Málfregnir - 01.11.1992, Page 5

Málfregnir - 01.11.1992, Page 5
Tilgangur og tildrög í fyrrnefndri grein í Málfregnum 1990 (bls. 4) segir m.a.: Hugmyndin á rætur að rekja til þess hve tor- velt hefir reynst að koma íslenskum nöfnum klakklaust til skila í viðskiptum við aðrar nor- rænar þjóðir. Við gjöldum þess sífellt að þekking annarra á stafrófi okkar og nafn- siðum er ekki þáttur í almennri menntun, ekki einu sinni á Norðurlöndum. Eins og samskiptum þjóða er nú háttað - sérstaklega hinna norrænu frændþjóða - er engin ástæða til að láta við svo búið standa. f>að er miklu fremur skylda okkar að benda á þann þekk- ingarskort sem torveldar okkur samskiptin og gera heiðarlega tilraun til að bæta úr. Til þess er leikurinn gerður. Upptök þessa máls er að finna í fram- söguerindi sem ég flutti á norræna mál- nefndaþinginu í Reykjavík í ágúst 1981. Aðalumræðuefni þingsins var „Staða og hlutverk íslensku og færeysku í norrænu samstarfi“. í erindi mínu benti ég m.a. á hve illa er oft farið með íslensk nöfn í norrænum ritum og taldi að tvennt þyrfti að kynna í öllum grunnskólum á Norð- urlöndum, þ.e. íslenska stafrófið og íslenska nafnsiði (Morgunblaðið 15. sept. 1981, bls. 14—15; sænsk þýðing í Sprák i Norden 1982, bls. 5-15). Haustið 1982 kom til umræðu í mál- nefndinni vond meðferð íslenskra nafna í árbók Norðurlandaráðs, Nordiska sam- arbetsorgan, og varð upphaf að nokkurri rekistefnu, eins og rakið var á sínum tíma í Fréttabréfi íslenskrar málnefndar 1983 og 1984. Hún varð ekki með öllu árangurslaus. En upp úr því fór ég að velta því fyrir mér hvernig mætti haga því svo að vitneskja um þessi frumatriði í samskiptum við íslendinga gæti orðið almenningseign á Norðurlöndum, eitt- hvað sem hvert mannsbarn ætti og hlyti að þekkja og kunna. Ég þóttist sjá að frumfræðslu yrði að koma inn í grunn- skólana með einhverjum ráðum. Þá datt mér í hug að útbúa eins konar spjald í viðráðanlegu broti, hafa íslenska stafrófið öðrum megin á spjaldinu en kynningu á nafnsiðum hinum megin og reyna að koma því í hendur norrænna skólabarna. Ég ræddi málið við Kristínu Þorkelsdóttur, auglýsingateiknara og listmálara. Hún stakk upp á því að bætt yrði við blaði þar sem börnum gæfist kost- ur á að skrifa nafnið sitt, svo og nafn for- eldra sinna og foreldra þeirra að íslensk- um hætti. Ég tók saman texta í samræmi við það en Kristín hannaði brotblöðung í sama skyni veturinn 1985-1986. Við kynntum hugmyndina fyrir menntamála- ráðherra sumarið 1986 og fleiri forystu- mönnum, og var henni alls staðar mjög vinsamlega tekið, en ekki tókst að fá beina aðstoð við að koma henni í fram- kvæmd eða tryggja dreifingu til skól- anna, og við það sat. Sumarið 1989 fékk íslensk málnefnd aðild að framkvæmdanefnd Norrænnar málstöðvar, og ég tók þar sæti sem full- trúi íslands. Á næstfyrsta fundinum sem ég sótti, í febrúar 1990, hreyfði ég hug- myndinni um kynningu hins íslenska efnis og sýndi frumdrög okkar Kristínar. Sem fyrr segir var málinu mjög vel tekið og ákveðið að vinna að því áfram. Þannig komst það á rétta braut. Kristín gekk frá teikningum sínum í öllum lit- um, og blöðungurinn þótti afar álitlegur. En þegar fram í sótti kom í ljós að útgáfa hans yrði dýrari en fjárhagur Norrænnar málstöðvar leyfði, og ekki tókst að fá íslensk stjórnvöld til að hlaupa undir bagga. Eftir talsverða baráttu varð því að hætta við hin upphaflegu áform. Þá var brugðið á það ráð að einfalda kynn- inguna, koma henni fyrir á einu blaði, sem síðan yrði sent til fjölföldunar í hverjum skóla. Mikael Reuter í sænsku málstöðinni í Helsingfors réð mestu um hinn endanlega svip blaðsins. 5

x

Málfregnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Málfregnir
https://timarit.is/publication/1146

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.