Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.2008, Side 7

Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.2008, Side 7
DV Fréttir MÁNUDAGUR 7. JANÚAR 2008 7 Nokkrir íslendingar lentu í því fyrir jólin að vera boðin hollensk potta- og hnífasett til sölu. Sölumennirnir sögðu að pottasettin væru tugþúsunda króna virði en sögðust reiðubúnir að gefa veglegan afslátt þar sem þeir væru að missa af flugi. Formaður Neytendasamtakanna hvetur fólk til að vera á varðbergi gagnvart slíkum sölumönnum. Tómas Hafliðason lenti í einum farandsala sem vildi selja honum fimm pottasett. Hnífur Hollenska fyrirtækið hefur ekki getið sér gott orð fyrir sölumennsku sína.Tómasi voru boðin til sölu fimm pottasett fyrir lítinn pening en fyrirtækið selur einnig hnífasett. Vafasamt Jóhannes segir að slíkir viðskiptahætt- ir séu vafasamir. Staða neytandans gagnvart slíkum farandsölum geti verið vandasöm. J 1 EINAR ÞÓR SIGURÐSSON blaðamaður skrifar: einarodv.is „Farandsalar þurfa að sækja um sérstök leyfi til að stunda viðskipti sín og ég hvet fólk til að vera á varðbergi gagnvart grunsamlegum sölumönn- um,“ segir Jóhannes Gunnarsson, for- maður Neytendasamtakanna. Nokkrir íslendingar lentu í því fyrir jólin að hol- lenskir farandsölumenn buðu til sölu potta- og hnífasett með miklum af- slætti. Sagan var ætíð eins: Þeir höfðu komið til íslands með pottasettin til að sýna þau á matvælasýningu. Um var að ræða sett sem ekki höfðu selst á sýningunni og fyrirhöfnin við að flytja þau aftur til Hollands þótti ekki svara kostnaði. Settin voru frá hollenska fýrirtækinu Berghaus en á heimasíðu þess kynnir það framleiðslu sfna sem hágæðavöru. Sölumennfrnir sögðu að settin kost- uðu tugi þúsunda króna út úr verslun. Jólatrén sótt í vikunni Frá og með deginum í dag og fram á föstudag verða starfs- menn Reykjavíkurborgar á ferð- inni og sækja jólatré borgarbúa. íbúar eru beðnir að setja jólatré á áberandi stað við lóðarmörk og ganga þannig frá þeim að sem minnstar líkur séu á að þau fjúki en fjúkandi jólatré geta valdið miklum skemmdum. Eftir föstudag þurfa íbúar sjálfir að sjá um að koma jóla- trénu á næstu gámastöð Sorpu. Fólk er einnig hvatt til að hirða upp rusl eftir flugelda og þannig hjálpast að við að halda borginni hreinni. Þeir hefðu borgað virðisaukaskatt af settunum við komuna til landsins en þyrftu að fá virðisaukaskattinn endur- greiddann áður en heim var haldið. Varasöm viðskipti Jóhannes segir að Neytendasam- tökunum hafi ekld borist kvartanir vegna þessara viðskiptahátta. Hann setur spurningamerki við slíka sölu- mennsku og efast um að raunverulegt verðmæti potta- og hnífasettanna hafi verið jafnhátt og sölumennirnir gáfu til kynna. „Ég veit ekkert um gæði þessarar vöru sem verið var að bjóða en staða neytanda sem kaupir nýja vöru af farandsala getur verið snú- in ef hann þarf að leita réttar síns, til dæmis vegna galla í vörunni," segir Jó- hannes. Á heimasíðu hollenska fýrir- tældsins er tekið fram að 30 ára ábyrgð fýlgi með vörunni sé hún keypt í Evr- ópu. Segir Jóhannes að erfitt geti verið að sækja rétt sinn sé farandsalinn far- inn úr íandi og engin kvittun hafi fylgt með kaupunum. Jóhannes segir að slík- ir viðskiptahættir séu vafasamir og hvetur neytendur til að vera á varðbergi og velta vöngum áður en kaup séu gerð. Missa af flugi Tómas Hafliðason fékk heim- sókn frá sölumanni sem reyndi að selja honum fimm pottasett á lít- inn pening 20. desember. Hann kom í verslun hans við Smiðjuveg. Tómas segist fullviss um að hann væri hollenskur þar sem hann bjó í Hollandi um árabil. „Hann var mjög trúverðugur, var mjög snyrti- lega klæddur á flottum bílaleigubíl og sýndi mér meira að segja nafn- spjald," segir Tómas. Tómas segir að Hollendingur- inn hafi sagt að settin kostuðu um hundrað þúsund krónur en hann gæti fengið þau fyrir mun minni upphæð, eða þá upphæð sem hann borgaði í virðisaukaskatt þeg- ar hann kom til landsins. Hann þyrfti að losna við settin sem fyrst því hann væri að missa af flugi. „Ég sagði honum að ég hefði ekkert við fimm pottasett að gera. Ég benti honum á að fara í kjötvinnslu sem er hérna rétt hjá en ef hann yrði al- veg í vandræðum mætti hann leita til mín. Þeir virðast ná að höfða inn á sérstakar tilfinningar fólks og virðast ná að vekja samúð hjá fólki," segir Tómas. Umræður á netinu Umræðusíður hafa sprottið upp á netinu vegna viðskiptahátta Berghaus-fýrirtækisins hollenska. Á vefsíðunni robbevan.com er að finna umræður frá árinu 2004 um vörurnar sem fyrirtækið hefur selt. Þar er að finna nánast nákvæm- lega sömu reynslusögur og íslensk- ir neytendur hafa frá að segja. Fólk er misjafnlega ánægt með vörurnar því þrátt fyrir óánægju margra lýsa nokkrir yfir aðdáun sinni á hnífa- og pottasettunum sem þeir hafa keypt. Flestir lýsa þó yfir undrun sinni á viðskiptaháttum hollenska fyrir- tækisins sem hefur þvertekið fyr- ir að stunda slíka sölumennsku. Það sé einkennileg sölumennska að láta líta út fyrir að varan sé dýr- ari en hún raunverulega er og sölu- maðurinn þurfi að losna við hana strax. Jóhannes segir að slíkir við- skiptahættir séu vafasamir og hvet- ur neytendur til að vera á varðbergi og velta vöngum áður en kaup séu gerð. „Neytendur eiga rétt á að rifta kaupum á vöru sem er seld á þenn- an hátt innan fjórtán daga án nokk- urrar skýringar. Það getur verið erf- itt ef salinn er farinn úr landinu og enginn veit hvar hann er að finna." Miðað við núverandi aðstæður er um tveggja klukkustunda akstur frá Isafjarðarbæ að Hvestu, auk þess sem heiðarnar þar á milli geta verið ófærar allt að nokkra mánuði á hverj- um vetri. Til að auðvelda samgöng- ur er þeirri hugmynd varpað fram í skýrslunni að gera göng á milli Dynj- andisvogs og Geirþjófsfjarðar. Aðalsteinn Óskarsson, nýkjör- inn framkvæmdastjóri Fjórðúngs- sambandsins, viðurkennir að vakta- vinnufólk sé ekki líklegt til að vilja aka þarna á milli daglega en telur annað mögulega gilda um stjórn- endur sem síður þurfa að ferðast til að geta sinnt starfi sínu. Aðalsteinn segir ekki tímabært að meta hvort olíuhreinsistöð á Hvestu sé raunhæf- ur kostur. Nú þegar skýrslan liggi fyr- ir sé næsta skref að heyra frá mögu- legum viðskiptaaðilum. eria@dv.is Óheppileg umræða vegna olíuhreinsistöðvar. Vestfirðingumattsaman „Þarna er verið að etja fólki sam- an um eitthvað sem er ekki víst að nokkurn tímann verði," segir Krist- inn H. Gunnarsson, þingmaður frjálslyndra í Norðvesturkjördæmi. Honum finnst óheppilegt að í skýrslu sem Rannsókna- og þróunarmið- stöð Háskólans á Akureyri vann fyr- ir Fjórðungssamband Vestfirðinga um olíuhreinsistöð á Vestfjörðum sé sérstaklega teldð ffam að fólk frá ísafjarðarbæ sé ólíklegt til að sækja vinnu í olíuhreinsistöðinni, ef hún verður á Hvestu, vegna langrar vega- lengdar þar á milli. „Mér finnst þetta ekki þjóna nein- um tilgangi. Ég held að menn ættu að fara varlega í vangaveltur tengdar olíuhreinsistöðunni á meðan málið er enn á hugmyndastigi og ekki vit- að hvort þetta er yfirhöfuð raun- hæft. Á meðan ekki sést í neina fjár- festa er þetta tal út í vindinn og mér finnst ekki ástæða til að ýta und- ir vangaveltur sem eru í eðli sínu til þess gerðar að skapa deilur á milli atvinnusvæða á Vestfjörðum," segir Kristinn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.