Málfregnir - 01.11.1992, Side 10

Málfregnir - 01.11.1992, Side 10
voru tekin upp í íðorðaforða mál- fræðinnar. Langage er yfirheiti sem tekur yfir langue og parole (sbr. Coseriu 1978:29-30). Sá greinarmunur sem gerður er á þessum orðum í almennri frönsku er ekki fyrirvaralaust yfirfæran- legur á önnur mál. Þegar orðin verða íðorð er gerður nýr greinarmunur sem fellur ekki saman við þann sem gerður er í almenna málinu. Fræðilegt innihald orðanna er verulega frábrugðið notkun- arhætti þeirra í venjulegri frönsku. Samt sem áður var nýttur sá möguleiki sem franskan bauð upp á, og greinarmuninn er erfitt að gera í öðrum málum. Þýska hefur einungis Sprache og Rede sem gætu samsvarað langue og parole en verður að beita umorðun ef gera á mun á langue og langage. I þýsku er um að ræða umlykjandi andstæðu milli Sprache og Rede, þ.e. ((Rede) : Sprache). Ekki hafa þessi orð verið þýdd á íslensku svo samkomulag sé um. Ef til vill er ástandið svipað og í þýsku, þ.e. parole = tal, langue og langage = mál. Þó kemur e.t.v. til greina að nota tunga yfir „langage". langage tunga parole langue tal mál Vandræði skapast svo kannski af því að málfræðingar þurfa að nota orðin mál og tal einnig í almennu merkingunni. Leggja verður áherslu á að þessi vandi stafar ekki af því að innihald orðanna mál og tal í íslensku sé eitthvað óljóst. Það er nefnilega stundum látið í veðri vaka að fræðilegur skilgreiningarvandi sé málinu að kenna. Þetta er augljóslega rangt, því þótt erfitt sé að skilgreina t.d. sjúkdóm kemur það ekki málinu við né heldur stafa vandræðin af því að merk- ing orðsins sjúkdómur sé óljós eða teygj- anleg. Þetta er fræðilegur vandi en ekki mállegur. Og þegar hann hefur verið leystur með samkomulagi um það hvaða skilmerki afbrigðilegt ástand þarf að hafa til að kallast sjúkdómur í læknis- fræðilegum skilningi hefur merking orðs- ins sjúkdómur í daglegri íslensku ekki verið skilgreind þar með. Hún er óbreytt eftir sem áður og læknar geta ekki kvartað yfir því þótt eitthvað sé kallað sjúkdómur sem ekki er það í læknis- fræðilegum skilningi. Þótt starfsheitið kennari hafi verið lögverndað rænir það okkur ekki réttinum til að nota orðið eins og okkur finnst réttast. Við getum kallað hvern þann kennara sem okkur sýnist vera það, okkur sjálf einnig, svo lengi sem við forðumst að nota orðið sem starfsheiti án þess að hafa rétt til þess. Enginn getur með lögum lagt undir sig orð úr daglegu máli. Það væri hrein- asta „tyrkirí“ þar sem til skamms tíma lá refsing við því að segja „kúrdi“ en ekki „fjallatyrki". Það er sem sé ekki alltaf vandkvæða- laust að nota orð úr daglegu máli sem íðorð ef menn átta sig ekki á muninum á orði og íðorði. Skal hér nefnt enn eitt dæmi um það. í Orðanefnd læknafélaganna höfum við undanfarið fengist við fósturfræði. Við fyrstu yfirferð fósturfræðiheitanna steytti ég á latneska orðinu terminus sem 10

x

Málfregnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Málfregnir
https://timarit.is/publication/1146

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.