Dagblaðið Vísir - DV - 14.04.2008, Side 21
DV Sport
MÁNUDAGUR 14. APRÍL 2008 21
menn leyfa okkur að hitna er þetta
búið," sagði stórskyttan Magnús.
Gríðarleg stemning var með-
al áhorfenda í gær sem voru komn-
ir löngu fyrir leik að hita upp radd-
böndin. Árni Sigfússon, bæjarstjóri í
Reykjanesbæ, mætti á svæðið en pó-
lítikusar fá ekkert gefins þegar íþrótt-
ir eru annars vegar og bæjarstjórinn
varð að sætta sig við að standa megn-
ið af leiknum. TaKesha Watson, leik-
maður íslandsmeistaraliðs Keflavík-
ur, varð einnig að sitja uppi á ofni.
Hreggviður Magnússon, leikmað-
ur iR, hefur farið mikinn í fjölmiðl-
um undanfarið en á hann var algjör-
lega lokað í leiknum í gær. Hann var
með skelfilega nýtingu í fyrri hálfleik,
1 af 5 í stökkskotum, 0 af 2 í þristum
og 1 af 2 í vítum og var aðeins með 3
stig. Ef ÍR ætíar ekki að koksa á loka-
prófinu verður Hreggviður að hysja
upp um sig buxurnar. Hann endaði
með 11 stig.
Áfram hélt sýning Keflavíkur í
þriðja leikhlutanum og voru áhorf-
endur strax þá farnir að syngja
„ole, ole, ole". Sigurður sagði stnum
mönnum þó að halda haus. Varn-
arleikur Keflvíkinga var frá-
bær í gær. Eitt sinn fékk
Nate
Brown meira að segja dæmdar á sig
5 sekúndur sem gerist varla í sjötta
flokki. Fjórði leikhlutinn var síðan
formsatriði þar sem ungir og efnileg-
ir leikmenn fengu að spreyta sig. Sig-
urinn var því sanngjarn.
„Mér fannst reyndar halla veru-
lega á okkur í dómgæslunni, dóm-
ararnir voru slakir ekki síður en við.
Við ætíuðum að koma klárir og það
er ljóst að það verður erfitt á mið-
vikudaginn. Við gerum okkur grein
fyrir því að þetta er hörkulið sem við
erum að spila á móti, það náði að
ýta okkur út úr okkar leik og það er
auðvitað afar svekkjandi að geta ekki
klárað þetta eftir góða byrjun," sagði
Eiríkur sem skoraði 9 stig.
Allir lofa því að vera tilbúnir
Þjálfari Eiríks, Jón Arnar Ingvars-
son, var heldur ekki sáttur við dóm-
ara leiksins. „Nú erum við búnir að
spila tvo slaka leiki í röð og búnir að
gefa Keflavík mikið sjálfstraust um
leið. Hins vegar er þetta aðeins einn
leikur á miðvikudag og við verðum
klárir í það. Við höfum spilað þessa
leiki illa, erum of linir og við þurfum
að gera betur ef við ætíum okkur að
vinna gott lið Keflavíkur. Þeir spila
fast og allt það en samt fáum við fleiri
villur en þeir. Það er svolítið skrýtið
en dómararnir réðu ekki úrslitum í
þessum leik. Það var fyrst og fremst
að við spiluðum illa og ég ætíast til
þess að mínir menn komi einbeittir
og spili sig í gegnum þá stöðu sem
Fórhamförum TommyJohnson
byrjaði á bekknum en kom inn á með
miklum hvelli. Hann skoraði 28 stig.
sm--.
Eiríkur Önundarson,
fyrirliði (R, lofar betri leik
sinna manna á miðvikudag.
kemur upp. Hvort sem það er dóm-
gæsla eða andstæðingar."
Keflavíkurhraðlestin brunar um
þessar mundir og það er erfitt að
sjá ÍR stoppa hana í þessum ham á
hennar heimavelli. Lykilmenn liðsins
brugðust, fóru að tuða við dómarana,
hentu boltum út af, létu dæma á sig 5
sekúndur og svona er lengi hægt að
halda áfram. Ef öskubuskuævintýri
ÍR á að halda áfram þurfa þeir leik-
menn sem eiga að teljast fykilmenn
að stíga upp og sýna úr hverju þeir
eru gerðir. „Við höfum engu að tapa á
miðvikudag. Við erum búnir að tapa
tveimur í röð, við höfum ekki gert
mikið af því að tapa þremur í röð, svo
við mætum klárir og það er ekkert
annað en að klára dæmið þar," sagði
Eiríkur, fyrirliði ÍR.
f þessum ham ráða fáir við Kefla-
vík og það er engin tilviljun að liðið
vann deildina. Lykilmenn þar á bæ
áttu heldur ekki neinn stórleik en
þá stigu aðrir upp. Þröstur Jóhanns-
son kom gríðarlega sterkur inn og
skoraði 19 stig. Honum fylgdi kraft-
ur og barátta. „Liðið spilar á getu
núna. Menn voru ekki sáttir við sína
frammistöðu eftir fyrstu tvo leikina,
hvorki einstaklingar né liðið. Sem
sannir keppnismenn tóku þeir sig
saman og breytm því.
Ég hef heyrt af því að við spilum
gróft en það er svo langt í frá. Við
spilum af meiri krafti. Við spilum fast
og vel. Við ætlum okkur að vera ein-
beittari og ákveðnari en andstæðing-
arnir.
Við eigum einn leik eftir, hann er
á miðvikudaginn og ég lofa að við
verðum tilbúnir."
Ronaldinho er á förum frá Barcelona til AC-Milan:
RONALDINHO SAMÞYKKTI
SAMNINGSTILBOÐIÐ
ÉG ER FARINN
Ronaldinho ervið
það að ganga til liðs
við hið fornfræga
lið AC-Millan.
Brasilíumaðurinn Ronaldinho er
á leiðinni til AC-Milan ef marka má
orð umboðsmanns kappans sem
segir hann hafa samþyklct
samningstilboð frá ít-
alska stórveldinu.
Ronaldinho mun
ekki leika með
Barcelona það
sem eftir er leik-
tíðar vegna
tognunar í
hné. Hann ku
vera þreyttur
á lífinu í
Barcelona og
hugi að vista-
skiptum. „Við eigum eftir að skrifa undir
en það er einungis formsatriði því við
erum sammála um alla hluti. Ronaldinho
var sáttur við samningstilboðið og AC-
milan er ffábært lið," segir umboðsmaður
og bróðir Ronaldinhos, De Assis.
Adriano Galliani, stjómarmaður AC-
Milan, staðfesti orð umboðsmannsins.
„Við höfum náð samkomulagi við leik-
manninn í meginatriðum. Næst á dagskrá
er að klára að semja um verð við Barce-
lona, gefið okkur tíma," segir Galliani.
De Assis sást á leik með Chelsea fyrir
skömmu og samstundis fóru sögusagnir í
gang um að hann myndi fara til Lundúna
en Manchester City var einnig orðað við
Brasilíumanninn. De Assis segir hins
vegar að hann hafi aðeins verið gestur á
Stamford Bridge og hann hafi ekki rætt
formlega við forráðamenn Chelsea um
kaup á Ronaldinho. „Meginmáli skiptir
að hann verði ánægður þar sem hann
verður. Vonandi verða liðin fljót að ná
samkomulagi um verð," segir De Assis en
Ronaldinho hefur tvívegis verið valinn
besti leikmaður heims, árið 2004 og 2005.
Carlo Ancelotti, þjálfariAC-Milan, hef-
ur gefið það út að hann vilji fá Ronaldinho
og Andrej Schvechenko til þess að bæta
sóknarlínu liðsins. AC-Milan hefur átt í
stökustu vandræðum með að skapa mark-
tækifæri og skora mörk á leiktíðinni.
vidar@dv.is
ÍÞRÓTTAM0LAR
HAUKAR fSLANDSMEISTARAR
Haukar urðu (slandsmeistarar (
handbolta karla á föstudaginn var þegar
þeirvöltuðuyfirFram aðÁsvöllum,41-
30. Enn eru fjórar
umferðireftiraf
(slandsmótinu en
Haukarsýnduí
leiknum yfirburði
s(na á íslands-
mótinu íleiknum
gegn Fram þar sei
þeirspiluðu
listahandbolta á
köflum. Haukar
hafa nú ekki bara 10 stiga forskot á toppi
deildarinnar heldur hafa þeir einnig
betur í innbyrðis viðureignum gegn
öllum liðum. Enn fremur hafa hin liðin
sama og hætt keppni en margir þeirra
leikja sem hafa verið í síðustu tveimur
umferðum mótsins hafa verið vægast
sagtskelfilega spilaðir.
TAPGEGN MEXlKÓUM
Karlalandsliðið í íshokkí tapaði seinasta
leik sínum í B-riðli 2. deildar heimsmeist-
arakeppninar í íshokkí þegar liðið tapaði
6-4(yrirMexíkó.
(slenska liðið
byrjaði skelfilega
ogvar4-1 undir
eftirfyrstu lotu. Það
bætti sig í annarri
lotu og minnkaði
muninn (5-4. (von
umaðjafna leikinn
var markvörðurinn
tekinnútafá
seinustu mínútu leiksins og sóknarmanni
skipt inn (staðinn. Það gekk ekki heldur
skoruðu Mexíkóar sjötta markið. Jónas
Breki Magnússon skoraði tvö mörk og
Birgir Hansen og Ingvar Jónsson sitt
markið hvor. (slenska liðið hélt sér (
deildinni og flestir leikir þess voru jafnir.
%
FRAMVANN GRÓTTU
Fram heldurfjögurra stigaforystu í N1-
deild kvenna í handknattleik eftir 26-28
sigur á Gróttu á laugardag. Fram var yfir
10-17 í hálfleik og 18-25 um miðjan
seinni hálfleik.
Góður leikkafli
heimaliðsins kom
þvíafturinní
ieikinn en ekki
nógu nálægt Fram
til að krækja f stig.
Fram á tvo leiki
eftir,gegnValog
FH.Tapi liðið
öðrum leiknum
opnast leið Stjömunnar eða Vals.
Stjaman er í öðru sæti, stigi á undan Val,
en bæði liðin eiga þrjá leiki eftir og
mætast í seinustu umferðinni þegar
Fram situr hjá.
TAPAÐIFYRIR UNGVERJA
Júdókappinn
ÞormóðurJónsson
féll úr leik (fyrstu
umferðá
r Evrópumeistara-
mótinuíjúdósem
fram för í Portúgal
um helgina.
Þormóður, sem
. keppir(+100kg
flokki, tapaði fyrir
Ungverjanum Barna Bor. Bor vann á
ipponi eftir fjóra og hálfa mlnútu.
STJARNAN OG ÞRÓTTUR N. LEIÐA
Stjaman og Þróttur Neskaupstað eru
komin í forystu í úrslitaeinvígum um
(slandsmeistaratitilinn í blaki. Stjarnan
vann Þrótt Reykjavík 3-1 í gær (
karlaflokki. Austurá Norðfirði unnu
heimamenn nafna sinn úr Reykjavík 3-0
á laugardag (kvennaflokki. Kvennaliðin
mætast aftur (kvöld. Það lið sem fyrr
vinnurtvo leiki verður (slandsmeistari.
ÓLAFUR f ÚRSUT
Ciudad Real, lið Ólafs Stefánssonar,
tryggði sér um helgina sæti (úrslitum
Meistaradeildarinnar (handknattleik.
Liðið tapaði fyrir Hamburg 32-26 á
útivelli en þar sem Ciudad vann fyrri
undanúrslitaleikinn með sjö mörkum fór
spænska liðið áfram. Ólafur var
markahæstur leikmanna Ciudad (
leiknum, skoraði átta mörk þar af fjögur
úrvftaköstum.