Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.2008, Qupperneq 13
DV Sport
MÁNUDAGUR 7. JANÚAR 2008 13
Fjölnir er komið á botn Iceland Express-
deildar karla í körfubolta eftir tap gegn KR
á heimavelli í gærkvöldi. KR saknaði mikið
fyrirliða síns, Fannars Ólafssonar, sem er
frá vegna meiðsla.
Fjölnir náði ekki að vígja nýja
parketíð í íþróttamiðstöðunni í
Grafarvogi með sigri. Þeir töpuðu
fyrir íslandsmeisturum KR, 85-94.
Karlton Mims ogAnthony Drejaj áttu
stórleik fyrir Fjölni og héldu liðinu
yfir lengst af en á endanum var það
KR sem sigldi tveimur stigum í KR-
höfnina á meðan Fjölnir sökk tíl
boms.
Heimamenn í Fjölni komu
ákveðnir tíl leiks. Þeim gekk vel í
upphafi og náðu 19-11 forysm þegar
skammt var eftir af fyrsta fjórðungi.
Þeir slökuðu á klónni og leyfðu KR að
koma upp að hlið sér en staðan eftír
íyrsta fjórðung var 21-20.
Liðin skiptust á körfum í upphafi
annars fjórðungs og lítíð skildi á milli
liðanna. KR-ingar náðu fyrst forysm,
30-31, og virtist sem svo að Fjölnir
ætlaði undan að láta. Það var þó víðs
fjarri því Grafarvogspiltar með Anth-
ony Drejaj og Karlton Mims höfðu
allt annað í huga.
Drejaj og Mims nýttu sér góða
vörn Fjölnis og slæma hittni KR-
inga undir lok fyrri hálfleiks og settu
niður nokkrar glæsilegar körfur. Allt
í einu var Fjölnir aftur komið með
yfirhöndina á íslandsmeistarana og
leiddi í hálfleik með sjö stigum, 49-
42.
KR sterkara undir lokin
Anthony Drejaj hélt áffam þar
sem frá var horfið og sett niður laglegt
stökkskot í byrjun þriðja fjóröungs.
Það virist á ti'ðum að KR héldi að
hlutimir myndu gerast að sjálfum
sér sem þeir gerðu svo sannarlega
ekki. Fjölnir sýndi fádæma baráttu og
gerðu allt sem í þeirra valdi stóð til að
halda sér fyrir ffaman á stigatöflunni.
KR gat fýrst náð aftur forystunni
í stöðunni, 58-58, þegar Helgi
Magnússon misnotaði vítaskot. KR
náði svo langþráðri forysm sinni
skömmu síðar, 61-62, þegar Josua
Helm skoraði laglega körfu en Helm
Sterkur á lokasprettin-
um Avi Fogel kom sterkur
inn fyrir KR undir lokin.
'ív A"
fékk síðan fjórðu villu um miðjan
þriðja leikhluta. Vöm KR var miklum
mun betri á lokaspretti þriðja leik-
hluta og sá til þess að liðið fór inn í
lokafjórðunginn með sex stíga for-
ystu, 66-72.
I lokafjórðungnum sýndi KR
mátt smn og megin. Þeir hefðu
landað jafnvel stærri sigri hefði ekki
verið fyrir Mims og Drejaj sem gám
ekki hætt að skora en þeir skomðu
samtals 58 af 85 stigum liðsins. Slakar
ákvarðanatökur urðu Fjölni að falli
undir lokin sem missti boltann of
auðveldlega oft á tíðum. KR-ingar
gengu þá á lagið og hafði Avi Fogel sig
mikið í frammi á lokamínútunum og
skoraði laglegar körfur og sýndi mikið
öryggi á vítalínunni. Fjölnir reyndi
erfiðar þriggja stiga körfur undir lokin
í von um að klóra í bakkann en lítið fór
niður og 85-94 sigur KR staðreynd.
KR-ingar léku án landsliðs-
miðherjans Fannars Ólafssonar sem
verður frá í það minnsta mánuð.
Það hindraði hann þó ekki frá því
að taka virkan þátt í leiknum. Hann
öskraði á sína menn stanslaust í
fjörutíu mínútur, tók að sér aðstoðar-
þjálfarahlutverk liðsins á tímabili
ásamt því að sjá um vatnsbrúsana og
í eitt sldptið gerði hann sig líklegan til
að skúra nýja parketið í Grafarvogi.
Fjarvera hans var þó sýnileg og
vantaði mikinn talanda í vörn KR.
Nokkuð sem þeir þurfa að laga fyrir
toppleikinn gegn Grindavík í næstu
umferð.
Vantaði karlmennskuna
Bárður Eyþórsson, þjálfari Fjölnis,
sagði sína menn hafa vantað ákveðni
undir lokin. „Við sýndum ekki næga
karlsmennsku undir loldn í að klára
leikinn almennilega. Við þurftum að
sýna almennilega hvað í okkur býr
en það gerðist ekki. Undir lokin voru
það áheyrsluatriði hjá okkur sem við
klikkuðum á. Við vorum búnir að
leggja upp nokkur atriði sem hefðu
getað gert okkur lífið auðveldara en
það heppnaðist ekld og því fór sem
fór," sagði Bárður.
Kollegihans, BenediktGuðmunds-
son hjá KR, var sáttari en viðurkenndi
að lið sitt hefði ekki sýnt neinn
stjömuleik. „Þetta var langt frá því að
vera einhver klassaleikur hjá okkur í
kvöld. Þegar leið hins vegar á leikinn
fórum við að spila af meiri hörku og
ákveðni og þá var alit annar bragur
á þessu. Þegar við snerum þessu við
í þriðja leikhluta vomm við að sýna
meira drápseðli en fram að því litum
við bara út sem eitthvert miðlungs
unglingaflokkslið.
Þetta var langt frá því að vera
einhver landsleikur héma í kvöld en
um leið og við fórum að spila með
smá viðhorfi vorum reyndar ekkert
í þvílíkum gír en þá var allt annar
bragur á þessu," sagði Benedikt sem
sagði liðið hafa saknað Fannars
sérstaklega vamarlega. „Það vantaði
svoh'tið upp á liðsvömina og það er
einmitt það sem Fannar hefur verið
að binda saman hjá okkur. Annars
fannst mér Darri Hilmarsson koma
alveg frábærlega inn í leikinn og
hann var farinn að sjá um að binda
saman vömina í seinni hálfleik," sagði
Benedikt að lokum.
Naumur sigur Hamars
Hamar vann nauman sigur á
Tindastóli á Sauðárkróki 85-88.
Liðið lyfti sér úr neðsta sæti Iceland
Express-deildar karla í körfuknattleik
með öðmm sigri sínum í röð.
Heimamenn vom yfir lengst af í
leiknum en gestimir snem honum við
á lokamínútunum. Skallagrímur átti í
litium vandræðum með Stjömuna í
Borgamesi og vann 89-64.
Snæfellingar unnu Njarðvík 74-67.
Heimamenn höfðu yfirhöndina nær
alian leikinn og feiddu í hálfleik 39-
33. Mínútu fyrir leikslok höfðu þeir
ellefu stiga forysm og Njarðvíkingar
gerðu harða atlögu að þeim en
Snæfellingar héldu forystunni. Justin
House skoraði 17 stig fýrir Snæfell.
Hlynur Bæringsson skoraði 13 stig og
tók ellefu fráköst.
í Seljaskóla vann ÍR Þór ffá Alcur-
eyri, 96-85. ÍR hafði undirtökin nær
allan leildnn þó forystan væri aldrei
meiri en ti'u stig. f hálfleik var staðan
41-36. Leikurinn tafðist í byrjun því
ný skotklukka í húsinu fór elcki í gang.
Tahirou Sani lék sinn fyrsta leik fýrir
fR og spilaði vel. Hann skoraði 32 stig
á 28 mínútum auk þess að leika vel í
vöm. Stigahæstur Akureyringa var
Cedric Isom með 28 stig. Kristinn
Óskarsson dómari fékk fyrir leildnn
viðurkenningu fyrir að hafa dæmt eitt
þúsund leiki.
tomas@dv.is
Vatnsgreiddur Cristiano Ronaldo og Wayne Rooney sáu um aö koma Manchester United í fíóröu umferð
ensku bikarkeppninnar:
RONALDO OG ROONEY SÁU UM VILLA
Stærsti leikurinn í þriðju um-
ferð ensku bikarkeppninar var við-
ureign Aston Villa og Manchester
United á Villa Park í Birmingham.
Framherjapar United var ekki í
byrjunarliðinu en Carlos Tevez á
við smávægileg meiðsli að stríða
og Wayne Rooney var á bekknum
en hann var að stíga upp úr veik-
indum. Fabio Capello var á með-
al áhorfenda en hann er eins og
flestir vita tekinn við enska lands-
liðinu og voru níu enskir leikmenn
í byrjunarliðum liðanna í leikn-
um. Hvorugu liðinu tókst að skora
í fyrri hálfleik en Ryan Giggs fékk
frábært færi eftir að Cristiano Ron-
aldo átti gott skot að marki sem
Scott Carson varði út í teig þar sem
Giggs var en á einhvern óskiljan-
legan hátt tókst honum að að setja
boltann framhjá og hefði Giggs ef-
laust skorað fýrir nokkrum árum
þegar hann var á sínum yngri
árum. f síðari hálfleik var leikur-
inn fremur jafn en það var ekki
fyrr en níu mínútur voru til leiks-
loka sem Cristiano Ronaldo náði
að renna knettinum yfir línuna
eftir sendingu frá Giggs. Það var
svo átta mínútum síðar sem vara-
maðurinn Wayne Rooney sem átti
frábæran leik skoraði annað mark-
ið með fínu skoti í fjærhornið. Sir
Alex Ferguson, stjóri Untied, var
glaður í leikslok. „Þetta voru frá-
bær úrslit fyrir okkur, við vissum að
þetta yrði erfið umferð. Aston Villa
hefur verið á góðu skriði, þetta var
erfiður bikarleikur en við náðum
Fagnaö Leikmenn
United fagna sigrinum.
að klára þetta. Ég hefði tekið því að
þurfa að mæta þeim aftur af því að
ég sá ekki fram á það að við mynd-
um að ná að skora. Við komumst
áfram eftir mikla baráttu," sagði
Ferguson að lokum. hsj