Kópavogsblaðið - 01.01.2007, Side 10

Kópavogsblaðið - 01.01.2007, Side 10
10 Kópavogsblaðið JANÚAR 2007 Félag í eigu Sparisjóðs Kópa- vogs hefur keypt húsið sem er í byggingu sunnan Hálsatorgs í miðbæ Kópavogs. SPK mun eft- ir sem áður vera með útibú að Hlíðasmára 19. SPK mun ekki nýta allt húsið, heldur um helming hverrar hæðar og verður sóst eftir leigjendum í önnur rými. Ekki liggur fyrir hverjir það verða en markmið SPK er að fá þjónustu inn á neðri hæðina sem muni virka jákvætt á viðskipta- og mannlífið í miðbæ Kópavogs. “Forsendur kaupa okkar eru þær að okkar mat er að mikið tækifæri sé í staðsetningu hússins. Einnig mun aðgengi að húsinu vera til fyr- irmyndar og hringtorg sitt hvorum megin við brúnna í framtíðinni. Hús- ið er auk þess nútímalegt, glæsilegt og mun verða miðbæ Kópavogs og SPK til mikils sóma. Uppbygging miðbæjar Kópavogs hefur verið aðdáunarverð og afar jákvætt að mönnum hafi tekist það á sama tíma og ný hverfi hafa risið. Viðskiptavinir okkar hafa einnig margir sagt okkur um alllangt skeið að þeir vilji sjá SPK með höfuð- stöðvar sýnar í miðbæ Kópavogs. Markmiðið er umfram allt að geta þjónustað viðskiptavini okkar enn betur og stuðningur við framtíðar- áform okkar en æ fleiri viðskipta- vinir vilja njóta persónulegrar þjón- ustu SPK,” segir Carl H. Erlingsson sparisjóðsstjóri SPK. Þann 20. desember voru braut- skráðir nemar frá Menntaskól- anum í Kópavogi, við hátíðlega athöfn í Digraneskirkju. Alls 47 stúdentar, 17 iðnnemar og 12 nemendur af skrifstofubraut. Þá brautskráðust 3 nemar úr meistaraskóla matvælagreina. Einnig útskrifuðust frá skólan- um á þessu hausti 20 flugþjón- ustunemar þannig að alls voru brautskráðir 99 nemar frá Menntaskólanum í Kópavogi á þessu hausti. Í máli Margrétar Friðriksdótt- ur, skólameistara, kom m.a. fram að á haustönn hefur verið í gangi umfangsmikil vinna að undirbún- ingi og innleiðingu á gæðastjórn- unarkerfi skv. ISO 9001 sem er alþjóðlegur staðall um gæða- stjórnunarkerfi og þær kröfur sem þarf að uppfylla. Stefnt er að því að sækja um vottun á kerfinu fyrir lok þessa skólaárs. Skólinn hefur ráðið Þór Steinarsson sem gæðastjóra og hefur hann störf við upphaf vorannar 2007. Upplýsingatæknin verk- færi í öllum námsgreinum Fimm ára áætlun skólans um að gera upplýsingatæknina að verk- færi í öllum námsgreinum er nú að ljúka. Skólinn hefur sett sér áframhaldandi stefnu til ársins 2010 um að vinna áfram á þessari braut enda hafa flestir nemar skól- ans nú yfir að ráða fartölvu og kennarar hafa unnið mikið og óeig- ingjarnt starf við að skipuleggja áfanga í samræmi við upplýsinga- stefnu skólans. MK er aðili að Evrópusambandi hótel- og ferðamálaskóla en árlega er haldin Evrópukeppni á þessu sviði. Dagana 7.-12. nóvember sl. komu saman á Írlandi um 300 þátt- takendur frá 33 Evrópulöndum til að keppa sín á milli. Fulltrúar MK og Íslands að þessu sinni voru ferðamálaneminn Íris Jóhannes- dóttir og bakaraneminn Ragnar Th. Atlason. Þau sýndu bæði frá- bæran árangur ok komu heim með tvenn gullverðlaun. Forseti bæjarstjórnar, Ármann Kr. Ólafsson, afhenti útskriftar- nemum viðurkenningar úr Viður- kenningarsjóði MK sem stofnaður var af bæjarstjórn Kópavogs árið 1993. Tveir nemar hlutu viður- kenningu að þessu sinni, stúdent- arnir Valgeir Tómasson og Rúnar Helgason fyrir einstakan námsár- angur en Rúnar var jafnframt að ljúka iðnmeistaranámi í bakara- iðn. Menntaskólinn í Kópavogi tekur í notkun nýtt gæðastjórnunarkerfi Hverafold 1-5 Grafarvogi Núpalind 1 Kópavogi Reykjavíkurvegi 62 Hafnarfirði Opnunartími: Virka daga 16 - 22 Um helgar 12 - 22 Stór pizza með 2 áleggjum Fánar SPK eru þegar komnir við húsið, en verktakinn, byggingafyrir- tækið RIS ehf., mun skila því á næstu mánuðum. 99 nemar útskrifuðust frá MK skömmu fyrir jól. Hér er hópurinn í Digraneskirkju eftir útskriftarathöfnina. SPK á Hálsatorg að vori S.l. þriðjudag samþykkti bæjarstjórn Kópavogs eignarnám á hluta Vatnsendajarðarinnar við Elliðavatns, eða 863 hektara lands, sem felur í sér að eigandi jarðarinnar, Þorsteinn Hjaltested, fær greiddar 2,2 millj- arða króna auk þess að fá í sinn hlut 300 skipulagðar sérbýlislóðir auk 11% allra lóða sem skipulagðar verða á svokölluðum H-reit. Minnihluti bæjarstjórnar taldi sáttina færa Þorsteini allt að 12 milljarða króna, en bæjarstjóri, Gunnar I. Birgisson, taldi slíkar fullyrðingar fráleitar, en með sáttinni yrði ungu fólki tryggt byggingarland til framtíðar. Myndin er tekin austan Elliðavatns. Bæjarstjórn Kópavogs samþykkti eignarnám á Vatnsendajörðinni

x

Kópavogsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kópavogsblaðið
https://timarit.is/publication/1117

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.