Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.2008, Page 32
Bruni í borgarhúsi
Rannsókn á brunanum á Hverf-
isgötu 34 í gær beinist að því hvort
um ílcveikju hafi verið að ræða.
Samkvæmt upplýsingum ír á lög-
reglunni á höfuðborgarsvæðinu
gekk vel og greiðlega að slökkva
eldinn, en skemmdir vegna hans
voru talsverðar. Húsið, sem er í eigu
Reykjavíkurborgar, hefur verið yfir-
gefið í nokkurn tíma.
»c Tæknideild lögreglunnar á höf-
uðborgarsvæðinu fer nú yfir hvort
um íkveikju hafi verið að ræða.
Landfylling
við Ánanaust
Framkvæmdasvið Reykjavík-
urborgar hefur ákveðið þriggja
hektara landfyllingu við Ánanaust
og var íbúum boðið til kynningar-
fundar í gærkvöldi. Á aðalskipu-
lagi borgarinnar er heimild tíl
þess að landfyllingin geti orðið
allt að 35 hektarar. Göngustígar
verða lagfærðir, en svæðið verð-
ur oft fyrir hnjaski vegna ágangs
sjávar.
Framkvæmdaleyfi hefur þeg-
ar verið afgreitt og verður efni
í landfyllinguna sótt í grunn
Tónlistar- og ráðstefnuhúss við
Reykjavíkurhöfn. íbúar við mót
Vesturgötu og Ánanausta hafa
mótmælt landfyllingunni harð-
lega.
Samherji fundaði
veqna sögusagna
„Við héldum fund hér Iföstudag
með stjórnendum Samherja og að-
aleigendum til þess að ítreka það að
ekki væri fótur fyrir þessum sögum,"
segir Þorsteinn Már Baldvinsson,
forstjóri útgerðarfélagsins Samheija
á Akureyri, um þær sögusagnir að
fyrirtækinu eigi að skipta upp og
keppinauturinn Brim hyggist kaupa
helming félagsins.
Þorsteinn kveðst sjálfur hafa
heyrt flugufregnir um þetta innan
sjávarútvegsins en segist ekki átta sig
á því hvernig þær séu til komnar.
Engan æsing •••
Úr skúrum í skóla Börnin (Norðlingaskóla í Norðlingaholti fögnuðu þvt f gær að skóflustunga var tekin að nýju skólahúsnæði.
Til þessa hafa þau lært f skúrum. Byggingin mun hýsa 450 grunnskólabörn og 110 leikskólabörn.
Segir atvinnurekendur hagnast á hægagangi viöræðna:
Græða milljónir vegna tafa
„Það er ljóst að atvinnurekendur
spara sér hundruð milljóna ef kjara-
samningur gildir ekki ffá því að eldri
samningur rann út og er varlegt að
áætla að sú upphæð getí numið að
minnsta kostí hálfum milljarði fyrir
hvem mánuð sem samningar dragast
á langinn," segir Vilhjálmur Birgisson,
formaður Verkalýðsfélags Akraness.
Kjarasamningar á almennum
vinnumarkaði runnu út um áramót-
in og hægt miðast í viðræðum
verkalýðshreyfingarinnar og vinnu-
veitenda. Vonast er til þess að við-
ræðurnar þokist áfram í þessari
viku þannig að launaliðir kjara-
samninga verði ræddir til hlítar. Er
síðustu kjarasamningar vom gerðir
var ekki tekið tillit til þess hversu
Vilhjálmur Birgisson Atvinnurekend-
ur spara sér hundruðir milljóna.
lengi viðræður stóðu yfir þannig að
launaliður samninganna var ekki
afturvirkur. Fyrir vikið miðuðust
launahækkanir ekki við þann tíma
sem eldri samningar mnnu út.
Vilhjálmur er verulega ósáttur
við hægagang viðræðnanna og segir
ljóst að semja verði um afturvirkni
samninga þannig að launahækkanir
taki giidi um áramót. Hann telur þol-
inmæði íslensks verkafólks algjörlega
á þrotum. „Það er ekki hægt að bjóða
íslensku verkafólki upp á það lengur
hversu hægfara þessar viðræður hafa
verið. Það kemur ekki armað til greina
en að kjarasamningamir gildi frá 1.
janúar eða frá þeim tíma sem síðastu
samningar runnu út. Verkafólk minn-
ist þess að þegar síðast var samið tók
það rúma tvo mánuði, án þess að
samningamir hefðu neina afturvirkni,"
segir ViUijálmur. trausti@dv.is
Þrír skotnir yfir
Superbowl
Þrír menn voru sk
i skotnir til
dauða eftír að rifrildi braust út á
veitingastað í Bandaríkjunum í
tengslum við Superbowl-leikinn í
mðningi sem þar var sýndur um
helgina. Tveir mannanna vom
skomir inni á veitingastaðnum
en sá þriðji á bílastæði fyrir utan
hann. Samkvæmt upplýsingum
frá lögreglu var einungis um einn
byssumann að ræða.
Rannsókn lögreglunnar bein-
ist meðal annars að því hvað olli
deilum milli mannanna. Vitni að
atburðinum segir að menn hafi
farið að rífast eftir að annað liðið
skoraði. Svo fór að New York Gi-
ants vann New England Patriots
með ömggum hætti.
y-a
gaj
-
Greniásvegi
Opið alla daga 11:00 - 22:00
FRÉTTASKOT
51 2 70 70
DV borgar 2.500 krónur fýrir fréttaskot sem leiðir til frétta.
Fyrir fréttaskot sem verður aðalfrétt á forsíðu greiðist 25.000 krónur.
Fyrir besta fréttaskot vikunnar greiðist allt að 50.000 krónur.
Alls eru greiddar 100.000 krónurfyrir besta fréttaskot hvers mánaðar.
DAGBLAÐIÐ VlSlR STOFNAÐ 1910
ÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRUAR 2008
Viöræður um aö Bob Dylan haldi tónleika á íslandi í vor eru á lokastigi:
B0B DYLAN H0RFIR
AFTURTILISLANDS
ASGEIR JONSSON
bladamadui skrifai: asaeino'clv.is
Samkvæmt ömggum heimildum
DV leikur tónlistargoðið Bob Dylan
á tónlistarhátíðinni Vorblót eða Rite
of spring í vor. Það er athafna- og
tónleikafýrirtækið Hr. Örlygur sem
stendur fýrir hátíðinni sem var haldin
fýrst árið 2006. Starfsmenn Hr. Örlygs
vilja ekki ekki tjá sig um málið en
samningaviðræður vom komnar vel á
veg fyrir helgi og ættu að klárast í dag
eða á morgun.
Þjóðlagatónlist og
brasilískur djass
Bob Dylan þarf varla að kynna
fyrir neinum tónlistarunnanda en
hann er einn þekktastí tóniistarmaður
samtímans og hefur verið ffemstur
meðal jafningja undanfama áratugi.
Dylan hefur áður spilað á fslandi, árið
1990, og vaktí mikla lukku. Nýverið
var gerð kvikmynd um kappann sem
heitir I'm not there þar sem Dylan
er sýndur í nokkuð óvanalegu ljósi.
Dylan er meðal annars leikinn af Cate
Blanchett í myndinni og hún hefur
þegar hlotið Golden Globe-verðlaun
fyrir leik sinn auk þess að vera tilnefnd
til óskarsverðlauna.
Samkvæmt heimildum DV er
Dylan ekki eina sljaman sem mun
koma fram á Vorblótinu heldur muni
brasih'ski djasstónlistarmaðurinn
Sérgio Mendes einnig troða þar upp.
Mendes hefur gefið út einar 38 plötur
á ferlinum og átt fjölmörg lög inni á
Billboard-listanum í Bandaríkjunum.
hátíðinni er lögð áhersla á djass, þjóð-
laga- og heimstónlist. í fyrra var Gor-
an Bregovic aðalnúmerið en það er
greinilegt að mikill memaður er fyrir
hátíðinni hjá Hr. Örlygi sem stendur
einnig fyrir hinni heimsþekktu Iceland
Airwaves-hátíð.
Ekki er komið á hreint hvar hátíðin
verður til húsa að þessu sinni en það
liggur ljóst fyrir að stórlaxar eins og
Bob Dylan og Sérgio Mendes kalla á
töluvert stærra húsnæði en NASA.
Vorblótið stækkar
Undanfarin tvö ár hefur Vorblótið
verið haldið á einni helgi á NASA en á
Breytingar hjá Örlygi
Hr. Örlygur stendur á tíma-
mótum um þessar mundir því
Eldar Ástþórsson sem hefur ver-
ið framkvæmdastjóri fyrirtækisins
um árabil er á faraldsfæti. Eldar
yfirgefur stöðu framkvæmdastjóra
til þess að taka við verkefninu
Kraumur. Um er að ræða tónlist-
arsjóð sem styður við ungt og efni-
Bob Dylan Á í viðræðum um að spila á
hátíðinni Rite of spring I vor.
legt tónlistarfólk á Islandi. Eldar
mun þó halda áfram sem fram-
kvæmdastjóri Airwaves en ekki
hefur verið ákveðið hver eftirmað-
ur hans hjá Hr. Örlygi verður.
Þá hefur fyrirtækið einnig selt
húsnæði sitt á Skólavörðustíg og
hyggst flytja sig um set innan mið-
bæjar Reykjavíkur.
Litlar samlakur 399 kr.
+ litiö gosglas 100 kr.
= 499 kr.