Kópavogsblaðið - 01.11.2005, Blaðsíða 8

Kópavogsblaðið - 01.11.2005, Blaðsíða 8
Löður tók nýverið í notkun nýjan vélbúnað frá MacNeil í Kanada í bílaþvottastöð sinni í Bæjarlind 2 í Kópavogi. Stöðin er búin nýrri gerð af silkimjúk- um svampburstum sem gerðir eru úr sérstöku svampefni sem koma mjög mjúklega við bílinn í sápulöðri og minnka þannig hugsanlegar skemmdir á bíln- um. Einnig er mögulegt að þvo bíla í stöðinni snertilaust og þá fer allt fram eins nema svampburstarnir eru ekki notaðir. Bíllinn er þá meðhöndlaður sérstaklega í for- þvottinum af starfsmönnum Löð- urs. Nýja stöðin er mjög afkasta- mikil og getur þvegið um 60 bíla á hverri klukkustund og geta 4 bílar verið í stöðinni í einu. Þannig er nánast engin bið eftir þvotti. Löður býður upp á sérstök af- sláttarkort þar sem viðskiptavin- urinn kaupir kort með 12 þvottum en greiðir aðeins fyrir 10 þvotta. Rekstur Kópavogsbæjar hefur gengið mjög vel að sögn Gunnars I. Birgissonar, bæjarstjóra og hann segir að nú sé meirihlutinn að uppskera eins og hann sáði. Strax árið 1990 þegar núverandi meirihlutaflokkar, Sjálfstæðis- flokkur og Framsóknarflokkur tóku við, hafi verið hafist handa í rekstrinum en það hafi eðlilega tekið nokkur ár að vinna sig út úr því. Á sama tíma hafi verið bullandi kreppa í landinu og atvinnuleysi, en þá þegar hafi verið gripið til mikillar ráðdeild- ar í rekstrinum. „Það eru fá sveitarfélög á land- inu sem ná því að sýna jafn góða rekstrarafkomu og okkur hefur tekist að ná. Það er farið yfir rekst- urinn mánaðarlega og sviðsstjór- arnir taka þátt í því að miklu leiti. Með svo góðri rekstrarafkomu tekst okkur að framkvæma meira og veita íbúunum enn betri þjón- ustu, s.s. í menningarmálum, íþróttamálum og skólamálum. Við höfum ekki verið að selja bæjarfyr- irtæki til einkaaðila, en það er ekk- ert markmið að gera það ekki vegna þess að við viljum að einka- rekstur blómstri í bæjarfélaginu. Nýlega var byggður leikskóli, en rekstur hans var boðinn út. Þetta er þriðji einkarekni leikskólinn í Kópavogi. Það er mjög heppilegt að blanda hæfilega saman bæjar- rekstrinum og einkarekstrinum. Þessi ráðdeild í bæjarrekstrin- um gengur hins vegar ekki ef þú ert ekki með gott starfsfólk með þér. Við Sigurður heitinn Geirdal vorum hálfgerðir „baunateljarar“ fyrstu árin en þetta hefur nú skilað þessum árangri. Það eru allir með- vitaðir um aðhaldssemina. Við vöðlumst ekki áfram eins og við sjáum stundum gert hérna hinu megin við lækinn! Reksturinn hefur verið að batna undanfarin ár og tekjur íbúanna að hækka en skuldirnir hafa verið þær sömu í krónutölu. Þessi góða rekstrarafkoma hefur hins vegar verið fólkin í því að við höfum ver- ið að innleysa fjölda lóða þar sem við höfum verið að auglýsa bygg- ingaréttinn á. Allt frá árinu 1994 höfum við gjaldfært þessi landa- kaup og nú njótum við ávaxtana af þessari stefnu. Rekstur Kópavogs- bæjar er í sérflokki, hann er í for- ystu, þegar rekstur stóru bæjarfé- laganna er borinn saman,“ segir Gunnar I. Birgisson, bæjarstjóri. Byggt við Lækjarbotna innan tíðar Bæjarstjóri segir að enn um sinn muni Kópavogsbæjar bjóða bygg- ingalóðir í meira mæli en ná- grannasveitarfélögin. Eftir 20 til 30 ár verði eflaust farið að byggja í landi Kópavogs upp við Lækjar- botna. „Kópavogur er vinsælt sveitarfé- lag, hingað vill fjöldi manns flyta. Ætli íbúatalan geti ekki verið kom- in í 50 þúsund manns innan svo mjög margra ára. Við höfum náð liðlega helmingi þeirrar tölu. Þessi sprengja sem bankarnir og Íbúða- lánasjóður kastaði inn á húsnæðis- markaðinn með því að bjóða 90 og 100% lán hefur haft gríðarleg áhrif og ekki síður þegar viðmiðin voru hækkuð úr 7,9 milljónum króna í 15,9 milljónir króna. Þá rauk íbúð- arverðið upp. Á næsta ári verða 3.000 íbúðir í smíðum á höfuðborgarsvæðinu sem er kannski 1.000 fleiri íbúðir en við þurfum fyrir markaðinn. Húsnæðismarkaðurinn er því smám saman að mettast, er reynd- ar þegar farinn að gera það á jað- arsvæðum eins og Árborg og Reykjanesbæ. Við erum að fara að bjóða lóðir á Kópavogstúninu. Við höfum verið að úthluta 400 sérbýlum undanfarin ár meðan Reykjavík hefur boðið 100 og 1.700 fjölbýli meðan Reykjavík hefur boðið 1.200 fjölbýli.“ Bestu starfsmannasamn- ingar landsins - Felast í þessari aðhaldssemi í rekstrinum að þið eruð að borga bæjarstarfsmönnum hærri laun? „Nýlegir starfsmannasamningar eru þeir bestu á landinu. Ein- greiðsla á laun virkar auðvitað þyngst á lægstu launin. Ég hef sagt að það sé best að búa í Kópavogi, og það var reyndar slagorð í kosn- ingabaráttunni þegar 1994, en póli- tískir andstæðingar segja að það sé dýrt að búa í Kópavogi! Hér er hæsta íbúðaverð á land- inu enda fer fólk þangað sem því líður best og vill vera. Við höfum gætt þess að ljúka strax við okkar hluta, og í nýja Álfkonuhverfinu eru allir stígar komnir þó nánast engir séu fluttir inn. Byrjað var á Kórahverfi fyrir ári síðan og það er þegar farið að malbika en eftir ár verða allir stígar tilbúnir. Nýlega var viðtal við skólastjóra nýs Vatnsendaskóla hér í Kópa- vogi þar sem lýsti fyrsta áfanga sem var uppsteyptur og tilbúinn, en á sama tíma lýsti skólastjóri í Norðlingaholti í Reykjavík yfir ánægju með að fyrsti áfangi hans skóla yrði uppsteyptur næsta hausts, en öllum nemendum kennt í skúrum. Það væri ofsalega gott að hafa kennsluna í skúrum því nú væri að hefjast hönnun á skólan- um og því gætu foreldrar haft áhrif á hönnun skólans!!“ Ríkiskapítalismi í formi sameininga - Kemur til greina að ljá máls á sameiningarviðræðum við ná- grannasveitarfélögin? „Umræða um að stækka Reykja- víkurborg er alveg snarvitlaus. Þetta sveitarfélag getur orðið um 50.000 manna sveitarfélag og en kannski kemur til greina að sam- einast við sveitarfélagsunnan við okkur. Ég vil hafa sveitarfélögin þannig að þau séu að keppa sín á milli um að veita sem bestu þjón- ustuna. Annars er hætta á að allur hvati og allt frumkvæði hverfi. Þessar sameiningar eru bara ríkis- kapítalisti sem ég er andsnúinn.“ - Mun Kópavogur loks eignast miðbæ þegar lokið verður við að loka gjánni og auðvelda samgöngur hér um? „Það er markmiðið. Þegar því lýkur næsta vor munum við breyta Hamraborginni allri og t.d. breyta því að ekki þurfi að bakka út í götuna frá verslununum. Þegar óperan kemur, en ég er sannfærð- ur um að svo verði, mun svæðið verða enn sterkara og bera meiri keim af miðbæ.“ - Hvenær verður fyrsta óperusýn- ingin? „Það gæti orðið árið 2008, ef fjármögnunin gengur eftir.“ - Muntu gefa kost á þér í prófkjöri Sjálstæðisflokksins í komandi janúarmánuði? „Já.“ NÓVEMBER 20058 Kópavogsblaðið Úr þvottastöð Löðurs í Bæjarlindinni sem tekur bíla af ýmsum gerðum og stærðum. Bestu starfsmannasamingar landsins í Kópavogi Notar nýja gerð silkimjúkra svampbursta Prófkjör Framsóknar í Kópavogi 12. nóvember 2005 Í Smáraskóla. Frá kl. 10:00 - 20:00 Ólöf Pálína forysta í fjölskyldumálum Heimavinnandi foreldri njóti launa vegna ummönnunar barna. Hlúa þarf að áhuga barnanna og gefa öllum tækifæri til að stunda íþróttir og sinna listrænum áhuga. Öflugt íþrótta og listalíf með stuðningi Kópavogsbæjar Ólöf Pálína Úlfarsdóttir í 3. sæti Gunnar I. Birgisson, bæjarstjóri: Gunnar I. Birgisson bæjarstjóri. „Eftir 20 til 30 ár verði eflaust farið að byggja í landi Kópavogs upp við Lækjarbotna.“ Löður í Bæjarlindinni:

x

Kópavogsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kópavogsblaðið
https://timarit.is/publication/1117

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.