Málfregnir - 01.04.1989, Blaðsíða 29

Málfregnir - 01.04.1989, Blaðsíða 29
Sprák i Norden 1988. Ársskrift for Nor- disk spráksekretariat og spráknemndene i Norden. Nordisk spráksekretariats skrifter 9. 140 bls. Norræn málstöð í Ósló, sem er sameigin- legur vettvangur allra málnefnda á Norðurlöndum, gefur út þetta ársrit. Að þessu sinni er óvenjumikið af efni þess um íslenskt mál. Árið áður var hinn árlegi fundur norrænu málnefndanna, eða norræna málnefndaþingið, haldið á Akureyri, og var íslensk málrækt aðal- umræðuefni þess. Helstu erindin, sem þar voru flutt, eru nú birt í Sprák i Norden. Erindi Baldurs Jónssonar, „Is- lándsk sprákvárd", hefir verið birt í íslenskri þýðingu í Málfregnum 2, og erindi Jóns Hilmars Jónssonar, „Tend- enser og tradisjoner i islandsk orddann- else“, í Málfregnum 3. Auk þessara erinda, sem þegar hafa verið birt á íslensku, eru í ársritinu þrjár greinar, sem ástæða er til að vekja athygli íslenskra lesenda á. „Inhemskt och frámmande“ heitir stutt erindi, sem Birgitta Lindgren, starfs- maður sænsku málnefndarinnar, flutti á þinginu í fyrra og er sérstaklega tengt erindi Jóns Hilmars. „Purisme i nordisk sprákrókt“ nefnist erindi eftir Eyvind Fjeld Halvorsen, prófessor í Ósló. Þar er meðal annars vikið að íslenskri málstefnu frá dálítið öðru sjónarhorni en við erum vanir. Síðasta greinin um íslenskt efni í þessu hefti er „Islandsk sprogpolitik“ eftir Eirík Rögnvaldsson, dósent í íslensku í Háskóla íslands. Hún er óháð þinginu á Akureyri. Eiríkur bendir á að þróun samfélagsins undanfarna áratugi hefir breytt öllum skilyrðum til að málvenjur flytjist milli kynslóða með sama hætti og áður fyrr. Stjórnvöld og íslensk mál- nefnd fá ádrepu fyrir að bregðast hlut- verki sínu í þessuni vanda. Ýmislegt annað efni er í þessu ársriti Norrænnar málstöðvar, þar á meðal greinargerð um starfsemi stöðvarinnar og langur bálkur um nýjar bækur. Spraknenindenes telefonrádgivning. Nor- disk spráksekretariats rapporter 9. Ósló 1988. 270 bls. [Fjölrit] Allar öflugustu málnefndirnar á Norður- löndum hafa um langt árabil rekið skrif- stofu og málfarslega þjónustu, m.a. í síma. Hér á landi var tæplega um slíkt að ræða fyrr en Islensk málstöð tók til starfa í ársbyrjun 1985. Á norræna málnefndaþinginu 1983 talaði ritari sænsku málnefndarinnar, Bertil Molde, fyrir því að reynt yrði að rannsaka hvern árangur það bæri sem málnefndirnar væru að gera hver í sínu landi. Pessi hugmynd leiddi til þess að ákveðið var að hefja fyrst könnun á síma- ráðgjöf málnefndanna. Skyldi hún einkum beinast að því hverjir nýta sér símaráðgjöfina, um hvað sé spurt og til hvers. Hinir svo nefndu „norrænu ritarar“ á skrifstofum málnefndanna í Danmörku, Noregi, Svíþjóð og Finnlandi fengu það verkefni að skipuleggja könnunina og framkvæma hana, en Norræn málstöð átti að sjá um samræmingu starfsins og gefa út skýrslu að könnun lokinni. Þessi skýrsla liggur nú fyrir, og er þar margt fróðlegt að finna sem of langt er upp að telja hér. Til gamans skal drepið á fátt eitt. Mjög er misjafnt eftir löndum hve mikið er hringt til nefndanna. Norsk sprákrád í Ósló fær t.d. um 2300 hring- ingar á ári og hefir 10-12 ráðgjafa til að svara, samhliða öðrum störfum. Sænska málnefndin svarar 5000 hringingum ári, sænska málstöðin í Finnlandi álíka mörgum og danska málnefndin 8000. En Finnar fara langt fram úr þessu. Finnska málstöðin (Finska sprákbyrán) svarar fyrirspurnum í síma einungis kl. 9-14. Hún fær um 20 þúsund fyrirspurnir á ári og hefir einn starfsmann til svara. Petta 29

x

Málfregnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Málfregnir
https://timarit.is/publication/1146

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.