Málfregnir - 01.11.1992, Side 32
Frá
Málræktarsjóði
Nú eru síðustu forvöð að gerast stofnandi Málræktarsjóðs. Stofn-
framlög þurfa að berast fyrir lok þessa árs. Stofnanir, fyrirtæki og
samtök sem leggja í sjóðinn fyrir áramót öðlast rétt til að tilnefna
mann í fulltrúaráð sjóðsins og geta þannig haft áhrif á stjórnarkjör
hans og stefnumótun.
Framlög til sjóðsins þurfa ekki að vera bein fjárframlög. Hvers
konar eignir, sem fémætar teljast, koma til greina.
Gefendur, sem hafa tekjur af atvinnurekstri, geta fengið fram-
lag sitt dregið frá skattskyldum tekjum samkvæmt ákvæðum laga
(nr. 75/1981) um tekjuskatt og eignarskatt og ákvæðum reglu-
gerðar (nr. 615/1987) um frádrátt vegna gjafa til menningarmála
o.fl.
Nú eru í sjóði um 11 milljónir króna, en markmiðið er 100 millj-
ónir fyrir 17. júní 1994. Stofnendur eru orðnir hátt á annað
hundrað.
Stofnframlög í Málræktarsjóð má leggja á póstgíróreikning nr.
375500. Þeim má einnig koma með öðrum hætti til framkvæmda-
stjóra sjóðsins, Kára Kaaber, íslenskri málstöð, Aragötu 9, 101
Reykjavík. Síminn er 28530.
Takið þátt í stofnun Málræktarsjóðs!
Málfregnir kc tia út tvisvar á ári
Útgefandi: fslensk málnefnd
Ritnefnd: Gunnlaugur Ingólfsson og Kristján Árnason
Ritstjóri: Baldur Jónsson
Ritstjórn og afgreiðsla: íslensk málstöð,
Aragötu 9, ÍS-101 Reykjavík. Sími: (91) 28530,
(91) 694443. Bréfasími: (91) 622699
Áskriftarverð: 600 krónur á ári
Prentsmiðja Árna Valdemarssonar hf.
ISSN 1011-5889
*
m
ÍSLENSK MÁLNEFND