Fréttablaðið - 12.04.2016, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 12.04.2016, Blaðsíða 28
Saga Sigurðardóttur er einna þekkt- ust fyrir einstaka hæfileika sem einn helsti tískuljósmyndari landsins en hún hefur einnig vakið athygli fyrir skemmtilegan fatastíl. Þessa stundina er Saga stödd í London. Þar var hún að komast í geymsluna sína sem hefur að geyma fjöldann allan af gersemum sem hún hefur safnað að sér í gegnum tíðina frá hinum ýmsu stöðum. Um þessar mundir er Saga mikið á ferðinni en hún leikstýrði sínu fyrsta tónlistarmyndbandi á dögunum fyrir söngkonuna Sylvíu ásamt því að vera að fara til Noregs í mánuðinum þar sem hún sýnir verk sín á ljós myndahátíð. Krókódílastígvél fyrstu kaupin Fyrstu kynni Sögu af notuðum fötum var þegar hún bjó í þorpi í Wisconsin eitt sumar þegar hún var í Verzló. „Það var dásamleg búð sem ég fór í en eigandinn var eldri dama með rauðan varalit og flotta lagningu með Chanel nr. 5 ilmvatn. Hún sat við afgreiðslu- borðið og hlustaði á Billy Holiday og oft var hún steinsofandi. Það var þar sem ég keypti mér rauð krókódíla kúrekastígvél.“ Áhugi Sögu á vintage-fötum og búðum ágerðist eftir það en hún byrj- aði fljótt að starfa í Rokki og rósum sem var ein vinsælasta „second hand“ búðin í Reykjavík á sínum tíma. „Við skvísurnar sem unnum saman í Rokki og rósum vorum algjörar vintage- drottningar og ég átti það til að mæta á mánudögum í vinnuna í bleikum pallíettukjól eða doppóttum 50´s samfestingi. Þar lærði ég að meta góða hönnun og falleg efni. Þarna byrjaði ég líka að að taka myndir á fullu sem leiddi til þess að ég hóf að læra tískuljósmyndun í London.“ Í dag hefur Saga tamið sér nokkra siði þegar hún kaupir sér notuð föt en hún segir að það sé mikilvægt að heimsækja vintage-búðir oft og ekki vera hrædd við að taka frá og hugsa málið. „Þetta er orðin hálfgerð söfnunarárátta hjá mér, rétt eins og sumir safna frímerkjum eða plötum. Ég geng oft frá skrifstofunni minni á Granda upp í Túnin og þá kem ég oft við í Gyllta kettin- um, Spútnik og fatamarkaðin- um á Hlemmi en með því að kíkja oft þá finnur maður gersemarnar á undan öllum. Svo versla ég líka stundum á Ebay. Svala Björgvins var Ebay-mentorinn minn á sínum tíma og með tímanum byrjar maður að þekkja vintage-hönnuðina. Til dæmis Diane Freis sem er góð fyrir 70´s print-kjóla og Bob Mackie fyrir fallega síðkjóla en hann hannaði eiginlega allt fyrir Cher.“ Finnur innblástur á netinu Saga notast mikið við vefsíðuna Pinterest til þess að fá hugmyndir áður en hún finnur sér notaðar flíkur. „Ég fæ hugmyndir á Pinterest og fer svo í búðirnar og leita. Svo sér maður líka oft eitthvað í tískublöðum sem mann langar í en er oft dýrt og þá getur maður stundum fundið sam- bærilegar flíkur í vintage-búðum. Ég var til dæmis sjúk í einn Gucci 70´s jakka en fann svo einn svipaðan í Nostalgíu rétt áður en hún hætti. Minn stíll er samt líka mikið 70´s eins og kögur, síðir kjólar, rúskinn og leður og ég dregst líka að fal- legum mynstrum. Svo er ég líka með smá goth- hlið, elska vikt- oríanska kjóla – fallegast er svartar blúnd- ur og flauel.“ Það eru þó ekki aðeins notaðar flíkur s e m S a g a ka u p i r s é r heldur er hún einnig hrifin af íslenskri hönnun. „Mér finnst allir hönnuðirnir í Kiosk æðislegir og Steinunn. Meirihlutinn af fötunum í skápnum er samt frá Aftur og REY. Ég kaupi sjaldnar fjöldaframleitt enda er það vistvænna. Ég myndi til dæmis aldrei fara í verslunarferð til útlanda í dag. Mér finnst alltaf eitthvað bogið við verðið í þessum stóru búðum eins og Primark. Að kaupa vintage-föt er einmitt svo gott því þá er maður að endurnýta.“ gunnhildur@frettabladid.is Klæðist bleikum pallíettukjól á mánudögum Ljósmyndarinn Saga Sig hefur frá menntaskólaaldri safnað notuðum fötum en hún segist vera með söfnunaráráttu á háu stigi. „Þennan hvíta pels keypti ég í Spúútnik. Bolurinn er út aftur og hálsmenið er frá Afganistan sem ég keypti á markaði í London.“ „Fjaðrajakkann fann ég í Gyllta kettinum.“ Glimmersamfestingur frá áttunda áratugnum. „Þetta rúskinnspils og skyrtan eru frá markaði í London.“ „Vintage-gersemar sem ég hef sankað að mér.“ Ég fæ hug- myndir á Pinterest og fer svo í búðirnar og leita. svo sÉr maður líKa oft eitthvað í tísKu- blöðum sem mann langar í en er oft dýrt og þá getur maður stundum fundið sambæri- legar flíKur í vin- tage-búðum. 1 2 . a p r í l 2 0 1 6 Þ r I Ð J U D a G U r24 l í f I Ð ∙ f r É T T a B l a Ð I Ð Lífið 1 2 -0 4 -2 0 1 6 0 4 :2 1 F B 0 3 2 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 9 0 7 -4 8 A 8 1 9 0 7 -4 7 6 C 1 9 0 7 -4 6 3 0 1 9 0 7 -4 4 F 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 3 2 s _ 1 1 _ 4 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.