Málfregnir - 01.11.1992, Qupperneq 2
BALDUR JÓNSSON
S
Islensk kynning í norrænum grunnskólum
Um þessar mundir er Norræn málstöð í
Ósló að hefja víðtæka kynningu á
íslensku efni í norrænum grunnskólum.
Einblöðungur með fræðslu um íslenska
stafrófið og íslenska nafnsiði verður
sendur til allra grunnskóla í Danmörku,
Finnlandi, Noregi og Svíþjóð nú í vetur.
Honum fylgir ávarp frá forseta íslands,
Vigdísi Finnbogadóttur. Kynningin er
ætluð nemendum í 5. bekk grunnskóla,
þ.e. 10-12 ára börnum.
Textinn var upphaflega saminn á ís-
lensku en síðan þýddur á dönsku,
finnsku, norskt bókmál, nýnorsku og
sænsku og um leið lagfærður og aðlagað-
ur eftir þörfum hverrar tungu. Einblöð-
ungurinn er gefinn út í brotinu A4, en
birtur hér smækkaður á bls. 3-4. Málið
er norskt bókmál.
Eins og lesendur geta vonandi séð,
þótt myndin sé smækkuð, eru á forsíðu
einblöðungsins aðeins kynntir þeir stafir
íslenska stafrófsins sem vantar í norska
stafrófið, og lýst framburði þeirra. Síðan
eru tekin fáein íslensk orð til þess að
börn geti spreytt sig á að bera þau fram.
Ekki var ætlunin að gera úr þessu fram-
burðarleiðbeiningar eða einhvers konar
kennslu í íslensku. Hins vegar gæti þessi
frumstæða kynning orðið eins og „hung-
urvaka" og kveikt í einhverjum forvitni
og löngun til að læra meira.
Á neðri hluta forsíðunnar hefst kynn-
ing á íslenskum nafnsiðum. Á baksíð-
unni er henni haldið áfram með vensla-
riti sem sýnir að konur taka ekki upp
nöfn eiginmanna sinna, en börn eru
kennd við föður sinn. Neðst á síðunni er
svo eyðublað, ætlað nemanda til að fylla
út. Þar getur hann spreytt sig á því að
skrifa nöfn foreldra sinna, föður- og
móðurforeldra samkvæmt íslenskri
venju og loks eigið nafn með sama hætti.
Þetta er þá prófsteinn á það hvort hann
hefir skilið útskýringuna á undan.
í grein sem birt var hér í Málfregnum
vorið 1990 (4. árg. 1. tbl.) og nefnist
„Þáttaskil í samskiptum norrænu mál-
nefndanna“ var sagt frá því að íslenski
fulltrúinn í framkvæmdanefnd Norrænnar
málstöðvar hefði varpað fram hugmynd
um kynningu af þessu tagi og henni hefði
verið vel tekið, enn fremur að Málfregnir
myndu hafa vakandi auga á framvindu
þessa máls. Síðan hefir mikil vinna verið
lögð í undirbúning kynningarinnar, bæði í
framkvæmdanefnd og stjóm málstöðvar-
innar og á milli funda. Málið hefír nú
hlotið endanlega afgreiðslu framkvæmda-
nefndar á fundi hennar í Stokkhólmi í
október sl., og er í höndum málstöðvar-
innar í Ósló að koma einblöðungnum í
skólana, sem skipta þúsundum. Til þess
að auðvelda dreifinguna fær hver skóli eitt
eintak ásamt fylgibréfi forseta íslands, en
síðan er gert ráð fyrir að skólarnir sjái um
nauðsynlega fjölföldun hver eftir sínum
þörfum. Norræn málstöð hefir fengið
samþykki skólayfirvalda í hverju landi til
þessara aðgerða.
Þessi kynning er mjög víðtæk og gæti,
þótt frumstæð virðist, haft mikil áhrif,
ekki síður þegar til langs tíma er litið. Ef
skólarnir taka henni vel, eins og vonir
standa til, má gera ráð fyrir að stafrófs-
blöðungurinn komist í hendur um 350
þúsund skólabarna á Norðurlöndum nú í
vetur og inn á jafnmörg heimili, auk þess
í hendur um 30 þúsund kennara að
minnsta kosti.
2