Kópavogsblaðið - 01.01.2007, Side 3
Bæjarstjórn Kópavogs sam-
þykkti á fundi sínum 12. des-
ember sl. fjárhagsáætlun Kópa-
vogsbæjar fyrir árið 2007. Enn
sem fyrr hefur Kópavogsbær
sérstöðu meðal íslenskra sveit-
arfélaga, fjárhagur bæjarins er
traustur, rekstarafgangur mikill,
íbúafjöldi vex jafnt og þétt og
þjónustustig er hátt.
Uppkaup lands voru forsenda
þessa mikla vaxtar sem hefur ein-
kennt Kópavog sl. 16 ár. Ný hverfi
hafa risið í Vatnsenda síðustu ár
og eru frekari landakaup í honum
fyrirhuguð til að tryggja framtíðar-
byggingarland bæjarins og áfram-
haldandi vöxt hans.
Fjárhagsáætlun Kópavogs-
bæjar fyrir árið 2007 ber þessar-
ar stefnu bæjaryfirvalda glöggt
merki. Með byggingu nýrra
íbúðahverfa vaxa tekjur sveitar-
félagsins og jafnframt útgjöld.
Hafa aldrei áður verið ráðgerðar
jafn miklar framkvæmdir og fjár-
festingar í byggingarlöndum af
hálfu Kópavogsbæjar og á næsta
ári, samtals 6,8 milljarðar króna.
Umsvifamesti málaflokkurinn
hvað framkvæmdir snertir eru
íþróttamál sem fá í sinn hlut 1,7
milljarð króna, en framkvæmdir
við nýjar og gamlar götur verða
1,2 milljarður króna. Tæpur millj-
arður fer í framkvæmdir við leik-
og grunnskóla og 1,5 milljarður í
kaup á nýbyggingarlandi.
Helsta vaxtarsvæði Kópavogs
verður áfram í Vatnsenda, en ný
hverfi rísa einnig í Fossvogsdal
og á Kársnesi auk þess sem gert
er ráð fyrir framkvæmdum og
aukinni þjónustu við eldri hverfi
bæjarins.
Rekstrarafgangur,
veltufé, skuldir, gjöld
Þrátt fyrir mikinn vöxt sveitarfé-
lagsins og auknar kröfur um meiri
þjónustu við íbúa hefur rekstur
Kópavogsbæjar gengið vel undan-
farin ár. Samkvæmt fjárhagsáætl-
un 2007 verður ekki breyting þar
á. Gert er ráð fyrir að rekstraraf-
gangur ársins, rúmir 2 milljarðar
króna, verði 19% af skatttekjum
bæjarins en þær eru áætlaðar
10,4 milljarðar króna. Veltufé frá
rekstri er 15% af heildartekjum
bæjarins.
Heildartekjur Kópavogsbæjar
árið 2007 eru áætlaðar rúmir 14
milljarðar króna. Gert er ráð fyrir
að skatttekjur aukist um 1,2 millj-
arða króna milli ára, ef miðað er
við endurskoðaða fjárhagsáætl-
un ársins 2006, eða um 13%. Gert
er ráð fyrir að álagning útsvars
og fasteignaskatts haldist óbreytt
milli ára og íbúum fjölgi um 4%.
Leikskólagjöld og önnur þjónustu-
gjöld haldast óbreytt og er það
raunlækkun um 7%.
Laun og launatengd gjöld eru
stærsti einstaki útgjaldaliður
bæjarsjóðs og stofnana hans
og eru 52,3% af heildargjöldum.
Áætlað er að útgjöld til rekstrar
málaflokka A-hluta verði um 11,2
milljarðar króna sem er um 9%
hækkun. Mest hækkun á sér stað
á sviði fræðslu- og uppeldismála,
eða alls um 700 milljónir króna.
Heildarskuldir án lífeyrisskuld-
bindinga í árslok 2007 eru áætl-
aðar 11,1 milljarður króna, endur-
skoðun 2006 gerir ráð fyrir 10,7
milljörðum og heildarskuldir 2005
á árslokaverðlagi 2006 (nv 266,1)
eru 10,6 milljarður króna. Einn
mælikvarði á fjárhagslega stöðu
sveitarfélaga er sá árafjöldi sem
það tæki að greiða niður skuldir
þess ef engar framkvæmdir væru,
hjá Kópavogi er hann áætlaður
4 ár.
3KópavogsblaðiðJANÚAR 2007
���������
��������������
���������������
��������
��������
���������������
�������
�����������
�������������
������������������
����������������������������������������������
�������������������������
��������������������������� ��� �����������������������
���������������������
�
�
�
�
�
�
�
�
�
�
��
���
���������
��
�������
����
�
��
�������������
��������������
����������������
��������
����������
���������
����������������
��������
og Landsbankanum
Smáranum
Traustur rekstur Kópavogsbæjar
Kópavogsbær hefur mikla sérstöðu meðal
íslenskra sveitarfélaga, rekstrarafgangur er
mikill og fjárhagsstaða sterk. Sterk fjárhags-
staða endurspeglar gríðarmikla framkvæmda-
getu. Þjónustustigið er mjög hátt.
Hafnarstjórn Kópavogs er afar
ósátt með það hvaða stefnu starf-
semi Einingaverksmiðjunnar Borg-
ar hefur tekið, en fyrirtækið er
búið að breiða úr starfseminni,
langt utan lóðarmarka fyrirtæk-
isins. Hafnarstjóra og skrifstofu-
stjóra framkvæmda- og tæknis-
viðs var falið að ræða við forsvars-
menn fyrirtækisins.
Hafnarstjórn vill losna við bát-
inn Storm SH-333 úr Kópavogs-
höfn og var skrifstofustjóra fram-
kvæmda- og tæknisviðs falið að
skrifa eigendum bátsins bréf þar
að lútandi. Hafnarstjórn vill að
báturinn fari sem fyrst á brott úr
Kópavogshöfn. Á síðasta fundi
hafnarstjórnar voru einnig til
umræðu málefni Hjálparsveitar
skáta, en þau mál eru í vinnslu
í skipulagsnefnd. Rætt var um
umsókn um Listahús, en skipulags-
vinna er í gangi á milli umsóknar-
aðila og skipulagsstjóra. Það mál
tengist að vissu marki kynningu
á skipulagshugmyndum á hafnar-
svæðinu, en sá fundur fór fram
skömmu fyrir jól í Salnum í Kópa-
vogi.
Hafnarstjórn ósátt
við starfsemi
Einingaverks-
miðjunnar Borgar
Lista- og menningarráð Kópa-
vogs hefur keypt fyrir Gerðarsafn
á 630 þúsund krónur 7 verk úr
myndaröðinni “Landlit” frá um
1967-1970 eftir Valgerði Briem.
Verkin eru af stærðinni 55 x 88,5,
litaduft, vatn og blönduð tækni.
Jafnframt gefa börn Valgerðar
Breim 10 myndir í sömu syrpu
“Landlit” og myndröðina “Fuglar”
- syrpa í heild sinni 14 myndir,
frá árunum 1975-1078, tækni túsk.
Stærð þeirra er 21 x 14,7. Einnig
var samþykkt að þiggja boð um
kaup á steindum glugga úr húsi
Alberts Guðmundssonar, Lauf-
ásvegi 68 Reykjavík, eftir Gerði
Helgadóttur fyrir 1,4 milljónir
króna.
Landlit og
steindur gluggi