Dagblaðið Vísir - DV - 14.04.2008, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 14.04.2008, Blaðsíða 14
14 MÁNUDAGUR 14. APRlL 2008 Sport DV Birmingham-Everton 1-1 0-1J. Lescott (78), 1-1 M. Zárate ('83). Bolton-West Ham 1-0 1-0 K. Davies ('46). Reading-Fulham 0-2 0-1 McBride ('24), 0-2 Nevland ('90). Sunderland-Man.City 1-2 0-1 Elano (79, víti), 1-1 D.Whitehead ('82), 1-2 D. Vassell ('87). Tottenham-Middlesbro 1-1 1-0 J. Grounds('26, sjálfsmark), 1-1 S. Downing (70). Derby-Aston Villa 0-6 0-1 A. Young ('25), 0-2 J. Carew ('26), 0-3 S. Petrov ('36), 0-4 G. Barry ('59) 0-5 G. Agbonlahor (77), 0-6 M. Hare- wood ('86). Portsmouth-Newcastle 0-0 Liverpool-Blackburn 3-1 1-0 S. Gerrard ('60), 2-OTorres ('83) 3-0 Voronin ('90), 3-1 Santa Cruz ('90). Man.Utd.-Arsenal 2-1 1-0 Adebayor ("48), 1-1 Ronaldo ("52, víti), 2-1 Hargreaves (72). Staðan Lið L U J T M St Man. Utd 34 25 5 4 72:18 80 Chelsea 33 22 8 3 58:23 74 Arsenal 34 20 11 3 64:29 71 Liverpool 34 18 12 4 60:26 66 Everton 34 18 7 9 50:28 61 Portsmouth 34 16 9 9 47:33 57 AstonVilla 34 15 10 9 62:44 55 Man.City 34 14 10 10 39:40 52 Blackburn 34 13 12 9 44:42 51 West Ham 34 12 8 14 35:41 44 Tottenham 34 10 11 13 63:57 41 Newcastle 34 10 9 15 40:58 39 Middlesb. 34 8 12 14 31:48 36 Sunderland 34 10 6 18 33:52 36 Wigan 33 9 7 17 30:47 34 Reading 34 9 5 20 37:63 32 Birmingham34 7 10 17 39:52 31 Bolton 34 7 8 19 31:52 29 Fulham 34 5 12 17 32:56 27 Derby 34 1 8 25 16:74 11 Markahæstir LCristianoRonaldo 28 2. FernandoTorres 22 3. Emmanuel Adebayor 19 COCfl COLfl CHAMPI0NSHIP llpswid^ Norwich 2-1 WBA - Watford 1-1 Leicester - Colchester 1-1 Preston - Bamsley 1-2 Charlton - Southampton 1-1 Cardiff-Blackpool 3-1 Cr. Palace 1 - Scunthorpe 2-0 Burnley- Sheff. Utd 1-2 Bristol City-Wolves 0-0 Coventry - Stoke City 1-2 Hull-QPR 1-1 Staðan Lið L u j T M St Stoke 43 19 15 9 66:54 72 W.B.A. 42 20 11 11 82:53 71 Bristol C. 43 19 14 10 49:49 71 Hull 42 19 12 11 60:42 69 Watford 43 18 15 10 61:52 69 C.Palace 43 16 17 10 50:40 65 Ipswich 43 17 13 13 61:53 64 Coventry 43 13 10 20 45:58 49 Leicester 43 11 15 17 40:42 48 Sheff.W 42 12 12 18 45:50 48 Scunt. 43 9 12 22 39:64 39 Colch. 43 7 16 20 58:77 37 Tóm hamingja Leikmenn Manchester United fagna marki Owens Hargreaves. MflN. UNITED flRSENAL MA0UR LEIKSINS GUNNARGUNNARSSON bladamadur skrifar: sp Minnugir ófara sinna í bikarkeppn- inni sýndu leikmenn Arsenal það frá íyrstu mínútu að þeir ætluðu ekki að lenda í sama forarpyttinum. Þeir pressuðu leikmenn United vel á miðjunni. Það leiddi til feilsendinga United sem leikmenn Arsenal nýttu til að sækja hratt á United-vörnina. Hún var mest opin hægra megin þar sem Patrice Evra var lagður af stað í sóknina. Leikurinn barst end- anna á milli. Aleksander Hleb kom Emmanuel Adebayor í gegn með góðri sendingu en skot Tógómanns- ins var beint í fang Edwins van der Sar. United kom boltanum hratt upp og þar slapp Wayne Rooney í gegn en Jens Lehmann rak tána í boltann og stýrði honum framhjá. Þjóðverj- inn var kominn aftur í liðið þrátt fyr- ir skeytasendingar í fjölmiðlum til aðalmarkvarðarins Manuels Almun- ia. Sá var hvergi sjáanlegur þótt hann hefði framlengt samning sinn við fé- lagið fýrir helgi. Mörká færibandi Arsenal komst yfir á 48. mínútu. Robin van Persie sendi boltann fyr- ir frá vinstri, Rio Ferdinand, Michael Carrick og van der Sar frusu og Ad- ebayor stýrði boltanum í netið. Un- ited vörnin skalf og einungis snögg viðbrögð van der Sar forðuðu Rio Ferdinand frá sjálfsmarki mínútu síðar. Við þetta vaknaði United-liðið og sex mínútum síðar hafði Cristiano Ronaldo skorað sitt 38 mark á leik- tíðinni. Það kom frá vítapunktinum eftir að skot Carricks hafði farið í hönd William Gallas. Ronaldo þurfti að taka vítið tvisvar og skoraði í bæði skiptin en álagið var augljóst. Glæsimark Hargreaves Sir Alex Ferguson ákvað að bæta í sóknina og skipti Anderson og Car- los Tevez inn fýrir Paul Scholes og Stuðningsmenn Manchester United önd- uðu léttar þegar Howard Webb flautaði til leiksloka í leik liðsins gegn Arsenal í gær. Cristiano Ronaldo og Owen Hargreaves skoruðu mörk United sem lenti undir í upphafi síðari hálfleiks. Verðlaunavonir Arsenal eru að engu orðnar. ited er ekki fjarri meistaratitilinum. Fram undan eru fjórir leikir, þar af þrír á útivelli. Sá mikilvægasti þeirra verður væntanlega gegn Chelsea sem er í öðru sæti. „Ég sagði í sein- ustu viku að ef við ynnum næstu þrjá leiki yrðum við meistarar. Einn þeirra er búinn og tveir eftir." Líkt og stuðningsmenn United gat Ferguson ekki beðið eftir leik- hléinu. „Arsenal var betra liðið í fyrri hálfleik. Mér fannst við stressaðir og sendingarnar slakar. Ég gat ekki beð- ið eftir leikhléinu. Anderson ogTevez voru tilbúnir að koma inn á og þeg- ar Arsenal skoraði gat ég ekki beðið lengur. Eftir það fannst mér við spila ffábærlega. Wayne hefði getað skor- að þrennu, við spiluðum vel og Ars- enal átti líka fín færi. Ótrúlegur leik- ur. Ég sá leik Liverpool og Arsenal á þriðjudagskvöld og mér fannst hann ffábær. En þetta var leikur ársins." Búið Arsene Wenger, stjóri Arsenal, sagði von Arsenal um meistaratitil hafa endanlega verið slökkta. Hann sagðist samt stoltur af leik liðsnis. „Við spiluðum vel og börðumst svo ég er mjög stoltur af ffammistöðu okkar. Hvað er hægt að gera? Við fengum fullt af færum og vorum virkilega óheppnir að vinna ekki. Við höfum verið í lægð ffá í mars og við verðum að skoða hvaðan hún kemur en okkar helsta markmið er að halda þessum leikmannahóp. Mér finnst hann nógu góður." Park Ji-Sung. Effirskjálftar voru í Un- ited-vörninni. Einn þeirra átti upp- tök sín í Wes Brown sem stýrði fyrir- gjöf á rammann en van der Sar varði í stöng. Átján mínútum fyrir leikslok var bakvörðurinn Evra felldur við víta- teigsboga Arsenal. Owen Hargreav- es stillti boltanum upp og stóð upp við hann svo Ronaldo gæti ekki ekki skotið. Ákvörðun Englendingsins var rétt. Hann tók stutt tilhlaup áður en hann sneri boltanum yfir vegginn og niður í hornið. Lehmann stóð stein- runninn á marklínunni. Leikmenn Arsenal sáu seinustu vonir sínar um verðlaun á leiktíð- inni hverfa. Tilraunir þeirra til að sjá grilla í titilinn strönduðu í höndum van der Sar. Stressað United-lið Ferguson veit að Manchester Un- Ronaldo 54 vfti, Harqreaves 72. Adebayor48. 53% MEÐ BOLTANN 47% 17 SKOTAÐ MARKI 20 7 SKOTÁMARK 2 RANGSTÖÐUR 6 HORNSPYRNUR 8 AUKASPYRNUR 2 GULSPJÖLD 0 RAUÐSPJÖLD AHORFENDUR: 75,985. Van der Sar, Brown, Ferdinand, Pique, Evra, Ronaldo, Carrick, Hargreaves (Giggs 89), Scholes (Andefson 55), Park (Tevez 55), Rooney. Lehmann,Toure(JustinHoyte 85), Gallas, Song Billong, Clichy, Eboue (Walcott 61), Fabregas, Silva, Hleb, Van Persie (Bendtner 76),Adebayor. Edwin Van der Sar, Man. Utd Aðþrengdur Tveir leikmenn Arsenal hægja á Cristiano Ronaldo uag A L LTafifliaroiSIE Arctic Wear vinnúfátháðúr Vinnuföt - Hlífðarföt (kOfíSi? Vesturvör 7 • 200 Kópavogur • Sími: 534-2900 www.aw.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.