Fréttablaðið - 12.04.2016, Blaðsíða 2
Veður
Í dag verður hæglætisveður og
víða bjartviðri, en skýjað með
köflum sums staðar, einkum um
landið vestanvert. Hiti 1 til 10 stig að
deginum, hlýjast vestantil á landinu
en kaldast í innsveitum norðaustan-
lands. sjá sÍðu 18
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is
UP! MEÐ
ÖRYGGIÐ
VW Up! frá aðeins:
1.790.000 kr.
slys Sautján ára drengur sem slas-
aðist alvarlega í bílslysi á Holta-
vörðuheiði síðastliðinn laugardag
lést af sárum sínum.
Tildrög slyssins voru þau að
fólksbíll sem var á leiðinni norður
heiðina fór út af veginum og fór
nokkrar veltur. Pilturinn, sem var
farþegi í aftursæti, kastaðist út úr
bifreiðinni. Hann var ekki í bíl-
belti.
Pilturinn var fluttur á gjörgæslu-
deild Landspítalans þar sem hann
var síðar úrskurðaður látinn.
Ökumaður bifreiðarinnar sem
og farþegi í framsæti sluppu með
minniháttar meiðsli.
Ekki er hægt að greina frá nafni
hins látna að svo stöddu en málið
er til rannsóknar hjá lögreglunni á
Vesturlandi.
– þea
Sautján ára
drengur lést
eftir bílslys
Þrenging hafin
Framkvæmdir eru hafnar við breytingu Grensásvegar á milli Bústaðavegar og Miklubrautar og munu þær standa yfir fram í september. Fyrirhugað
er að fækka akreinum úr fjórum í tvær og auka rými fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur. Einnig verður gróðursett á umferðareyju milli akreina.
Fréttablaðið/Pjetur
jafnréttismál Nýja stjórn Sam-
taka atvinnulífsins skipa sextán
karlar en einungis fjórar konur.
Auk þess er karl formaður stjórnar.
Stjórnin var kjörin á aðalfundi
samtakanna sem fram fór þann
7. apríl síðastliðinn. Konum í stjórn-
inni fækkaði um eina milli ára.
Konur í stjórninni eru Guðrún
Hafsteinsdóttir frá Kjörís, Mar-
grét Sanders frá Strategíu, Rann-
veig Grétarsdóttir frá Hvalaskoðun
Reykjavíkur og Rannveig Rist, for-
stjóri Alcan á Íslandi.
Að sögn Björgólfs Jóhannssonar,
formanns SA, tilnefna aðildarfélög
SA, til að mynda Samtök iðnaðar-
ins og Samtök félaga í sjávarútvegi,
nöfn í stjórn og kjörstjórn fer yfir til-
nefningarnar og svo er kosið. Fimm
nýir stjórnarmenn voru kosnir inn í
stjórnina á fundinum, allt karlmenn.
„Við erum ekki með reglur um
kynjakvóta í stjórninni vegna þessa
fyrirkomulags. Það getur alveg gerst
að við förum að setja reglur um
kynjakvóta. Þetta er ekki einföld
ákvörðun, aðildarfélögin sem slík
þurfa að koma að henni. Ég held þó
að flestallir átti sig á þessu og sjái
að það sé ástæða til að skoða þessi
mál,“ segir Björgólfur Jóhannsson.
„Þetta er náttúrulega ekki góð
ásýnd fyrir atvinnulífið en endur-
speglar að það eru miklu fleiri karlar
sem eiga og stjórna fyrirtækjum
heldur en konur. Þetta er einn veiki
hlekkurinn,“ segir Kristín Ástgeirs-
dóttir, framkvæmdastýra Jafnréttis-
stofu.
Kynjakvóti gildir um stjórnir
fyrirtækja en hið sama á ekki við
um félagasamtök eins og Samtök
atvinnulífsins. „Þó að jafnréttis-
lögin kveði á um að það beri að
jafna stöðu kynjanna sem mest þá
er engin kvótaskylda á félagasam-
tökum. Hins vegar er þetta dapurleg
ásýnd. Samtök atvinnulífsins eru
mjög valdamikið afl í samfélaginu
og það er greinilegt að karlarnir gefa
það nú ekki eftir svo glatt.“
Kristín segir að samtökin vanti
jafnréttisstefnu eða sýn í jafnréttis-
málum. „Þetta er eitthvað sem þarf
að taka til umræðu að finnast það
við hæfi að ásýnd þessara samtaka
sé með þessum hætti. Þarna skortir
jafnréttishugsun.“
saeunn@frettabladid.is
snaeros@frettabladid.is
Karlar í miklum
meirihluta stjórnar SA
Konur eru fimmtungur nýrrar stjórnar Samtaka atvinnulífsins eða eingöngu
fjórar af tuttugu. Enginn kynjakvóti gildir innan félagasamtaka eins og innan
stjórna fyrirtækja. Dapurleg ásýnd að mati framkvæmdastýru Jafnréttisstofu.
björgólfur jóhannsson, forstjóri icelandair Group og formaður Sa, ávarpar gesti á
aðalfundi Sa. Fréttablaðið/Vilhelm
Samtök atvinnulífs-
ins eru mjög valda-
mikið afl í samfélaginu og
það er greinilegt að karlarnir
gefa það nú
ekki eftir svo
glatt.
Kristín Ást-
geirsdóttir,
framkvæmdastýra
Jafnréttisstofu.
Kjaramál Sátt náðist í kjaradeilu
starfsmanna álvers Rio Tinto Alcan í
Straumsvík við vinnuveitendur. Rúm-
lega 61 prósent þeirra starfsmanna
sem greiddu atkvæði samþykktu
miðlunartillögu ríkissáttasemjara.
Tillagan var lögð fram þann nítjánda
mars síðastliðinn en þá höfðu deilur
staðið yfir í um það bil fimmtán mán-
uði.
Alls tóku 282 starfsmenn þátt í
atkvæðagreiðslunni en 330 voru á
kjörskrá. Var því rúmlega 85 prósenta
kjörsókn.
Vinnustöðvun var frestað tíma-
bundið á meðan atkvæðagreiðsla
fór fram. Henni lauk klukkan fjögur
í dag og var niðurstaðan kynnt hjá
ríkissáttasemjara.
Guðmundur Ragnarsson, formaður
VM – Félags vélstjóra og málmtækni-
manna, segir erfitt að segja hvort
menn séu ánægðir með niðurstöðuna
en bendir á að kjaradeilan hafi staðið
í fimmtán mánuði. Því hafi þetta
verið „niðurstaða sem báðir aðilar
kinkuðu kolli með“. Þá segir hann
að um sömu launahækkanir og á
almennum vinnumarkaði sé að ræða.
Fyrri kjarasamningur rann út í árs-
lok 2014. Síðan þá hafði gengið illa
að ná sáttum og fundu hafnarstarfs-
menn álversins sig knúna til þess að
fara í verkfall fyrr á árinu. Í stað þeirra
gengu yfirmenn álversins í hafnar-
störfin um tíma. – þea
Sátt náðist
í ISAL-
deilunni
Þetta er niðurstaða
sem báðir aðilar
kinkuðu kolli með.
Guðmundur Ragnars-
son, formaður Félags
vélstjóra og málm-
tæknimanna.
1 2 . a p r Í l 2 0 1 6 Þ r i ð j u D a G u r2 f r é t t i r ∙ f r é t t a B l a ð i ð
1
2
-0
4
-2
0
1
6
0
4
:2
1
F
B
0
3
2
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
9
0
7
-3
4
E
8
1
9
0
7
-3
3
A
C
1
9
0
7
-3
2
7
0
1
9
0
7
-3
1
3
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
3
2
s
_
1
1
_
4
_
2
0
1
6
C
M
Y
K