Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.2008, Side 10
10 MÁNUDAGUR 7. JANÚAR 2008
Umræða DV
ÚTGÁFUFÉLAG: Dagblaðið-Vísir útgéfufélag ehf.
STJÓRNARFORMAÐUR: Hreinn Loftsson
FRAMKVÆMDASTJÓRI: Elín Ragnarsdóttir
RITSTJÓRAR:
JónTrausti Reynisson og ReynirTraustason
FULLTRÚIRITSTJÓRA: Janus Sigurjónsson
FRÉTTASTJÓRI: Brynjólfur Þór Guðmundsson
AUGLÝSINGASTJÓRI: Ásmundur Helgason
Umbrot: DV. Prentvinnsla: Landsprent. Dreifing: Árvakur.
DV áskilur sér rétt til aö birta aösent efni blaösins á stafrænu
formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
Oll viötöl blaðsins eru hljóðrituö.
AÐALNÚMER 512 7000, RITSTJÓRN 512 7010,
ÁSKRIFTARSÍMI 512 7080, AUGLÝSINGAR 512 7040.
SWDKOIÍN
■ I’orbjörgHelga Vigfúsdóttir,
borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins,
sýndi djörfung þegar hún steig
framíviðtali
í helgarblaði
DVoglýsti
ágreiningn-
uminnan
Sjálfstæðis-
flokksins og
sárindunum
sem hafa
lamað
flokkinn. Hún talaði um REI
og Landsvirkjun Power í sömu
andrá en Geir H. Iiaarde
forsætisráðherra stendur að baki
því útrásarfyrirtæki.
■ Þorsteinn Daviðsson
Oddssonar hefur tekið til starfa
sem dómari í Héraðsdómi
Norðurlands eystra eftir umdeilda
skipan.
Þorsteinn var
á sínum tíma
aðstoðarmað-
ur dómara í
Héraðsdómi
Reykjavíkur.
Þarsýndi
hann ákveðni
í anda fóð-
ur síns. Dómari nokkur rétti
honum möppu og bað hann
að leggja mat á tiltekið mál svo
sem aðstoðarmönnum var
ædað. Þorsteinn blaðaði að sögn
eldsnöggt í gegnum möppuna og
réttí dómaranum hana með þeim
orðum að þetta máf væri þannig
vaxið að það væri vel á færi
dómara að meta það.
■ Merkilega æsifréttamennsku
er að finna í Fréttablaðinu
um afkomu höfunda í jóla-
bókaflóðinu. Jakob Bjarnar
Grétarsson
blaðamaður
reiknar út að
fjöldi bóka
hafiselstíyfir
lOþúsund
eintökum og
höfundarlaun
séu í sam-
ræmivið
það. Meðal annars telur hann
upp Sigmund Emi Rúnarsson,
Óttar Sveinsson og Yrsu Sig-
urðardóttur sem náð hafi þeim
hæðum. Flestir eru sammála
um að þama sé á ferðinni grófúr
ofreikningur og reikna megi
Fréttablaðið niður um 30 til 50
prósent þegar tekið er mið af
sölutölum undanfarinna ára.
■ Þórhallur Gunnarsson, dag-
skrárstjóri Sjónvarpsins, hefur
undanfamar vikur verið í ólgusjó
misgóðrar
dagskrárgerð-
ar. Eyjustjór-
inn Pétur
Gunnarsson
sagði frá því
í Orðinu á
gömnni fyrir
nokkru að
dagskrár-
stjórinn hefði ausið Sigurð Kára
Kristjánsson alþingismann
skömmum á öldurhúsi en síðan
beðist afsökunar daginn eftir.
Hið merkilega er að færsla Péturs
hvarf skömmu síðar og ekkert
er að finna á Orðinu á götunni
um meintar ýfingar Þórhalls og
þingmannsins. Ætla má að Pétur
hafi farið offari gegn prýðispilti.
H Stríðið
JÓN TRAU5TIREYNISSON RITSTJÓRISKRIFAR
LEIÐARI
gegn gagnrýninni
Einhvern veginn þróaðist þetta samfélag í þá átt að
það varð rangt að gagnrýna. Þjóðfélagið varð eins
og kokkteilboð nýríkra, þar sem
ekki mátti eyðileggja stemninguna.
Viðskiptaskýrendur nota meira að segja þetta
orðalag í dag, að veislan sé búin og nú taki
timburmennirnir við.
Birtingarmyndir árásarinnar á gagnrýnina
hafa verið margar. í fjölmiðlamálinu steig
hver ráðherrann á fætur öðrum í ræðustól til
að kvarta undan gagnrýninni fj ölmiðl un. Einn
ráðherrann veifaði Dagblaðinu í ræðustól
Alþingis með fyrirlitningarsvip, líkt og hann
væri stjórnmálamaður í Sovétríkjunum en
ekki í vestrænu lýðræðisríki. Á síðasta ári
áttu sér stað margir atburðir í þessa veru.
Frjálslyndi flokkurinn mátti ekki gagnrýna
innflytjendastefnuna án þess að vera sakaður
um rasisma af öllum öðrum flokkum, Kast-
ljósið mátti ekki spyrja spurninga um ríkisborgararétt tengda-
dóttur Jónínu Bjartmarz alþingismanns og fjölmiðlar máttu
ekki greina frá nánum tengslum ritstjóra Morgunblaðsins við
upphaf Baugsmálsins, svo dæmi séu nefnd.
Lýðrœdid crekki kokklcilbod.
Síðasta árásin á gagnrýnina er að Guðjón Pedersen, leikhús-
stjóri Borgarleikhússins, bregður fæti fyrir einn virtasta gagn-
rýnanda þjóðarinnar fyrir að gagnrýna leik-
húsið. Hver getur ástæðan verið fyrir því að
leikhússtjóri meini Jóni Viðari Jónssyni að
koma á frumsýningar, önnur en sú að hann
treysti sér ekki til að mæta gagnrýninni? Á
hann að sitja áfram?
Gagnrýni er kjarni lýðræðislegra þjóðfélaga.
Því má ekki gleyma að þetta snýst ekki aðeins
um rétt gagnrýnenda heldur rétt almennings
til að heyra gagnrýni og fá upplýsingar, hversu
óþægilegar sem þær kunna að vera metnar.
Oft er það þannig, að því óþægilegri sem þær
eru því mikilvægari eru þær. Lýðræðið er ekki
kokkteilboð.
Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi odd-
viti yfirkjörstjórnar segir yflrvofandi forseta-
framboð Ástþórs Magnússonar vera nauðgun
á lýðræðinu. En í því felst lýðræðið, að hvaða vitleysingur sem
er má bjóða sig fram og mæta dómi almennings. Við verðum að
sætta okkur við óþægindin af því að maðurinn bjóði sigfram aftur
og aftur, óþægindin sem hljótast af lýðræðislegum kosningum.
HÚRRA FYRIR RÚV 0G REI
TT íkissjónvarpið hefur staðið
|-£ sig frábærlega í því að ná inn
X Vauglýsingum í hina ólíklegustu
dagskrárliði. Mörg er sú matarhol-
an sem Þorsteinn
Þorsteinsson
auglýsingastjóri
og Þórhallur
Gunnarsson
dagskrárstjóri
hafa fundið
með því að ryðja
niður óþörfúm og
skaðlegum veggjum milli deilda
sinna. Það er auðvitað tóm della að
halda því fram að fýrirtæki þeirra Þór-
halls og Páls Magnússonar eigi ekki
að njóta allra þeirra ávaxta sem í boði
eru. Einkafyrirtæki og þau opinberu
eiga að róa á sömu mið og mikilvægt
er að fylgja þeirri stefnu Sjálfstæð-
isflokksins að samtvinna þetta eins
og átti að gerst í REI og er að gerast í
Landsvirkjun Power.
T'k eyndar hafa stjómendur
l-C RÚV fetað þessa braut ágæt-
JL Vlega. Þeir eru komnir í stór-
fellt samstarf við Landsbanka og Ár-
vakur Björgólfs Guðmundssonar sem
hér eftir munu ákveða með
Þórhalli hvað framleitt
verður af innlendu efni.
Þar er mest áríðandi að
standa föstum fótum
gegn Baugsmiðlum
sem em í ónáð stjóm-
valdsins. Auðvitað er gott
hjá RÚV að eiga samstarfvið
hina og þessa úti f hinum frjálsa heimi
viðskiptanna. Þannig er sniðugt að
vera með í Kastíjósi óbeinar auglýs
ingar fyrir heildsala á stólpípu-
meðferð sem flytur hundr-
uð íslendinga til Póllands
til að láta dæla úr þeim
alls kyns sulli. Og það er
fullkomlega eðlilegt að
RÚV gangi til samstarfs
við Reykjavíkurborg um
að leikskólasviðið framleiði
efrii í Smndina okkar. Sniðugt
væri að fá Coca Cola og McDon-
alds til að framleiða innslög
um það hve hressandi er fyrir
ungdóminn að úða í sig ham-
borgurum og drekka sykurhlað
ið kók með. Hollusta á ekki að
vera efst á baugi þegar verið er að
sýna bamaefhi í sjónvarpi. Blessuð
bömin eiga að hafa gaman af í sömu
andrá og stofnunin græðir. Og það
var öldungis frábært að setja auglýs-
ingu inn í Skaupið. Þar kom á daginn
að REMAX átti besta innslagið í
fyrirbæri sem kostaði um 70
milljónir. Eðlilegast væri að
fela fasteignasölunni að sjá
alfarið um næsta Skaup og
losna þannig við leiðindin sitt
hvorum megin við auglýsing-
una og spara um leið svo sem
70 milljónir króna.
A lmenningur hefúr engan
L\ skilning á því að útvarpsstjór-
J. JLinn þurfl að aka á bfl eins og
auðkýfingar. Það þarf að vera reisn
yfir þeim sem stjómar svo mikilvægri
stofnun sem nú er um það bil að
verða einstaklingsvædd. Og eðli máls-
ins samkvæmt þarf útvarpsstjórinn að
vera á ofurlaunum tíl að standa undir
hinni miklu umgjörð sem fylgir því
að vera í samkeppni við auðkýfinga
á frjálsum markaði. Svarthöfði sér
ekki annað en að stjómendur Sjón-
varpsins standi sig með mildlli prýði
í að poppa upp þetta ríkisbákn. Og
allt smeflur þetta að
þeirri stefnu Sjálf-
stæðisflokksins
að blanda sam-
an opinberum
hagsmunum og
einkahagsmun-
um. Þorgerður
Katrín Gunnars-
dóttir menntamála-
ráðherra á svo sannarlega hrós sldlið
fyrir frammistöðu sína og stefnufestu.
Húrra fýrir RÚV, REI og öðmm óska-
bömum Sjálfstæðisflokksins.
SVARTIIÖFÐI
DÓMSTÓLL GÖTUNIVAR
A AÐ HERÐA REGLUR UM EMBÆTTISVEITINGAR RÁÐAMANNA?
„Ég er ekkert á móti Þorsteini
Davíðssyni en það er greinilegt að
hann var ekki talinn sá hæfasti. Ég held
að það þurfi að lögfesta það að
ráðherra taki mark á álitum sérfræð-
inga þegar kemur að ráðningum (
„Ég vil herða reglurnar. Það verður að
vera smáeftirlit með ráðninum þannig
að þetta fari ekki eftir áliti manns (
fflabeinsturni."
Andri Ágústsson,
22 ára sölumaður
„Já það þarf að herða reglurnar. Menn
eiga ekki að vera einvaldir um að ráða í
slík störf. Ráðningar eiga að vera á
faglegum grunni.
Karítas Halldórsdóttir,
19 ára nemi.
„Ég segi bara niður með ríkisstjórnina."
Magnús Leifur Sveinsson,
27 ára tónlistarmaður.
embætti."
Guðmundur Garðar Guðmunds-
son, 51 árs starfsmaður á geðdeild
Landspítalans