Kópavogsblaðið - 01.01.2007, Qupperneq 4

Kópavogsblaðið - 01.01.2007, Qupperneq 4
4 Kópavogsblaðið JANÚAR 2007 Bláu húsin við Faxafen Suðurlandsbraut 50 108 Reykjavík Sími: 568 1800 gleraugad@simnet.is www.gleraugad.is Sjóntækjafræðingur með réttindi til sjónmælinga og linsumælinga Greiðslukjör í allt að 36 mánuði (visa/euro) Engin útborgun Árið 2006 var gott ár og hið nýja lofar góðu Síðasta ár var var sérstakt ár fyrir Sjálfstæðisflokkinn í Kópa- vogi í ljósi þess að það var fyrsta heila árið sem Sjálfstæðismaður sat í stól bæjarstjóra Kópavogs. Þetta var ánægjulegt fyrir okk- ur Sjálfstæðismenn ekki síst þar sem við höfum tekið þátt í upp- byggingu bæjarins á mesta fram- faraskeiði hans í ásamt Framsókn- arflokknum frá árinu 1990. Þá var það sérstaklega ánægjulegt að eftir hálfs árs setu Gunnars I. Birgissonar í stól bæjarstjóra að Sjálfstæðisflokkurinn skildi vinna sinn stærsta kosningasigur í bænum frá upphafi. Eitt heitasta málið kosningabar- áttunni voru kaup bæjarins á Glað- heimalandinu eða Gustsvæðinu svo kallaða. Bæjarstjórnarmeiri- hlutinn lagði þá verðmat nokkurra fasteignasala á landinu til grund- vallar ákvörðun sinni. Nú er ljóst ef mið er tekið af sölu á byggingar- rétti á landinu sem samþykkt var í bæjarstjórn fljótlega eftir áramót að væntingar hafa gengið eftir. Búið er að loka dæminu og hagn- aður í samræmi við það sem gert var ráð fyrir. Þá flýtir þessi gjörn- ingur uppbyggingu á svæðinu sem gefur miklar tekjur í bæjarsjóð. Þá fá hestamenn lausn til framtíðar á sínum málum. Á árinu 2006 var að venju mik- ið um framkvæmdir. Í upphafi árs voru hafnar framkvæmdir við end- urbætur á Sundlaug Kópavogs og mun þeim ljúka síðar á þessu ári. Óhætt er að segja að um gjör- breytta sundlaug verður að ræða þó svo að 50 metra laugin verða áfram stollt Sundlaugar Kópavogs. Nýir og glæsilegir búningsklefar munu verða teknir í notkun, ný innilaug sem er 25X15m mun taka við gömlu lauginni auk þess sem byggð verður til viðbótar ný 10x6 m yfirbyggð barnalaug fyr- ir ungbarnasundið. Þá verða 2 nýir útipottar teknir í notkun auk nuddpotts. Einnig verður bætt við barnavaðlaug með leiktækjum. Hér verður því um eina flottustu, ef ekki allra flottustu, sundlaug landsins að ræða og þótt víðar væri leitað. Verulega bætt aðstaða til knattspyrnuiðkunar Það var líka ánægjulegt á síðasta ári að Kópavogsbær og Knattspyrnusamband Íslands und- irrituðu tímamótasamkomulag um afnot og aðstöðu í knatthúsi Kópavogsbæjar sem rísa mun í Vallarkór í Vatnsendahverfi síðar á árinu í tengslum við uppbyggingu Knattspyrnuakademíu Íslands. Þar með verður enn bætt svo um mun- ar aðstaða til knattspyrnuiðkunar í Kópavogi. Markmið samkomulags- ins er m.a að tryggja að knatthús- ið, sem uppfylla mun skilyrði sem sett eru vegna kappleikja á alþjóð- legum vettvangi, fái enn betri nýt- ingu. Það kemur kannski á óvart að það sé þörf fyrir nýtt knatthús í bæjarfélaginu þar sem þrjú sveit- arfélög ætluðu að standa að bygg- inu Fífunnar á sínum tíma og var talið að það myndi anna allri þörf. Að sumu leyti má líkja þessu við áætlanir á notkun vegamannvirkja þar sem allir útreikningar og spár um notkun eru ávallt undir því sem raun verður á. Þetta skýrist af því að aukin gæði leiða til aukinn- ar eftirspurnar og þar með meiri notkunar og víst er að bæði knatt- húsin munu verða full nýtt af íbú- um og æsku Kópavogs fljótlega eftir að Knatthúsið í Kórahverfi verður risið. Okkur Kópavogsbúum hefur öðl- ast sá heiður að halda næsta lands- mót UMFÍ. Af því tilefni var ákveð- ið að reysa nýja stúku á aðal knatt- spyrnuleikvangi HK og Breiðabliks í Smáranum. Stúkan mun verða tilbúin fyrir næsta keppnistímabil enda verður landsmótið haldið í byrjun júlí. Hér er um veglegt mannvirki að ræða og er heildar- kostnaður áætlaður 300 m. kr. og mun hún að rúma 500 manns. Æfingasvæði HK í Fagralundi hefur verið í mikilli uppbyggingu á undanförnum árum. Ekki aðeins hefur æfinga og keppnissvæðið ver- ið að taka stakkaskiptum síðustu ár heldur hefur félagsaðstaðan ver- ið bætt til muna með tilkomu nýs félagsheimilis á Svæðinu. Síðasta sumar var svo tekinn í notkun nýr gervigrasvöllur á svæðinu sem nýt- ist sem æfingasvæði bæði fyrir HK og Breiðablik. Einnig var lokið við að setja sparkvelli með gervigrasi við alla grunnskóla í bænum ef frá eru taldir nýjustu skólarnir sem enn eru í byggingu. Vellir þessir þjóna ekki aðeins vel í tengslum við skólastarf og frístundir tengd- ar skólastarfi heldur hafa þeir líka sannað notagildi sitt þegar hlé er á skólastarfinu hvort sem það er yfir hátíðarnar, í vetrafríi skólanna eða yfir sumarið. Íþróttahús með tveimur löglegum handboltavöllum Iðkendur handbolta eiga líka eftir að sjá mikla breytingar á næst- unni. Íþróttahús sem rísa mun í tengslum við nýja knatthúsið verð- ur að öllum líkindum tvöfalt að stærð. Þ.e.a.s. með tveimur lög- legum handboltavöllum, en eldri teikning gerði ráð fyrir einum velli. Þá er í fjárhagáætlun gert ráð fyr- ir að hafist verði handa annað handknattleikshús þótt gerð þess og endanleg staðsetning liggi ekki fyrir. Tennis íþróttinn fékk líka sinn skerf á síðasta ári því í júlí s.l. var tekin fyrsta skóflustungan að nýrri tennisaðstöðu innanhúss, Tenn- ishöllinni Kópavogi. Hún verður staðsett að Dalsmára 13 við hlið- ina á útivöllum TFK. Tennishöllin mun hýsa þrjá tennisvelli auk þjón- ustuaðstöðu. Stórum áfanga var náð í uppbyg- ingu gólfvalla GKG. Að vori síðasta árs afhentu bæjarstjórar Kópavogs og Garðabæjar Golfklúbbi GKG nýtt golfvallarsvæði í Leirdal. Um er að ræða 9 holu viðbót við golf- völl klúbbsins við Vífilsstaði. Golfvöllurinn var ekki eina sam- starfsverkefni Kópavogsbæjar og Garðabæjar sem var afjúpað rétt fyrir kosningar, því bæjarstjórarnir vígðu líka stíg sem liggur meðfram Hafnarfjarðarvegi og brú yfir Kópa- vogslæk. Stígurinn tengir saman Garðabæ og Kópavog og gerir hjól- reiðafólki og gangandi vegfarend- um kleift að fara milli sveitafélag- anna á greiðari hátt og án þess að farið sé út á Hafnarfjarðarveginn. En það er ekk i nóg að byggja mannvirki, svo ekki sé talað um íþróttamannvirki og stunda íþróttir af kappi án þess að sýna fyrirhyggju. Af því tilefni gerðu Kópavogsbær og Vátrygg- ingafélag Íslands, VÍS, með sér tímamótasamning sem felur í sér að VÍS slysatryggir öll börn undir 18 ára aldri sem stunda íþróttir eða aðra skipulagða félagsstarf- semi í Kópavogi. Þetta mun vera í fyrsta sinn sem bæjarfélag trygg- ir börn og unglinga með þessum hætti og er það vel. Nýir leikskólar og grunnskóli Margir nýir leikskólar hafa ver- ið byggðir á undanförnum árum enda hefur börnum í Kópvogi fjölgað hvað mest sveitarfélaga á landsvísu á meðan þeim hefur fækkað t.d. í Reykjavík. Árið 2005 var tekinn í notkun nýr leiksskóli í Vatnsendahvarfi og var gerður sérstakur samstarfssamningur við einkaaðila um rekstur hans. Á árinu 2006 var svo reistur nýr leik- skóli í Kórahverfi. Leikskólinn er 6 deilda og rúmar hann 120 börn. Nýr grunnskóli var einnig tekinn í notkun í hverfinu og hlaut hann nafnið Hörðuvallarskóli. Í upphafi síðasta árs voru niður- greiðslur vegna daggæslu barna hækkaðar umtalsvert. Markmið hækkunarinnar var að gera þjón- ustu hjá dagforeldrum fjárhagslega samkeppnishæfa við leikskólaþjón- ustu. Foreldrar allra barna sem dvelja hjá dagforeldrum og eiga lögheimili í Kópavogi eiga rétt á niðurgreiðslum dvalargjalds. Þá var síðar á árinu tekin upp sú nýjung að greiða sömu upphæð, 30.000 krónur, til foreldra og fer í niðurgreiðslu dagforeldra. Þetta var gert til þess að gera foreldrum auðveldara með að dvelja heima á fyrstu mánuðum barna sinna ef þeir kysu svo eða leysa mál sín með öðrum hætti. Stundum hefur verið talað um að aldurinn frá 16-18 ára aldurs sé hinn gleymdi aldur í lífi unga fólksins. Sjálfstæðisflokkurinn í Kópavogi markaði sér því þá ste- fnu á sínum tíma að koma skildi sérstaklega til móts við þennan hóp. Niðurstaðan varð sú að reisa sérstakt unglingahús þar sem starfsemi þess tæki mið af þörfum þessa aldurshóps. Framkvæmdir við húsið hófust á síðasta ári og eru þær langt komnar. Húsið var reist í nágrenni við Gerðarsafn og Salinn, tónslistarhús Kópavogs. Ekki er vafi á að sú starfsemi sem þar mun fara fram á eftir skila sér með sama hætti og önnur starf- semi á þessu svæði. Í tenglsum við byggingu Unglingahússins var einnig reist nýtt bílastæðahús sem mun þjóna svæðinu í heild sinni. Húsnæði fyrir eldri borgara Skortur á viðeigandi húsnæði fyrir eldri borgara var talsvert til umræðu á síðasta ári. Kópavogs- búar eru vægast sagt orðnir lang- þreyttir á þeim biðlista sem nú er eftir hjúkrunarrýmum í bænum. Úthlutunarreglur ríkisins virðast ekki taka miða af íbúaþróun í ein- staka sveitarfélögum og er það í raun alveg ólíðandi. Af þessum sök- um var ákveðið að skipulegga og hefjast handa við nýja byggð fyrir eldri borgara í Boðaþingi. Þetta var gert í samvinnu við Hrafnistu og hefur undirbúningur tekið nokk- ur ár. Þarna munu verða Hjúkrun- arrými, svo kallaðar öryggis- eða þjónustuíbúðir og loks gerir skipu- lagið ráð fyrir að einkaaðilar geti byggt þarna íbúðir í tengslum við þjónustumiðstöð sem rísa mun á svæðinu. Því miður hefur komið bakslag í þessa uppbyggingu þar sem hugmyndafræðin á bakvið verkefnið hefur ekki hlotið náð hjá heilbrigðisráðuneytinu. Á á síðasta ári fengum við Kópa- vogsbúar loks kirkjugarð í bæinn en hann liggur á mörkum Linda- og Salahverfis. Það fer svo að styttast í að byggð verði kirkja fyrir Linda- sókn við hlið garðsins. Bæjarfélag í úrvalsdeild Þrátt fyrir allar þær framkvæmd- ir, bættu þjónustu og lækkun þjón- ustugjalda hefur reksturinn aldrei gengið betur. Skuldir hafa verið að lækka og rekstrarafgangur hef- ur gefið mikið svigrúm til fram- kvæmda eins og sjá má af því sem að framan er talið. Í nýrri fjárhagsáætlun sem lögð var fram á fundi Bæjarstjórnar Kópavogs í desember voru megin niðurstöður áætlunarinnar eftir- farandi: • Áframhaldandi mikill rekstrar- afgangur Kópavogsbæjar á þessu ári sem stefnir í að nema 30% af skatttekjum á næsta ári. • Álögur á bæjarbúa lækka um 560 milljónir króna. • Hátt framkvæmdastig, þar sem 1,7 milljarðar króna fara í íþrótta- mannvirki, 1,5 milljarðar króna í í byggingu skóla og leiksskóla og 1,2 milljarðar króna í götur; bæði end- urnýjun eldri gatna svo og nýjar. • Áfram verður fjárfest í landi og byggt upp af sama krafti. • Skuldir bæjarins munu lækka. Af öllu framansögðu má ljóst vera að undir styrkri stjórn Sjálf- stæðis- og Framsóknarflokks hef- ur síðasta ár ekki aðeins verið viðburðaríkt heldur hefur mikill árangur staðfest að bærinn er í úrvalsdeild þegar kemur að saman- burði við önnur sveitarfélög. Ármann Kr. Ólafsson Forseti bæjarstjórnar Kópavogs Kópavogsbúar eru vægast sagt orðnir lang- þreyttir á þeim biðlista sem nú er eftir hjúkr- unarrýmum í bænum. Úthlutunarreglur rík- isins virðast ekki taka miða af íbúaþróun í einstaka sveitarfélög- um og er það í raun alveg ólíðandi. Af þess- um sökum var ákveð- ið að skipulegga og hefjast handa við nýja byggð fyrir eldri borg- ara í Boðaþingi. Ármann Kr. Ólafsson, forseti bæjarstjórnar Kópavogs. Auglýsingasími: 511 1188 - 895 8298

x

Kópavogsblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kópavogsblaðið
https://timarit.is/publication/1117

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.