Málfregnir - 01.04.1989, Blaðsíða 14

Málfregnir - 01.04.1989, Blaðsíða 14
er auðvitað engum fært - getur hann aldrei teygt sig yfir allt sem að baki orðanna býr. Einhverrar lágmarksþekkingar er þó þörf, t.d. um örnefnin og landið, ntannanöfnin og fólkið, samfélagið, stjórnarfarið, stjórnmálin, atvinnulífið, söguna, menninguna. Eitt orð eða nafn getur haft ýmsar skírskotanir sem allt í einu skiptir öllu máli að skiljist. Það gæti t.d. verið Gljúfrasteirm, Börshuset eða Hákonshallen, svo að eitthvað sé nefnt. Til þess að verða ekki utan gátta í nor- rænum félagsskap verður maður að hafa einhverja lágmarksþekkingu af alfræði- legum toga og vera eitthvað kunnugur því efni sem um er rætt. Mér verður hugsað til fyrstu ferða minna til útlanda, bæði austur og vestur um haf. Ég var ungur og óreyndur og tungumálakunnáttan heldur fátækleg. Samt gekk betur en ég hafði búist við að gera sig skiljanlegan, en það olli mér vonbrigðum hvað mér gekk stundum illa að skilja það sem aðrir voru að tala um. Mér þótti þetta miður og var dálítinn tíma að átta mig á því að þessir erfið- leikar voru að allmiklu leyti tengdir ókunnugleika á staðháttum. Þeir voru sem sé fremur alfræðalegs eðlis en mál- fræðilegs. Auðvitað kannast maður við eitthvað svipað úr heimalandi sínu án þess að hafa kennt um ónógri íslensku- kunnáttu. En hvað sem því líður sýnir þetta að svo kölluð málhæfi, getan til að hafa vald á einhverju málkerfi, er ófull- nægjandi ef maður þekkir ekki til „stað- bundinna aðstæðna" í víðri nterkingu. Þeir erfiðleikar, sem íslendingar þurfa að glíma við í norrænu samstarfi, eru að mörgu leyti hinir sömu og vandamál annarra. Okkar viðfangsefni er að læra dönsku, norsku eða sænsku svo vel að við getum notað eitt þessara mála í ræðu og riti og skilið þau öll þrjú sem talmál og ritmál. Þetta er býsna mikið sem þarf að læra, ek',- i síst þegar haft er í huga að það er ekki aðeins til ein norska, heldur tvær, og þar að auki sægur af mállýskum, og það er ekki aðeins til ein sænska, heldur tvær, finnlandssænska og sænskt ríkismál, sem á sér svo ýmis staðbundin tilbrigði o.s.frv. Engar skyldur við Islendinga? En þetta er aðeins önnur hliðin á mál- inu. Þau vandamál, sem við erum að kljást við á norrænum vettvangi, eru ekki einvörðungu bundin við okkar skilning eða okkar vald á dönsku, norsku eða sænsku. Hversu vel sem við lærum þessi mál rekum við okkur þrá- sinnis á samskiptahindranir sem hverfa ekki með aukinni kunnáttu af okkar hálfu. Þessi vandi tengist þeirri stað- reynd að aðrar þjóðir vita yfirleitt enn minna um okkur en við um þær. Það er í sjálfu sér ósköp eðlilegt, en staðreynd samt. Við stöndum sem sé frammi fyrir vandamáli, sem ætti - að minni hyggju - að gefa meiri gaum en gert hefir verið til þessa. Hér er aftur um það að ræða að þekkja til menningar þjóðar og stað- bundinna aðstæðna, að vita um áhuga- mál fólks og hvað það talar um þegar það notar eigið mál. Mjög mætti draga úr erfiðleikum ís- lendinga með einföldum og ódýrum ráð- stöfunum. Ég skal nefna þrjú atriði: Fyrir tíu árum gaf Ráðherranefnd Norðurlanda (menningarmálaskrifstofan) út rit sem hét Vára grannsprák (NU- serien B 1978:11). Undir fyrirsögninni „Förslag till gemensamma nordiska rikt- linjer för grannspráksundervisningen" (þ.e. „Tillaga um sameiginlegar norrænar stefnureglur fyrir grannmálakennsluna") (bls. 13) segir meðal annars að grann- málakennslan stefni að því að veita fræðslu um einföldustu framburðarreglur í finnsku og íslensku. Á norræna málnefndaþinginu í Reykja- vík 1981 drap ég sjálfur á tvennt sem ég tel skipta enn meira máli, að því er íslendinga varðar. Ég lagði til að ís- lenska stafrófið og íslenskar nafnvenjur yrðu kynntar í öllum grunnskólum á 14

x

Málfregnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Málfregnir
https://timarit.is/publication/1146

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.