Málfregnir - 01.11.1992, Side 30

Málfregnir - 01.11.1992, Side 30
Sitt af hverju Þýðinganefnd í síðasta tölublaði Málfregna (bls. 32) var skýrt frá ályktun íslenskrar mál- nefndar um þýðingamál. Þar var m.a. beint áskorun til menntamálaráðherra þess efnis að hann skipaði „nefnd hið fyrsta til að undirbúa tillögur um skipu- lagða menntunarbraut fyrir íslenska þýðendur og túlka, þar sem höfð verði hliðsjón af sambærilegri menntun eins og hún gerist best með öðrum þjóðum." í bréfi menntamálaráðherra til íslenskrar málnefndar, dags. 22. apríl 1992, er skýrt frá því að ráðuneytið hafi ákveðið að skipa nefnd til að fjalla um menntun íslenskra þýðenda og túlka. „Hlutverk nefndarinnar verði að kanna hvernig búa megi í haginn fyrir vandaðar þýðingar, einkum á hvers konar „nytja- textum“, svo og kvikmynda- og sjón- varpsefni, með hentugri menntun þeirra sem við slík verkefni fást. Auk þess að gera tillögur um framtíðarskipan þessara mála, þ.e. skipulagða menntunarbraut, verði nefndinni falið, sem forgangsverk- efni, að kanna hvernig haganlegast yrði staðið að námskeiðahaldi sem gæti orðið fyrsta skref í þessum efnum.“ Nefndin er nú fullskipuð. í henni eiga sæti: Heimir Pálsson cand. mag., Jónína M. Guðnadóttir cand. mag. og Kristján Árnason prófessor, sem er formaður nefndarinnar. Málfarsstefna stúdentaráðs í nóvember 1991 samþykkti stúdentaráð Háskóla íslands ályktun sem nefnd er „málfarsstefna stúdentaráðs“. Ármann Jakobsson, sem frumkvæðið átti, segir frá henni í blaði sem út kom fyrr á þessu ári og heitir Háskólinn. Stúdentafréttir (1. tbl. 1992, bls. 13). Stúdentaráð vill að kennt sé á íslensku í öllum deildum Háskólans, íslensk orð séu notuð um fræðileg hugtök eftir því sem þau endast og ný orð búin til í sam- ræmi við íslenskar málvenjur að öðrum kosti. Til þess að þetta geti orðið þurfi háskólakennarar að hafa góð tök á íslensku máli í ræðu og riti og því sé nauðsynlegt að allir sem sækja um kenn- arastöður í Háskóla íslands verði metnir með hliðsjón af kunnáttu í íslensku, auk þess sem venjulegar hæfniskröfur eru gerðar. í>á segir í ályktuninni að kenn- arar verði að innræta nemendum sínum nauðsyn þess að tjá hugsanir sínar á góðri íslensku og stuðla að því að þeir láti ekkert frá sér fara sem er ekki á góðu máli. Samvinna málstöðvar og þýðendafélaga Þýðingar á íslensku og málefni þýðenda hafa verið mjög til umræðu að undan- förnu, einkum eftir að út kom Skýrsla um stöðu þýðingarmála eftir Heimi Páls- son og Jónínu M. Guðnadóttur í byrjun þessa árs (sjá grein Heimis í síðasta tölu- blaði Málfregna). Einn kafli hennar nefnist „Tillögur um leiðir til úrbóta", og er þar lögð mest áhersla á menntunarmál þýðenda og túlka. Þær umræður sem skýrslan hratt af stað leiddu til þess að íslensk málstöð, Félag löggiltra dómtúlka og skjalaþýð- enda, Félag sjónvarpsþýðenda (Ríkisút- varpsins) og Félag þýðenda á Stöð 2 stóðu saman að kynningar- og umræðu- fundi um þýðingastörf á Hótel Sögu 16. maí 1992, en áður höfðu þessir aðilar ekkert samband haft sín á milli. Fundur- inn var því mjög tímabær. í lok fundarins var samþykkt tillaga 30

x

Málfregnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Málfregnir
https://timarit.is/publication/1146

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.