Dagblaðið Vísir - DV - 14.04.2008, Blaðsíða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 14.04.2008, Blaðsíða 29
DV Fólkið BÝFLUGAN MÁNUDAGUR 14. APRÍL 2008 29 Benny Crespo's Gang Hélt uppi góðu stuði á NASA á föstudaginn. Ólafur Páll Gunnarsson Var ánægður með tónleikaferðalag- ið og lét sig ekki vanta á NASA. Al Gore Mætti í kúrekastígvélum í Bláa lónið. Finni FlotturáNASA og lagði eflaust leið sína á Prikið eftir það. Egill Rafnsson og Óttar Proppé Einstaklega hipp piltar GORE KENNIR VALDA- MÖNNUM OG„VONNA- ÍS"nSKUTAKTA Dr. Spock og Benny Crespo's Gang hafa túrað undanfarið um landið og í tón- leikaferðinni Rokkað hringinn komu böndin víða við í ýmsum krummaskuðum og afdölum. Svo mikið stuð var í mönnum að á Eskifirði fékk trommuleikari Dr. Spock harkalegt raflost ffá ljósaseríu og rétt slapp með skrekkinn. Túrinn mikli hófst í Fjölbrautaskóla Suðurlands (FSU) og lauk með látum á NASA í Reykjavík á föstudags- kvöldið. Hugsjónafólkinu, sem er með þá missí- on að færa dreibýlisliðinu alvöru íslenska mús- ík, var tekið sem þjóðhetjum á heimaslóðunum við Austurvöll. Sérstakir gestir voru Jan Mayen. Þeir félagar Doktorinn og EgUl Rafnsson voru hipp og Finni var frjálslegur að vanda. Óli Palli Rokklandsmeistari var að sjálfsögðu á staðnum að styðja sína menn. En Óttar Proppé er víðförull í menningarferð- um sínum og hann kom við á tónleikastaðnum Organ um sexleytið á föstudaginn þegar Poppquiz var í fullum gangi og þar var líka Árni Thorodd- Gaflarar Ragnar Sólberg, kærasta og Hjörtur Howser fara yfir heimsmálin. sen, gagnrýnandi hjá Mogganum. Skemmtistaðurinn Tunglið hyggst nú teknó- væða lýðinn á gamla Gauknum og var því blásið til VlP-teitis á föstudagskvöldið í þeim tilgangi. Goðsögnin Gaukurinn er nú stekkur og á nú á svo- kölluð klúbbastemning að ríða þeim húsunum í framtíðinni. Nú, býfluga og þemur henn- ar tættu í teknógírinn og mættu kl. 11 en þá átti partíið að hafa staðið í klukkustund - samkvæmt boðs- kortinu. Afar fátt var þó um fi'na drætti... Örfáar hræður á stangli og sást ekki einu sinni til Kidda Bigfoot sem er þó víst vert stað- arins. Pottþétt mestu vonbrigði helgarinnar. A1 Gore er búinn að vinna hug og hjarta Býflugu en hún hitti kappann þann fyrir tilviljun úti í Bláa lóninu hvar okkar kona lá í bleyti og hugsaði heimspekilega um fegurð náttúru íslands og hlýnun jarðar. Þeg- ar reykslæðan feyktist burt sá hún hvar A1 Gore stóð reffilegur ásamt kynþokkafúllum og dul- arfullum lífvörðum uppi á þaki bygging- arinnar og skimaði valdsmannlegur í kringum sig. Eða kannski var hann bara alveg heillaður upp úr kúrekaskónum? Allavega er hann búinn að gefa tóninn í ú'sk- unni hjá karlkyns valdamönnum og „vonnabís" hér- lendis; málið er að vera í jakkaföt- um og hrista upp í lúkkinu með kú- rekastígvélum. AF ÖÐRUM MEÐ ÁKVEÐNAR SKOÐANIR: Birna Þórðar var töff í leðurbux- um og leðurjakka með stór svört sólgleraugu að lóðsa útlenska ferðamenn um götur borgarinn- ar á laugardaginn, örugglega að leggja áherslu á slömmið þar sem hún stóð á horni Smiðjustígs og Hverfisgötu og menn hlustuðu andagtugir á mótmælagyðjuna okkar. Ogí bókabúð Braga Kristj- óns, góðvinar Birnu, aðeins ofar við Hverfisgöm, var söngfuglinn hún Ólöf Arnalds að spjalla við Braga, tengdaföður sinn, í svört- um og hvítum þverröndóttum sokkabuxum, glöð í bragði. Árlegt stórsveitamaraþon Stórsveitar Reykjavíkur fór líka • Ólöf Arnalds Rabbaði við I ■■ Braga Kristjóns, tengdaföð- ' ur sinn, í bókabúð hans á | laugardaginn. r.:::1 AD LmjA 1 SAR i fram á laugardaginn í Ráðhúsi Reykjavíkur en það er hvorki meira né minna en 12. árið í röð. Flaug við þar sem sveiflan réð ríkjum hjá ungum sem öldnum og varð hugsað til Kristnihátíðar- innar á Þingvöllum hér um árið þegar nær allir viðstaddir tróðu upp. Sama dag fór Býfluga í fýluferð í Kling og bang galleríið á Hverf- isgötu 42 en hún reyndist sólar- hring of sein að mæta á gjörninga- dagskrána en eitthvert blaðanna auglýstí vitlausan sýningartíma. Fór víst fram á föstudaginn. Hafði einmitt verið rosalega spennt að berja augum kynninn, hinn mikla lífskúnstner Ármann Reynisson, en það hlutverk hlýtur að fara honum af- skaplega vel úr hendi. Þó var sárabót að hitta þar fyrir í sömu erindagjörðum hinn sprellfjöruga og klára klerk og nýyrðaskáld; Pétur Þor- steinsson, sem messar hjá Óháða söfnuðinum. Fannst hann í augnablik vera Snorri Ásmunds listamaður sem ætlaði einmitt að vera í hópi gjörningamanna en inn- tur eftir því svaraði Pétur að bragði: „Nei, ég er ekki Snorri - þótt báðir séum við stað- greiddir. Sköllóttir..." Bima Þórðardóttir Lóðsaði erlenda ferðamenn um götur borgarinnará laugardaginn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.