Málfregnir - 01.04.1989, Side 32
Sitt af hverju
Ný skipun í málnefnd
Menntamálaráðherra hefir skipað í
íslenska málnefnd frá 1. janúar 1989 til
næstu fjögurra ára. í nefndinni eiga nú
sæti:
Kristján Árnason dósent, formaður,
Jón Hilmar Jónsson orðabókarritstjóri,
varaformaður,
Jónas Kristjánsson prófessor
Sigrún Stefánsdóttir fjölmiðlafræðingur
Þórhallur Vilmundarson prófessor
Sigrún Stefánsdóttir er fyrsta konan sem
tekur sæti í íslenskri málnefnd.
Nýjar orðanefndir
í 1. tölublaði Málfregna (maí 1987) birt-
ist skrá yfir 22 orðanefndir sem íslensk
málstöð var í sambandi við. Eina nefnd
vantaði þó á skrána, Orðanefnd um há-
plöntuheiti, sem starfað hefir síðan í
byrjun árs 1987 undir forystu Jóhanns
Pálssonar garðyrkjustjóra.
Síðan hafa fjórar nefndir bæst við, og
hefir flestra verið getið áður í Málfregn-
um. Þær eru: Flugorðanefnd (1987), for-
maður Pétur Einarsson flugmálastjóri;
Orðanefnd ÍSÍ (1987), formaður Sig-
urður Magnússon, framkvæmdastjóri ÍSÍ;
Orðanefnd Tannréttingafélags íslands
(1987), formaður Teitur Jónsson tann-
læknir, og Orðanefnd um mat og matar-
gerð (1988), formaður Guörún Kvaran
orðabókarritstjóri.
Alls eru því 27 orðanefndir á skrá í
Islenskri málstöð.
Frá Orðanefnd byggingarverk-
fræðinga
Orðanefnd byggingarverkfræðinga var
stækkuð í fyrra, svo að nú eru í henni 10
menn í stað 7 áður. Jafnframt hefir
nefndin skipt sér í tvo vinnuhópa, og eru
þó 6 í hvorum. Annar hópurinn vinnur
að orðasafni um fráveitur og orðasafni
um vegagerð. Pað eru þau verkefni sem
nefndin hefir einkum fengist við að
undanförnu. Hinn hópurinn hefir hafist
handa við orðasafn um aflfræði og burðar-
þolsfræði. Einar B. Pálsson, formaður
nefndarinnar, og Ólafur Jensson starfa í
báðum vinnuhópunum, enn fremur Hall-
dór Halldórsson sem er ráðgjafi nefndar-
innar um málfræðileg efni.
Málfregnir koma út tvisvar á ári
Útgefandi: íslensk málnefnd
Ritnefnd: Jón Hilmar Jónsson og Kristján Árnason
Ritstjóri: Baldur Jónsson
Ritstjórn og afgreiðsla: íslensk málstöð,
Aragötu 9, ÍS-101 Reykjavík. Sími: (91) 28530,
(91) 622699, (91) 25088
Áskriftarverð: 600 krónur á ári
Prentsmiðja Árna Valdemarssonar lif.
ISSN 1011-5889
w
ÍSLENSK MÁLNEFND