Málfregnir - 01.11.1992, Page 15
sjaldnast að sök. Hins vegar getur það
staðið nýjum orðum fyrir þrifum ef þau
bjóða heim tvíræðni, raunverulegri eða
ímyndaðri.
Að því er kynferði varðar ætti ekki að
skipta máli hvort valið er kvenkyns orð
eða hvorugkyns. Myntheiti eru til af
öllum kynjum. Kvenkyns eru t.d. mynt-
heitin króna, líra og rúbla, og hvorug-
kyns eru t.d. heitin jen, mark og pund.
Eka
Sú hugmynd að hin evrópska mynteining
verði látin heita eka á íslensku er ekki
ný. Líklegt er að mörgum detti hið sama
í hug sem svo er nærtækt, enda heyrist
orðið eka öðru hverju. Jón Baldvin Hall-
dórsson, fréttamaður á fréttastofu
Útvarpsins, stakk upp á því á sínum
vinnustað í fyrra, og er fjallað um það í
málfarsblaði Ríkisútvarpsins, Tungutaki
(nr. 53) í ágúst 1991. Þar mælti ritstjór-
inn, Árni Böðvarsson, með þessu orði,
og jafnframt var vikið að beygingunni
sem helst er hætt við að einhverjir setji
fyrir sig. Um hana sagði Árni m.a. í
blaði sínu (bls. 28-27):
Eflaust er einhver feiminn við eignarfall fleir-
tölu vegna þess að það hljómar eins og sama
fall af „ekkja“, en misskilningur má kallast
óhugsandi vegna þess hve ólík merkingar-
sviðin eru. Það væri hins vegar saklaust þótt
einhver spaugarinn gerði sér mat út þessu.
í bók Árna, íslenskt málfar, sem kom út
fyrr á þessu ári, er orðið eka tekið upp
fullum fetum sem nýyrði fyrir ECU (sjá
bls. 37 og 35).
Orðið eka er sem sé komið á kreik. Nú
þarf að fylgja því eftir og hvetja sem
flesta til að nota það, ekki síst starfs-
menn Ríkisútvarpsins.
15