Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.2008, Qupperneq 15
DV Sport
ÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRÚAR 2008 15
Þriðjudagur 5. febrúar 2008
íslenska landsliöiö í knattspyrnu tapaði fyrir Möltu á æfingamóti í gær:
Það vantar sigur og það vantar mark
- íslenska landsliðið í knattspymu
tapaði fyrir því maltneska í þriðja
skiptið í knattspymusögunni, 1-0,
. á æfingamóti á Möltu í gærkvöldi.
Ólafurjóþannes.sonlaadsliðsþjálfari
gerði átta breytingar á liðinu sem
tapaði fýrsta. leiknum á mótinu
gegn Hvíta-Rússlandi, 2-0. Cleavon
Frendo skoraði eina mark leiksins
fyrir Möltu með góðu skoti í fyrri
hálfleik.
Nánast var skipt um lið fyrir leik-
inn enda Ólafur að skoða marga
--menn. Þeir sem héldu sætum sín-
um frá leiknum gegn Hvíta-Rúss-
lándi voru Valsmennirnir Birkir
Már Sævarsson og Atíi Sveinn Þór-
arinsson ásamt Skagamanninum
Bjarna Guðjónssyni sem var fyrirliði
í leiknum. Bjarni lék í sinni stöðu
á miðjunni gegn Möltu en í hin-
um leiknum hafði hann spilað sem
rniðyþrður. _
ísland hafði lítil tök á leiknum til
að byrja með og gekk illa að byggja
upp almennilegar sóknir. Heima-
menn á Möltu voru skeiniíhættari
og tókst að komast yfir á 18. mín-
útu þegar hinn lítt þekkti Cleavon
Frendo skoraði af vítateigslínunni
með góðu skoti. fslenska Uðið barð-
ist en átti erfitt með sóknarleikinn og
voru það Maltverjar sem áttu annað
hættulegt færi í fyrri hálfleik en nú
tókst Fjalari Þorgeirssyni, markverði
. ^Fylkis, að verja.
Ólafur Jóhannesson gerði tvær
breytingar í hálfleik og setti inn
Stefán Gíslason.og Helga Sigurðs-
son. Lítið gerðist fyrsta korterið af
seinni hálfleik en þegar líða fór á
leikinn tóku fslendingar öll völd.
Síðasti hálftíminn var eign íslands
og náði íslenska liðið að skapa sér
góð marktækifæri en inn vildi bolt-
inn ekki. Næst komst ísland því að
skora þegar Malta hreinsaði knött-
inn af sinni eigin marklínu. Fleiri
urðu mörkin því miður ekki og ann-
að tap íslands á mótinu staðreyntí.
Þetta er þfiðji leikurinn sem
Ólafur Jóhannesson stjómar ís-
lenska liðinu og hefur honum ekki
enn tekist að innbyrða sigur. Fyrst
var leikið gegn Dönum á Parken í
undankeppni Evrópumótins, næst
Hvíta-Rússlandi á sama móti og
leikurinn gegn Möltu var í gær. Það
sem meira er að í þessum þremur
leikjum hefur íslandi ekki enn tekist
að skora mark. Ekki náðist í Ólaf né
neinn landshðsmann eftir leikinn.
* ,
0-3 Island hefur enn ekki unnið
leik og ekki skorað undir stjórn
Ólafs Jóhannessonar.