Málfregnir - 01.11.1992, Blaðsíða 8

Málfregnir - 01.11.1992, Blaðsíða 8
með íðorðaforðanum. Einkunna- eða umsagnastiginn ágætt, gott, sœmilegt o.s.frv. er dæmi um þetta. Ef ákveðið er að ein villa gefi einkunnina „ágætt“ er ekki þar með búið að ákvarða eða afmarka merkingu orðsins ágætur nema í þessu ákveðna samhengi. Og þótt ein- kunnin „ágætt“ sé betri en „gott“ er ekki þar með sagt að það sem er ágætt sé alltaf og ævinlega betra en það sem er gott. í einkunnastiganum er ekki um að ræða neina skörun á merkingarsviði orðanna ágœtur og góður sem þar eru notuð sem íðorð. Mállegar andstæður skarast aftur á móti mjög oft, stundum þannig að inni- hald eins orðs felur í sér innihald annars en getur einnig verið andstætt því. Þetta mætti kalla umlykjandi andstæðu, t.d. ((nótt) : dagur). nótt dagur Hægt er að nota orðin dagur og nótt sér- hæft þannig að ákveðið sé að mörkin séu t.d. kl. 7 að morgni og að kvöldi. í venjulegu talmáli getur dagur hins vegar tekið yfir nóttina einnig og merkt nánast hið sama og sólarhringur, t.d.: „Ég var fjóra daga á Akureyri.“ f*að þýðir ekki að nóttunum á milli daganna hafi verið eytt annars staðar. Á svipaðan hátt höfum við ((kona) : maður) en í þýsku yfirheitið Mensch og útilokandi andstæðuna (Mann : Weib). Mensch Mann Weib Umlykjandi andstæður eru forsenda þess að eitt form geti haft tvær grunn- merkingar. Dæmi: 1) „maður“ geturver- ið sama og ‘karl’, andstætt ‘kona’, og 2) „maður“ getur verið yfirhugtak fyrir ‘karl’ og ‘kona’. Það er slík umlykjandi andstæða sem gerði hagsýnni húsmóður fært að segja við kaupmanninn: „Ekki hefði mann grunað að fiskurinn ætti eftir að verða dýrari en laxinn,“ þ.e. ((lax) : fiskur). Slík margræðni á helst ekki að finnast í íðorðaforða þó stundum örli á henni þegar orð úr daglegu máli eru notuð þar. Til dæmis mynda handleggur og hönd umlykjandi andstæðu í daglegu máli en útilokandi andstæðu í íðorðaforða líf- færafræðinnar. Oft er sama orðið notað bæði í dag- legu máli og sem íðorð án nokkurra árekstra. Það skiptir venjulega engu máli fyrir innihald orðsins salt að efnið skuli vera samsett úr tveimur frumefnum og táknað efnafræðilega með NaCl. Eða breyttist innihald orðsins vatn nokkuð við þá uppgötvun að efnið væri samsett úr vetni og súrefni? Vissulega skiptir þetta máli þegar orðin salt og vatn eru notuð sem íðorð (sbr. Reichling 1962). Einu sinni var að vísu talað um að vís- 8

x

Málfregnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Málfregnir
https://timarit.is/publication/1146

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.