Fréttablaðið - 12.04.2016, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 12.04.2016, Blaðsíða 16
Skemmtilegustu æfingardagarnir mínir eru þegar ég tek axlir, fætur og rass. Ég tek axla- æfingar einu sinni til tvisvar sinnum í viku en fætur og rass allt að þrisvar. Guðrún Hólmfríður Ólafsdóttir Fólk er kynn- ingarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi við- tala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefð- bundið ritstjórnarefni. Blaðið fylgir Frétta- blaðinu daglega. Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson | Umsjónarmenn efnis: Sólveig gísla- dóttir, solveig@365.is, s. 512 5351, Vera einarsdóttir, vera@365.is, s. 512 5357 | Sölumenn: Atli Bergmann, atlib@365.is, s. 512 2447, Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434, Jóhann Waage, johannwaage@365.is, s. 512 5439, Jón Ívar Vilhelms- son, jonivar@365.is, s. 512 5429 Guðrún Hólmfríður Ólafsdótt- ir, einkaþjálfari og hóptímakenn- ari hjá Reebok fitness, stundar líkamsrækt sex til átta sinnum í viku enda er líkamsrækt henn- ar helsta áhugamál. Guðrún hefur keppt í fitness frá árinu 2004 en stærsti sigur hennar var á Ís- landsmeistaramótinu árið 2014 þegar hún varð heildarsigurveg- ari í fitness kvenna. „Í dag er ég í smá fríi frá keppnum, æfi þó alltaf stíft og stefni á að keppa árið 2018 ef allt gengur eftir. Ég lít svo á að bestu árin mín í fit- ness séu eftir og ætla ég að taka góða keppnisskorpu þegar ég kem aftur inn eftir pásu.“ Guðrún fær sér yfirleitt eggja- pönnuköku eða chia-graut í morg- unmat. Ég undirbý matinn alltaf daginn áður til að auðvelda mér lífið á morgnana,“ segir hún en uppskriftina að eggjapönnukök- unni má finna hér til hliðar. Hvernig æfir þú? Ég lyfti lóðum, geri þrekæfingar og sprikla í hóp- tímunum sem ég kenni. Ég lyfti sex daga vikunnar og reyni svo að taka einhvers konar þolþjálfun að minnsta kosti tvisvar í viku. Þegar ég undirbý mig fyrir mót fjölgar þó æfingum mikið og ég æfi þá ellefu til fjórtán sinnum í viku. Ég er líka með þrekhjól heima sem er fínt að fá útrás á yfir góðum sjónvarpsþætti. Á sumrin reyni ég að fara líka út að hjóla, ganga Esjuna eða skokka, en viðurkenni þó að ég á oft erfitt með að koma mér af stað í það. Hluti af markmiðum mínum fyrir þetta ár er að vera dugleg að hreyfa mig úti. notar þú fæðubótarefni/hvaða? Ég nota fæðubótarefni frá Sportlífi en daglega nota ég 100% Whey Protein annað hvort frá Stacker eða Scitec. Mín uppáhalds eru vanillu frá Stacker sem ég bæti smá kanil út í og karmellu frá Scitec. Í undirbúningi fyrir mót þegar mataræðið verður stífara nota ég glúta min, creatine og CLA og BCAA. Hvað finnst þér gott að fá þér í kvöldmat? Við strákurinn minn eigum okkur uppáhaldssalat sem hann kallar „salatið okkar“, í því er iceberg, gúrka, paprika, vínber, kjúklingabringa, kota- sæla, fetaostur og sítrónupipar. Mjög einfalt en sjúklega gott. Hvað finnst þér gott að fá þér í milli- mál? Uppáhalds millimálið mitt er grísk jógúrt með sykurlausu rifs- berjasírópi og frosnum berjum eða epli. Hvað færðu þér þegar þú ætlar að gera vel við þig? Svartan Doritos og sýrðan rjóma, það er bara eitt- hvað við þetta kombó sem gerir mig glaða. ertu morgunhani eða finnst þér gott að sofa út? Ég er morgunhani en um helgar þá sef ég til 8 eða 8.30 og það finnst mér voða fínt. Ef ég sef lengur þá líður mér eins og ég hafi tapað hluta af deginum. Uppáhaldsæfingin? Skemmti- legustu æfingadagarnir mínir eru þegar ég tek axlir, fætur og rass. Ég tek axlaæfingar einu sinni til tvisvar sinnum í viku en fætur og rass allt að þrisvar, þar af eru tveir buttlift-tímar sem ég kenni í Reebok fitness. Drekkur þú kaffi? Ég drekk kaffi og eiginlega alltof mikið af því. Það er einhvers konar stund milli stríða hjá mér þegar ég fæ mér kaffi. ertu nammigrís? Ég er algjör nammi grís og ef ég vissi ekki betur þá mundi ég skipta út öllum mat fyrir nammi. algjör nammigríS Enginn dagur er eins hjá Guðrúnu Hólmfríði Ólafsdóttur, einkaþjálfara, og er dagbókin því ein af hennar bestu vinkonum. Hún þjálfar í Reebok fitness, æfir sjálf mikið og stundar nám í HR. Ef hún vissi ekki betur myndi hún skipta út öllum mat fyrir nammi. Guðrún Hólmfríður Ólafsdóttir er dugleg að æfa auk þess að vera með fólk í einkaþjálfun, fjarþjálfun og kenna í hóptímum. „Ég lyfti sex daga vikunnar og reyni svo að taka einhvers konar þolþjálfun að minnsta kosti tvisvar í viku. Þegar ég undirbý mig fyrir mót fjölgar þó æfingum mikið og ég æfi þá ellefu til fjórtán sinnum í viku.“ MYND/ANTON BRINK Dæmigerður dagur hjá Guðrúnu: 5.30 Vakna og geri mig klára í daginn (borða yfirleitt morgun- matinn í bílnum á leiðinni í vinn- una). 6.30-10.30 Þjálfa í Reebok fit- ness. 10.00 Millimáltíð (yfirleitt ávöxt- ur og próteinshake) og æfi sjálf. 12.00 Þjálfa í Reebok fitness. 13.00-15.30 Skólinn, ég stunda meistaranám í heilsuþjálfun og kennslu í HR (hádegismaturinn borðaður í tíma, yfirleitt kjúlli eða túnfiskur og salat). 16.00 Sæki strákinn minn á leik- skólann og heim að borða milli- máltíð. 17.00 Fer með strákinn á fót- boltaæfingu eða fer sjálf að kenna í Reebok fitness. 19.00 Kvöldmatur og undirbý næsta dag. 22.30 Reyni yfirleitt að koma mér í háttinn í seinasta lagi hálf ellefu ef ég þarf að vakna snemma. eggjapannSa gUðrúnar: 1 dl haframjöl 2 dl eggjahvítur 15 g vanilluprótein 1 tsk. kanill 10 rúsínur Allt hrært saman og steikt á pönnu við lágan hita. 365.is Sími 1817 MÁNUDAGA TIL FIMMTUDAGA KL. 17:45 SPJALLÞÁTTADROTTNINGIN ELLEN ER MÆTT Á STÖÐ 2 1 2 . a p r í l 2 0 1 6 Þ r I Ð J U D a G U r2 F ó l k ∙ k y n n I n G a r b l a Ð ∙ h e I l s a 1 2 -0 4 -2 0 1 6 0 4 :2 1 F B 0 3 2 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 9 0 7 -3 9 D 8 1 9 0 7 -3 8 9 C 1 9 0 7 -3 7 6 0 1 9 0 7 -3 6 2 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 0 3 2 s _ 1 1 _ 4 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.