinn sjálfur,
Þorsteinn Hjaltested, sem á vatnið,"
segirÁsgeirDavíðssonveitingamaður
um starf sitt sem veiðivörður við Ell-
iðavam. Ásgeir, sem gjarnan er þekkt-
ur sem Geiri á Goldfinger, tók við
starfinu fyrir um það bil einu og hálfu
ári. „Þetta kom til út af því að ég var
að ræða við Steina um þetta starf,
enda barðist ég fyrir föðurlandið í
þorskastríðinu á sínum tíma, þannig
að ég hef næmt auga fyrir þessum
veiðiþjófum," segir hann.
Geiri á stóra lóð við Elliðavatn og
er nú um stundir að byggja sér glæsi-
legt einbýlishús við vatnið. Húsið er
Flott að fá varðskip
Samkvæmt lögum er bannað að
sigla á mótorbáti um Elliðavatn en
Geiri er einmitt með slíkan bát við
bryggju við vatnið. „Veiðivörðurinn
er eini maðurinn sem má sigla um á
mótorbát, þannig að það varð bara
að gera mig að veiðiverði. Ég nota
mótorinn þó sparlega og set hann
aðeins í gang í neyðartilfellum."
Geiri víkur aftur að þorskastríð-
inu og landhelgissgæslunni. „Þetta er
ábyrgðarmikið starf og ég hef ágætis
stjórn á þessu, en ég þarf að viðra það
við Georg Lárusson hvort ég fái ekki
eitt af varðskipunum á vamið. Ég gæti
þurft að hafa afskipti af fólki úr öllum
stéttum þjóðfélagsins sem hefur verið
að reyna að stela sér fiski úr vatninu til
matar."
í Landhelgisgælsunni Ásgeir
Davíðsson barðist fýrir föðurlandið.
svo verið með hríðskotabyssu uppi á
dekki," segir hann og skellir upp úr.
Jafnvel þó starfið sé að hans sögn
ábyrgðarmikið þiggur hann ekki laun
fyrir vikið. Aðspurður hvort hann hafi
lent í því að þurfa að beita því valdi
sem Þorsteinn Hjaltested fól honum,
svarar hann: „Já, já, maður hefur
Ekki á skrá
Hjá Landbúnaðarstofnun fengust
þær upplýsingar að almenna regl-
an væri sú að veiðifélög viðkom-
andi veiðivatns hefðu það hlutverk
að tilnefna veiðiverði til Landbún-
aðarstofnunar sem svo skipaði í starf-
ið að vel athuguðu máli. Nokkrir
veiðiverðir við Elliðavam hafa verið
skipaðir formlega síðusm. mánuði,
en samkvæmt upplýsingum er Ásgeir
Davíðsson þó eldd formlega á skrá
semveiðivörðurviðvatnið. Geirilæmr
formlegheitin hins vegar ekki trufla sig
og ætlar að sinna áfram hlutverki sínu
sem veiðivörður af ábyrgð og festu.
Bruni á Seltjarnarnesi Þriggja barna móðir kom að íbúð sinni í Ijósum logum í gærmorgun eftir að hafa gleymt eldavél sem kveikt
var á. Eldhúsið er gjörónýtt og miklar reykskemmdir eru I íbúðinni og þarf fjölskyldan að dvelja annars staðar yfirjólahátíðina.
Talsmenn launþega undrast kyrrþey Kjararáðs:
Topparnirfá launahækkun
Kjararáð hefur ákveðið að hækka
laun þeirra sem undir það heyra
um 2%. Meðal þeirra sem hljóta
launahækkun eru æðsm embætt-
ismennlandsins, þingmenn, ráðherr-
ar og dómarar. í samtali við DV segir
Guðrún Zoéga, formaður kjararáðs,
að hækkanirnar séu í samræmi við
almennar launahækkanir. Kjararáð
starfi eftir þeim forsendum að taka
mið af öðrum stéttum.
Á sama tíma standa yfir kjaravið-
ræður milli stéttarfélaga, stjórnvalda
og samtaka atvinnulífsins. Tillögurn-
ar miða að því að bæta kjör þeirra
lægst launuðu og er tekið mið af
slæmum horfum í efnahagsmálum.
Gylfi Arnbjörnsson, framkvæmda-
stjóri Alþýðusambands íslands, vissi
ekki af þessum hækkunum kjararáðs
Fá hækkun Meðal þeirra sem hljóta
launahækkun um áramót eru ráðherrar,
þingmenn og dómarar.
þegar DV hafði samband við hann í
gær. Hann segir mjög vandsamlegt
að taka launaumsögn frá kjararáði
þegar meginþorrinn á vinnumark-
aðnum fær enga launahækkun og
telur að ákvarðanir kjararáðs eigi að
taka mið af almennri þróun á vinnu-
markaðnum. „Þessi ákvörðim kjara-
ráðs skýtur mjög skökku við. Það
birtist ekkert um þetta og er líkt og
kjararáð starfi í kyrrþey. Þetta kem-
ur alls ekki til með að auðvelda þær
kjaraviðræður sem fram undan eru,"
segir Gylfi.
Gunnar Páll Pálsson, formaður
VR, staðfesti í samtali við DV í gær að
beinar launahækkanir miðist að um
40% félagsmanna. Gunnar Páll segir
að þetta sé gert til að ná til þeirra sem
ekki hafa notið launaskriðsins að
undanfömu og vegna spá um dökka
framtíð í efnahagshorfum. Hann segir
ákvörðun kjararáðs vissulega hafa
truflandi áhrif á kjaraviðræðumar.
Konurfá
lægri laun
Konur sem starfa í ráðu-
neytum fá lægri laun en karl-
ar. Þetta kemur fram í nýlegri
launakönnun Félags háskóla-
menntaðra starfsmanna. Þar
segir líka að karlkyns starfsmenn
ráðuneyta séu með 374 þúsund
að meðaltali í dagvinnulaun
en konur tæplega 350 þúsund.
Heildarlaun karlmanna em 519
þúsund en kvenna 417 þúsund.
Eftir því sem DV kemst næst
gætir töluverðrar óánægju
meðal starfsmanna sökum
launamunarins og þá einkum í
hópi háskólamenntaðra kvenna.
Niðurstöður em ekki flokkaðar
eftir launagreiðslum einstakra
ráðuneyta enda var nafnleynd
meginforsenda könnunarinnar.
Myndir
teknar niður
Búið er að taka niður plaköt og
myndir af Madeleine McCann í
bænum Praia da Luz. Bæjarbúar
segjast þó ekki vera búnir að gleyma
stúlkunni sem hvarf þar fyrr á árinu.
Atburðurinn hefur stjórnað að
miklum hluta lífi og starfi bæjarins
og finnst sumum einfaldlega
kominn tími til að fá gamla bæinn
sinn aftur. Þetta hefur tekið mikið á
fólkið. Rannsóknarmenn vinna þó
enn að málinu og yfirheyra alla sem
í bænum vom þegar hvarfið varð.
Litlrir samloknr 399 kr.
+ h'tiá gosglas 100 kr.
= 499