Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.2008, Side 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRÚAR 2008
UmræSa DV
ÚTGÁFUFÉLAG: Dagblaðiö-Vísir útgáfufélag ehf.
STJÓRNARFORMAÐUR: Hreinn Loftsson
FRAMKVÆMDASTJÓRI: Elln Ragnarsdóttir
RITSTJÓRAR:
JónTrausti Reynisson og ReynirTraustason
FULLTRÚIRITSTJÓRA: Janus Sigurjónsson
FRÉTTASTJÓRI: Brynjólfur Þór Guðmundsson
AUGLÝSINGASTJÓRI: Ásmundur Helgason
Umbrot: DV. Prentvinnsla: Landsprent. Dreifing: Árvakur.
DV áskilur sér rétt til aö birta aösent efni blaðsins á stafrænu
formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
öll viðtöl blaösjns eru hljóðrituö.
AÐALNÚMER 512 7000, RITSTJÓRN 512 7010,
ÁSKRIFTARSÍMI 512 7080, AUGLÝSINGAR 512 70 40.
SANDKORN
■ Bjöm Bjamason dómsmála-
ráðherra skilgreindi sig ágætiega
í Silfri Egils sem einn haukanna í
Sjálfstæðisflokknum ásamt Styrmi
Gunnars-
syni, ritstjóra
Morgun-
blaðsins.
Síðastþegar
Engeyjarætt-
in blés til
„Haukþings"
reyndistþað
mikil sneypu-
för. Þá hugðist Benedikt Jóhann-
esson, frændi dómsmálaráðherra,
verja sæmd ættarinnar í ýmsum
íyrirtækjum og blés í baráttulúðra
til mótvægis við „Kaupþing" og
aðra minni spámenn, sem óverð-
ugirvilduuppádekk. Núvill
Bjöm Bjamason kalla „haukana"
sína saman og verjast hvers kyns
andstæðingum í pólitfldnni. Sum-
ir telja víst að „Haukþing" Bjöms
muni enda með sama hætti og
„Haukþing" Benedikts, það verði
hlegið út af borðinu!
■ Herferð Félags kvenna í at-
vinnurekstri vakti sæmilega at-
hygli en þar bauðst fjöldi kvenna
til þess að setjast í stjómir fyrir-
tækja. Félagið auglýsti grimmt
í þremur dagblöðum þar sem
stjómarmaðurinn Katrín Péturs-
dóttir, framkvæmdastjóri hjá Lýsi
hf., hvatti til þessa. Auglýsingin
fékk fremur dræmar undirtektir
þar sem konumar vildu aðeins
komast í feitar stöður. Bent var á
að kannski þyrftu þær að lagfæra
þann gríðarlega kynjamun sem
á sér stað á fiskveiðiflotanum þar
sem konur em álíka sjáldséðar
og hvítir hrafnar. Kannski verður
næsta auglýsing þeirra umsókn
um skipsrúm.
■ Viðtal Evu Maríu Jónsdóttur í
Sunnudagskastijósi við Margréti
Frímannsdóttur, fangelsisstjóra á
Litia-Hrauni,
varummargt
merkilegt.
Hún lýsti því
að það hefði
verið kulnun
í starfi sem
réð því að
hún hætti í
stjómmálum.
Merkilegt var að heyra hve bitur
hún er í garð gömlu félaganna
í Alþýðubandalaginu svo sem
Hjörleifs Guttormssonar sem
hún taldi greinilega vera andstæð-
ingsinn.
■ Það em fleiri sem glfrna við
kulnun í starfi. Þannig er hermt að
Einar Kristinn Guðfinnsson sjáv-
arútvegsráðherra sé ekkert allt of
ánægður með ráðherradóm sinn.
Sá gamli kvótaandstæðingur sætir
árásum úr ýmsum áttum vegna
varðgæslunn-
ar um kerfið
og blóðugs
niðurskurðar.
Þáblasirvið
að gera þurfi
breytingar
á kvótakerf-
inuíkjölfar
niðurstöðu
mannréttindanefridar Sameinuðu
þjóðanna. Pískrað er um að hann
sé búinn að fá nóg og geti allt eins
hugsað sér að komast (annað
ráðuneyti. En það kann að vera
áróður pólitískra andstæðinga.
SKúgun kvenna og við
JÓN TRAUSTI REYNISSON RITSTJÓRISKRIFAR. Gágnrýnendur íslams hafa verid ráönir afdögunt íEvrápu.
LEIÐARI
Réttindi kvenna eru hvergi verr
stödd en í samfélögum íslamskra
bókstafstrúarmanna, svokallaðra
íslamista. Þessi samfélög eru ekki
einungis við lýði í íran og Sádí-Arabíu, heldur
einnig á víð og dreif um Evrópu. f Danmörku,
Svíþjóð, Bretlandi og víðar vex þessum
samfélögum ftskur um hrygg. Um leið dreifist
íslömsk alræðishyggja um álfuna. Allt gerist
þetta undir verndarvæng og fyrir tilstuðlan
ofurvíðsýnnar fjölmenningarstefnu, sem
fórnar grundvallargildum vestræns samfé-
lags um frelsi handa öllum. Víðsýnin og
frelsið er orðið svo mikið að látið er undan
kröfum múslímskra samfélaga um að kúga
konur, hefta málfrelsið og hóta þeim lífláti
sem tala gagnrýnið um trúarbrögð þeirra.
Gagnrýnendur íslams hafa verið ráðnir af dögum í Evrópu.
í Hollandi voru Theo van Gogh og Pim Fortuyn drepnir, en í
Danmörku var aðstandendum Jyllands-Posten hótað öllu illu
fýrir skopmyndateikningar af Múhammeð spámanni, ásamt
Danmörku og Evrópu í heild. í Bretlandi skrifuðu íslamistar á
spjöld og veifuðu að þeir skyldu binda enda á vestrænt samfélag.
Harðtrúaðir múslímar meina konum að
eiga samskipti við ókunnuga karlmenn.
Þær mega ekki vera á almannafæri
neina í fylgd með karlmanni. Oft eru þær
neyddar til að giftast mönnum sem þær
þekkja ekki, jafnvel áður en þær verða
kynþroska. Þær verða að klæðast burku.
Þær mega ekki fara í sund eða leikfimi ef I
þar er einhver karlkyns fyrir. Þess vegna
hafa íslamistar í Danmörku og Englandi
farið fram á að sundlaugar verði opnar
aðeins fyrir konur á ákveðnum tímum.
Og þeir vilja refsingar á þá sem gagnrýna
eða gera grín að þessu eða öðru sem er
íslamskt.
Svo langt gengur þetta að Ólafur Ragnar
Grímsson er látinn afsaka birtingu Múhammeðsteikninganna
í viðtali við arabísku sjónvarpsstöðina A1 Jazeera. Forseti vor
veigraði sér við því, taldi sig eldd útvörð lýðræðis og málfrelsis á
þessum vettvangi.
Hann gagnrýndi ekki heldur réttindi kvenna í múslímalönd-
um. Það er ekki til umræðu, eins og mannréttindi í Kína. Og af |
hverju? Því þetta eru trúarbrögð. Guð sagði þeim að gera þetta.
Fyrir fjórum árum var framið
bíræfið bankarán í íslands-
banka á Setljarnarnesi. Ræn-
inginn ógurlegi tók á sprett með
illa fengið fé og hristi af sér þá sem
veittu honum eftirför. Hann var
svo bíræfinn að bankinn sem hann
rændi var á hæðinni fyrir neðan
lögreglustöðina á Seltjarnarnesi.
I landi þar sem byssueign er í lág-
marki og löggur aðeins vopnaðar
úðabrúsa er erfitt að ímynda sér
hvernig hægt er að stöðva fílefld-
an mann með staðfastan brota-
vilja. Hvað þá ef planið reynist vera
ígrundað, eins og virtist vera hjá
ræningjanum á Nesinu. Þangað
til hann ákvað að nota strætó sem
flóttabíl.
Hann beið og beið með
ránsfenginn á stoppistöðinni,
en fullkomin áætiun hans
gerði ekki ráð fyrir að strætó kæmi
í raun allt of seint. Eða jafnvel of
snemma. Hinn fullkomni glæpur
getur líklega ekki treyst á íslenskar
almenningssamgöngur.
Annað bankarán á svipuð-
um tíma gekk upp, um
stund. Þar notuðu grímu-
klæddir ræningjarnir hjólhest til
að skjótast undan með ránsfeng
frá Sparisjóðnum við Hátún nið-
ur í bæ. Þannig tókst þeim að
hrista af sér lögregluna. Enn einn
bankaræningi sem rændi Búnað-
arbankann sáiuga við Vesturgötu
á svipuðum tíma náðist eftir að
hafa eytt stórum hluta ránsfengs-
ins í leikjatölvuna Playstation 2
og rándýra tölvuleiki fyrir hana,
þar á meðal einn að nafni True
Crime. Og hver man ekki eftir
hraðbankaræningjanum sem
notaði sitt eigið debet-
kort til þess að kom-
ast að bankan-
um?
Nýjasta
útgáf-
anaf
íslenskum
bankaræn-
ingja bíður
ekki eftir
strætó.
Hann tekur
leigubíl.
TT æninginn
l-t sem reiddi
J. Vá loft öxi sína í
Glitni við Lækjargötu
var með hálfhulið and-
litið. Hann var sem sagt
með sólgleraugu. Mögu-
legt er talið að það hafi
verið tilviljun, þar sem
ljóst var að sól yrði lágt
á lofti þennan morgun og gæti vald-
ið óþægindum í augum. Með fullt
fang illa fengins fjár tók hann á rás.
Hlaðinn seðlabúntum ákvað hann að
fara inn á Hjálpræðisherinn í næstu
götu. Enda hafði ráðgjafi Glitnis ný-
verið gefið út yfirlýsingu um að fólk
ætti ekki að eyða um efni fram þessa
dagana. Bankaræningjar hugsa lflca
út í fjárhagslega framtíð sína. Með
milljón krónur ívasanum, eða 0,0035
prósent af árlegum hagnaði Glitnis,
tók hann leigubfl suður í Garðabæ.
Að venju reyndist íslensld bankaræn-
inginn auðfundinn og vitorðsmenn-
irnir, sem gerðu ekkert gagn svo vitað
sé, fundust með.
Hér búa þeir við mikið starfs-
öryggi. Engir vopnaðir verðir
eru á staðnum, lögreglan er
ekki einu sinni vopnuð og gjald-
kerum er beinlínis skipað af bankayf-
irvöldum að afhenda þeim pening-
ana umsvifalaust. íslendingar eru
sérstaklega heppnir með bankaræn-
ingja, þar sem þeir eru einstaklega
heimskir. Enda myndu þeir eflaust
annars geta fengið sér heiðvirða
vinnu í landi þar sem atvinnuleysið
er 0,9 prósent, eða um það bil hlutfall
þeirra sem eru að skipta um vinnu
hverju sinni.
SVARTIIÖFÐI
DÓMSTÓLL GÖTUINÍINÍAR
I K REYKIAVÍK ÖIUKÍCÍ BORG?
„Það fer algjörlega eftir því hvar maður
er að þvælast. Maður er til dæmis ekki
endilega öruggur niðri f bæ um miðja
nótt."
Arni Oddsson,
16 ára verslunarmaður
„Já, Reykjavfk er blessunarlega örugg
borg. Það þarf kannski helst að vara sig
á miðbænum."
ingibjörg Jónsdóttir,
64 ára ellilífeyrisþegi
„Reykjavík er fremur örugg að mínu
mati, en ég er alveg hætt aö fara niður f
bæ um helgar öðruvfsi en að vera (
samfloti með vinahóp. Það er betra að
vera ekki eln á ferli."
Þorbjörg Steinarsdóttir,
41 árs markaðsfræðingur
„Reykjavík er bara alls ekki örugg borg.
Mér finnst hún vera orðin hreint
stórhættuleg, sjáðu bara bankaránið
sem varframiðfgær."
Kolbrún Jóhannesdóttir,
20 ára móðir