Málfregnir - 01.11.1992, Qupperneq 11

Málfregnir - 01.11.1992, Qupperneq 11
í þessu sambandi merkir ‘lok með- göngu’, að sá tími sé kominn að búast megi við fæðingu. Venjulega orða læknar þetta þannig að konan sé „komin á tíma“. Ég setti þarna orðið tal. Þetta orð er að vísu eingöngu notað um kýr en merkir einmitt ‘sá tími þegar kýrin á að bera’ og er þá talað um að kýrin sé komin á tal, að hún eigi tal í næstu viku, að hún sé komin fram yfir tal o.s.frv. Viðbrögðin við orðinu voru athyglis- verð. Þeir sem könnuðust ekki við orðið áður töldu flestir að það væri nothæft, jafnt karlar sem konur, og var því þó ekki haldið leyndu hvernig það væri til komið. Þeim sem þekktu orðið fannst það hins vegar ómögulegt, upplýstu m.a. að konur væru ekki kýr og orð sem hefði hingað til eingöngu verið notað um kýr mætti ekki nota um konur. Gilti einu þótt bent væri á þá staðreynd að hafi íslenskar konur elskað einhverja skepnu óslitið um aldir þá væri það kýrin og margar sennilega ekki átt sælli stundir en einmitt þegar snemmbæran var komin á tal. Nú er það að vísu svo að orðið tal var nánast íðorð. En ef ekki má hnika til innihaldi þess eða víkka notkunarsvið þess lítillega er þá ekki læknum einnig óheimilt að kalla eitthvað sjúkdóm sem ekki er venja að kalla svo í daglegu máli? Greinarmunur sem liggur að baki íð- orðum nær því til veruleikans en ekki málsins. Þegar rætt er um merkingu íð- orðs snýst umræðan ekki um íðorðið sjálft heldur þýðingu þeirrar aðgrein- ingar sem gerð er í veruleikanum. Form- gerðin sem íðorðaforðinn birtir á því að þjóna tæknilegum eða vísindalegum markmiðum. Þekking og skilningur á íð- orðaforða krefst því alltaf þekkingar á hlutunum. Því er oft spurt hvort eitthvert íðorð sé ekki óþarft, hvort ekki séu til orð yfir þetta fullboðleg. Slíkar spurningar stafa venjulega af vanþekkingu á veru- leikanum að baki íðorðaforðanum; þar er oft nauðsynlegt að gera greinarmun sem venjulega er ekki gerður í daglegu máli. Orð í daglegu máli geta verið eins konar íðorð eins og sagt var um tal hér að framan. Nefna má dæmi á borð við eik og fura. í ákveðnum tilfellum má segja að þekking á hlutnum sé einnig nauðsynleg til skilnings á orðum í dag- legu máli. Þetta á við þegar málkerfið býður upp á marga túlkunarmöguleika, eins og þegar barnið spurði: „Hvað er vitamálastjóri? Veit hann allt?“ Sum tökuorð eru nánast íðorð þótt þau séu það ekki í málinu sem þau eru fengin úr (Coseriu 1978:30). Þannig mátti einu sinni heyra skeggrætt um „ombudsman“ þegar sjónvarpið sýndi myndir frá umræðum í breska þinginu. Þarna mun hafa verið til umræðu að koma á fót embætti samsvarandi því sem hér heitir umboðsmaður Alþingis. Slett- ur eru þó einkum þessarar náttúru í fræðilegri umræðu. Þeim sem hafa vanið sig á þær finnst að þær séu með ein- hverjum hætti nákvæmari að merkingu en innlend orð. Þannig finnst sumum læknum að nákvæmara sé að tala um „hepar“ en “lifur“. Þó dytti hinum sömu ekki í hug að segja að Jón Baldvin og Ólafur Ragnar hafi étið hepar sællar minningar. íðorðaforðinn er þó ekki óháður þeim lögmálum sem annars gilda í málinu, og merking íðorða getur breyst, víkkað eða þrengst. Einkum ger- ist þetta þegar íðorð verða hluti af dag- legu máli eins og t.d. stökkbreyting. Almenn orðabók getur tæplega látið sér nægja að geta um fræðilega merkingu þessa orðs. En breytingin getur einnig gerst innan starfs- eða fræðigreinar og endar stundum með því að orðið er tæp- lega fullnægjandi íðorð lengur. Skil- greina verður innihald þess upp á nýtt. Dæmi um þetta er dyspepsia sem upphaf- 11

x

Málfregnir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Málfregnir
https://timarit.is/publication/1146

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.