Kópavogsblaðið - 01.11.2005, Síða 4
Hugi Hreiðarsson, markaðs-
stjóri Atlantsolíu, segir að virk
samkeppni á olíumarkaðnum sé
besta eftirlitið og því hafi stað-
setning Atlantsolíu ekki síst gildi
fyrir Kópavogsbúa. Hugi segir að
Kópavogsbúar sem og allur al-
menningur átti sig líklega ekki á
því hvernig staðan á þessum
markaði væri nyti Atlantsolíu
ekki við. Því til skýringar segir
hann að eldsneytisverð í sjálfsaf-
greiðslu væri 3 til 5 krónum
hærra ef fyrirtækið hefði ekki
verið stofnað.
„Sem dæmi má nefna að verð-
breytingar eru nú mun örari en
áður. Fram til nóvember 2003, en
þá hóf Atlantsolía að selja dísel til
almennings, voru eingöngu mán-
aðarlegar verðbreytingar hjá sam-
keppnisaðilum og stundum
sjaldnar. Í fyrra og í ár verða þær
yfir 40. Þetta staðfestir tilurð þess
samkeppnisafls sem Atlantsolía
býr yfir. Samkeppnin hefur líka
breyst þannig að í dag vill enginn
vera fyrstur til að hækka og allir
vilja vera fyrstir til að lækka. Sem
dæmi um það eru verðlækkanir
síðustu tveggja vikna. Þannig má
segia að virk samkeppni sé besta
eftirlitið,“ segir Hugi Hreiðarsson.
Vilja gera enn betur
Hugi segir fyrirtækið vilji gera
enn betur: Það vilji vera enn sam-
keppnishæfara en því miður sé
það hamlandi hversu fáar bensín-
stöðvar Atlantsolía ráði yfir.
Vegna þess er keypt mun sjaldnar
og minna magn en samkeppnisað-
ilarnir sem að sama skapi fá því
betri verð.
„Við vonumst til að þegar í fram
í sækir muni þetta breytast og við
getum boðið landsmönnum enn
hagstæðara eldsneyti. Við minn-
um á að það fer ekki mikið fyrir
bensínstöðvum Atlantsolíu. Þær
eru smáar og knáar og passa því
vel inn á lóðir t.d. verslunarkjarna
þar sem dauð svæði eru oft í jöðr-
um bílastæða. Þá minnum við á
að mengunarvarnir okkar eru
samkvæmt ýtrustu reglum Evr-
ópusambandsins og ekki meiri
hætta á mengunarslysi frekar en
hjá bakaríi.“
Eina olíufélagið í
Kópavogi
Hvað starfa margir hjá
Atlantsolíu?
„Hjá fyrirtækinu starfa 12
manns, þar af fjórir bílstjórar. Við
höfum verið mjög lánsamir með
starfsfólk og hjá okkur ríkir góður
starfsandi. Skrifstofur okkar eru
að Vesturvör 29 og erum við því
eina olíufyrirtækið í Kópavogi.
Við segjum oft að tilurð fyrirtæk-
isins sé í raun samofin velvilja
bæjaryfirvalda því án framsýni
þeirra værum við vart starfandi.
Fyrir það erum við þakklátir.
Okkur hefur verið vel tekið og
höfum við eignast sterkan hóp
viðskiptavina.“
Dælur á Þjóðminjasafnið
-Hvernig hefur bensínsala gengið
á Kópavogsstöðinni?
„Flestir muna þegar við hófum
að selja þar bensín og stöðin seldi
á einum degi sama magn og áður
var selt á mánuði. Síðan þá hefur
salan dregist aðeins saman en þar
er samt alltaf mikið líf. Eins hafa
dælurnar þar verið að syngja sitt
síðasta og skammt að bíða þess
að þær fari á Þjóðminjasafnið. Við
munum innan skamms tíma setja
þar nýjar fullkomnar dælur sem
verða bæði fyrir kort og peninga.
Þannig geta þeir sem ekki hafa
kort greitt með seðlum inn á
bensínstöðinni. Á öðrum sjálfsaf-
greiðslustöðum okkar er því ekki
þannig farið. Við vonum að með
nýju dælunum munum við geta
þjónustað viðskiptavini okkar enn
betur,“ segir Hugi Hreiðarsson,
markaðsstjóri Atlantsolíu.
NÓVEMBER 20054 Kópavogsblaðið
Kópavogur í fararbroddi hvað varðar félagsþjónustu:
Félagsþjónustan á að vera fyrir alla
Það er mikilvægt að í öllum
sveitarfélögum sé sterk og örugg
félagsþjónusta sem er í stakk bú-
inn til að sinna hverskonar þjón-
ustu sem félagþjónustulögin gera
ráð fyrir. Félagsþjónustan í
Kópavogi hefur mörg verkefni á
sinni könnu og má þar nefna
málefni aldraðra, svo sem
heimaþjónustu, félagsstarf og
rekstur sambýla fyrir aldraðra.
Þá má nefna málefni dagmæðra
og leikvalla sem og málefni fatl-
aðra, þar með talin ferðaþjón-
usta fyrir þá á vegum stofnunar-
innar. Húsnæðismál heyra und-
ir stofnunina en allar leiguíbúð-
ir bæjarins eru þar með taldar.
Þá er almenn verlferðarþjónusta
fyrir þá sem þurfa á henni að
halda ásamt barnavendarmálum
meðal stærri verkefna á vegum
félagsþjónustunnar.
Bragi Michaelsson er fulltrúi
Sjálfstæðisflokksins í Félagsmála-
ráði Kópavogs.Hann var spurður
hvort þessi þjónusta væri ekki
mjög yfirgripsmikil og jafnvel
erfitt að setja sig inn í og taka á
svo mörgum og erfiðum málum.
„Jú vissulega verð ég að segja
það, en það eru líka þroskandi að
takast á við mál sem maður er
ekki daglega að fást við, og leysa
þau. Hinsvegar má segja það að á
vegum félagsþjónustunnar eru
reglur fyrir starfsmenn til að fara
eftir og mörg mál leysast innan
þess ramma sem settur er um úr-
lausn mála.“
- Nú hefur því verið haldið fram
að Kópavogsbúar sé að eldast.
Tak ekki málefni aldraðra mikinn
tíma hjá ykkur?
„Það er alveg rétt að við Kópa-
vogsbúar erum að eldast en
Kópavogur hefur lengi staðið vel
að málefnum aldraðra. Kópavog-
ur átti frumkvæði að því að koma
á fót félagsstarfi fyrir aldraðra og í
dag rekur bæjarfélagið tvær fé-
lagsmiðstöðvar fyrir aldraða, í
Gullsmára og Gjábakka.
Á vegum Sunnuhlíðar eru svo
rekin dagvist sem mjög margi
nota. Í Kópavogi eru mjög hentug-
ar blokkir sem aldraðir hafa keypt
sér íbúðir í og í Sunnuhlíð er rekið
mjög gott hjúkrunarheimili. Kópa-
vogsbær rekur þrjú sambýli fyrir
aldraðra, þar af eitt fyrir minnis-
sjúka og í tenglum við þá þjón-
ustu er rekin dagvist fyrir minnis-
sjúka.
Nú er í undirbúningi nýtt dval-
arheimili og þjónustusetur í
Vatnsenda og Sunnuhlíð er að
sækja um stækkun á hjúkrunar-
heimilinu. Ég álít að þessi marg-
víslega þjónusta sé til fyrirmynd-
ar hér í Kópavogi.“
- Þú minntist á málefni fatlaðra
hér áðan. Á hvern hátt kemur
Kópavogsbær að þeim málum?
„Málefni fatlaðra eru viðamikil
þótt þau heyri reyndar undir rík-
ið. Samt er það svo að margvísleg
þjónusta er einnig veitt af sveitr-
arfélaginu. Mestur kostnaður er
þó í ferðaþjónustinni og verkefn-
um tengdri henni. Annars vill svo
til að Kópavogur ætlar að helga
næsta ár málefnum fatlaðra og er
m.a. með í undirbúningi byggingu
á átta þjónustuíbúðum fyrir geð-
fatlaða. Þá er veitt stuðningþjón-
usta fyrir fatlaða og Kópavogur
hefur veitt afslátt á fasteignagjöld-
um í sambýlum og í húsnæði sem
er eign Öryrkjabandalagsins, sem
átt hefur langa og góða samleið
um þjónustu við Kópavogsbæ.
Má þar nefna rekstur á Örva sem
er vinnustaður fatlaðra á Kársnesi
og Kópavogsbær átti frumkvæði
að að koma á fót á sínum tíma, en
ríkið tók þann rekstur yfir sam-
kvæmt samkomulagi.
- Húsnæðismál heyra undir fé-
lagsþjónustuna. Hvaða verkefni
eru á því sviði?
„Í Kópavogi er starfandi sérstök
húsnæðisnefnd sem sér um þau
mál en Félagsmálaráð staðfestir
allar útleigur á vegum félagsþjón-
ustunnar. Þeir sem leita eftir
þessari þjónustu eiga flestir erfitt
um vik á hinum frjálsa íbúða-
markaði. Íbúðirnar eru leigðar út
en leiguupphæð hefur þó verið
færð nær verðlagi almennrar
leigu en áður var. Þó er það svo
að alltaf er það einhver hópur
sem verður að treysta á þessa op-
inberu þjónustu. Biðlisti er þó
nokkuð langur eftir íbúðum en
biðin er á bilinu 15 til 18 mánuðir
um þessar mundir.“
- Umræða um vínuefnanotkun er
stöðug. Hverning er forvörnum á
þeim sviðum háttað í Kópavogi?
„Það er rétt að þessi vágestur
sem vímuefnin eru herjar á okkur
eins og öll önnur sveitarfélög. Í
Kópavogi hefur verið reknar öfl-
ugar forvarnir sem er samvinnu-
verkefni Félagsþjónustunnar,
skólanna ,heilsugæslunar og lög-
reglunnar.
Að þessarar þjónustu hafa
margi komið og er sérstakur
vímuefnavarnarhópur starfandi
hér í Kópavogi. Sérstkur forvarn-
arfulltrúi er staðsettur hjá lögregl-
unni en hann er kostaður að hluta
til af Kópavogsbæ. Þetta fyrir-
komulag hefur skilað góðum ár-
angi þó eflaust megi segja að
alltaf sé hægt að gera betur.“
- Telur þú að Kópavogsbær veiti
veiti góða félagsþjónustu?
„Ég tel engan vafa á því að í
Kópavogi er veitt góð félagsþjón-
usta. Við höfum á að skipa mjög
færu og traustu starfsfólki sem
sinnir sínum störfum alúð og nær-
gætni. Kópavogur hefur lengi ver-
ið í fararbroddi hvað þessa þjón-
ustu varðar og ég vona að svo
verði um langa framtíð,“ segir
Bragi Michaelsson.
Atlantsolía eina olíufélagið í Kópavogi:
Bensín væri 3 til 5 krónum dýrara
án Atlantsolíu að mati markaðsstjórans
Fyrsta bensínstöð Atlantsolíu, staðsett vestast á Kársnesinu.
Þar verða bráðlega settar upp nýjar dælur, en þær gömlu fara á
Þjóðminjasafnið!