Kópavogsblaðið - 01.11.2005, Blaðsíða 10

Kópavogsblaðið - 01.11.2005, Blaðsíða 10
NÓVEMBER 200510 Kópavogsblaðið Einn af þeim sem býður sig fram í forystusæti í prófkjöri Framsóknarmanna laugardaginn 12. nóvember n.k. er Andrés Pét- ursson. Hann er einkum þekktur í Kópavogi fyrir störf sín að íþrótta- og æskulýðsmálum enda ófá félagsstörfin sem hann hefur innt af hendi fyrir ungmennafélag- ið Breiðablik m.a. sem formaður og framkvæmdastjóri knatt- spyrnudeildar, ritari og varafor- maður aðalstjórnar félagsins og þar að auki hefur hann í mörg ár verið formaður Blikaklúbbsins en það er stuðningsklúbbur knatt- spyrnudeildar. Andrés hefur einnig sinnt stjórnsýslulegum störfum fyrir bæinn og setið í heilbrigðisnefnd Kópavogs og Hafnarfjarðarsvæð- isins fyrir hönd Kópavogs og ver- ið varamaður í leikskólanefnd. Þar að auki er hann þekktur fyrir áhuga sinn á alþjóðamálum og er meðal annars formaður Evrópu- samtakanna. - En hver er ástæðan fyrir því að Andrés gefur kost á sér í þessu prófkjöri Framsóknarflokksins? „Eins og flestir vita féll forystu- maður okkar Framsóknarmanna Sigurður Geirdal óvænt frá í fyrra og núverandi oddviti okkar Hans- ína Ásta Björgvinsdóttir ákvað að gefa ekki kost á sér til áframhald- andi starfa. Það er því mikilvægt að til forystu veljist áfram gott fólk sem getur haldið áfram því þróttmikla starfi sem hefur verið í bæjarmálum í Kópavogi undan- farin ár. Það er staðreynd að hættulegasti tími í lífkúrfu fyrir- tækja og landa er þegar vel geng- ur. Það þarf því sífellt að skoða stöðu bæjarins og halda áfram að leita nýrra leiða til að halda Kópa- vogi í forystu sveitarfélaga í land- inu. Ég vil leggja mitt af mörkum til þessarar uppbyggingar og þess vegna leita ég eftir stuðningi bæj- arbúa í 2. sætið.“ Andrés segir spennandi tíma framundan í Kópavogi. Bærinn sé enn að stækka og mjög margt fólk að flytja til bæjarins. ,,Það er margt sem kemur upp í hugann varðandi verkefni en það sem mig langar helst að leggja áherslu á eru sex atriði. Þau eru: • Lækkun fasteignagjalda. • Markvist átak verði gert til að laða fleiri þekkingarfyrirtæki til bæjarins. • Leikskólar bæjarins verði efldir og stefnt verði að því að gera þá gjaldfrjálsa á kjörtíma- bilinu. • Meira íbúalýðræði m.a. með stofnun hverfaráða. • Fleiri valmöguleika í húsnæð- ismálum fyrir eldri borgara. • Áframhaldandi uppbygging íþrótta- og æskulýðsstarfs í Kópa- vogi m.a. með því að samþætta betur starfsemi grunnskóla og íþróttafélaga í bænum. En aðalatriðið er auðvitað að gera góðan bæ betri,“ segir fram- bjóðandinn Andrés Pétursson. Andrés Pétursson. „Markvist átak verði gert til að laða fleiri þekkingarfyrirtæki til bæjarins.“ Gerum góðan bæ betri Andrés Pétursson skrifstofustjóri býður sig fram í 2. sætið á lista Framsóknar- flokksins: Kópavogur er á tímamótum. Undraverð þróun síðustu ára hef- ur skapað nýjan grundvöll. Í bæn- um er ný öld og ótal tækifæri. Framsóknarflokkurinn hefur tekið virkan þátt í þessari mögnuðu þróun. Flokkurinn stendur líka á tímamótum, nú þarf að velja nýja forystu í Kópavogi. Þetta val hef- ur afgerandi áhrif á stöðu flokks- ins hér á komandi tíð. Nú er brýnt að efla bæjarbrag- inn. Sú stefna er mörkuð, en tölu- vert í land. Bærinn er fyrir fólkið. Kópavogsdalur er miðja íþrótta, útivistar og verslunar. Það þarf að létta á umferðarhnútum þar og ljúka fegrun Dalsins. Það er al- mennilegur bæjarbragur að Kópa- vogsvöllur sé alvöru leikvangur með yfirbyggðri stúku. Það er önnur útivistarparadís í Fossvogsdal, þar sem bæjarmörk standa í vegi fyrir jákvæðri þróun. Það er skylda Kópavogs og Reykjavíkur að þróa svæðið sam- an, svo íbúarnir njóti sín. Það ber að ræða gerð sundlaugar og ann- arra mögulegra sameiginlegra mannvirkja. Nú er lag á nýrri öld. Bæjarbragur verður líka betri þegar Hamraborgarsvæðið teng- ist Borgarholtinu og djásnunum þremur. Fólk þarf að komast fyrir á þessu svæði. Það er brýnt að skerpa á merkingum og skipulagi sem þykja grundvallaratriði í vestrænum heimi. Framsóknarflokkurinn stendur fyrir styrka fjölskyldustefnu. Nú er tími til að líta fram á við og tryggja allir njóti, ungir sem aldnir. Heilbrigð starfsemi íþrótta og tómstunda styrkir fólk á öllum aldri. Eftirspurn eykst og fleiri lifa lengur og betur. Það er mikilvægt að fylgja þróuninni. Kópavogur þarf enn að hugsa stórt í málefn- um aldraðra. Kópavogur á að vera bær fólksins alls þar sem skipulag og samningar standa og skattheimta er ekki meiri en í ná- grannasveitum. Kópavogur hefur alla burði til að verða afburðabær. Fyrirtækja- rekstur er í blóma, uppbygging heldur áfram. Í opnu prófkjöri nú er tækifæri til að velja Framsókn öfluga forystu. Veik forysta gæti leitt af sér eins flokks stjórn í vor. Það er engum hollt. Ég heiti Samúel Örn Erlingsson og býð mig fram í fyrsta sæti. Samúel Örn Erlingsson. Tímamót á nýrri öld Samúel Örn Erlingsson: Friðrik Gunnar Gunnarsson hef- ur síðustu þrjá áratugi starfað hjá lögreglunni, lengst af við slysa- rannsóknir. Hann spyr hvort kosningaloforð séu aðeins tíma- bundin gífuryrði og verði gleymsku að bráð á skjótan hátt að loknu kjöri. „Það er líka ákaflega fallegt að lesa langan lista gæluverkefna frambjóðenda. Ég ætla að sleppa öllum loforðum öðrum en þeim að standa mig við að sinna þeim verkefnum sem mér kunna að vera falin. Ég á mörg gæluverk- efni, en ef sinna á Kópavogskaup- stað og íbúum svæðisins, verða þau að víkja fyrir þeim verkefnum sem uppi eru hverju sinni og þarf að vinna úr. Ég vil líka minna á að einhver þarf að hafa auga með unga fólkinu sem nú kemur sterkt inn og gefur kost á sér til ábyrgð- arstarfa. Með því að gefa kost á mér í fimmta sæti Framsóknarflokksins í prófkjöri til bæjarstjórnar Kópa- vogs vona ég að ég geti látið gott af mér leiða og lagt hönd á plóg við að gera svæðið sunnan Reykjavíkur og norðan Garðabæj- ar að bæjarfélaginu þar sem ham- ingjan blómstrar,“ segir Friðrik Gunnar Gunnarsson. Friðrik Gunnar Friðriksson. Vill gera Kópavog að bæjarfélagi þar sem hamingjan blómstrar Friðrik Gunnar Gunnarsson sækist eftir 5. sætinu: Nú fer senn að líða að aðventu og því mikið um dýrðir í kirkjum landsins. Fyrsta sunnudag í að- ventu, 27. nóvember, verður að- ventuhátíð fjölskyldunnar í Hjallakirkju kl. 17. Um er að ræða skemmtilega stund fyrir alla fjölskylduna með léttri jóladagskrá, söngvum og sögum. Barnakór úr Hjallaskóla kemur í heimsókn og syngur undir stjórn Guðrúnar Magnúsdóttur. Þá mun Björgvin Frans Gíslason, leikari, sýna brúðuleik- ritið Pönnukakan hennar Grýlu. Leikritið segir frá hugvitsamri pönnuköku sem nær að flýja steikarpönnu Grýlu með það fyrir augum að ferðast alla leið í arma Jesú litla og foreldra hans sem dvelja svöng og köld í fjárhúsi í Betlehem. Auk þessa munu allir syngja saman jólasöngva og njóta stundarinnar í kirkjunni. Að henni lokinni verður boðið upp á kakó og piparkökur í safnaðarsal kirkjunnar. Fjölskyldur til hvattar til að fjölmenna á aðventuhátíð- ina þennan fyrsta sunnudag aðventunnar. Opið hús fyrir eldri borgara Annan hvern fimmtudag er Opið hús í Hjallakirkju fyrir eldri borgara sem áhuga hafa á að eyða góðri stund með góðu fólki. Stundirnar hefjast kl. 12.00 á léttri máltíð og síðan er ýmislegt gert sért til dundurs. Næstu samverur verða í dag, 10. nóvember og og 24. nóvember. Síðan verður jóla- samvera þann 8. desember. Sú stund verður lituð því að aðvent- an er hafin og flestir líkast til komnir í jólaskap! Safnaðarfólk er hvatt til þess að létta sér stundirnar stundirnar í skammdeginu og kíkja í kirkjuna þessa fimmtudaga. Glatt á hjalla í barnastarfi Hjallakirkju. Aðventuhátíð fjölskyldunnar í Hjallakirkju Forval hjá VG í Kópavogi 26. nóvember nk. Á aðalfundi Vinstrihreyfing- arinnar - græns framboðs í Kópavogi 5. október sl. var samþykkt að hafa forval innan félagsins um fyrstu fjögur sæti lista VG í Kópavogi í komandi sveitarstjórnarkosningum. Nýr formaður og stjórn voru einnig kjörin á aðalfundinum. Formað- ur er Emil Hjörvar Petersen og aðrir í stjórn eru Guðbjörg Sveinsdóttir, Lára Jóna Þor- steinsdóttir, Ólafur Þór Gunn- arsson og Þorleifur Friðriksson. Framboð skulu tilkynnt til for- manns félagsins fyrir klukkan 12:00 að hádegi föstudaginn 11. nóvember (netfang: emil@hi.is, s: 869-8391). Kjör fer svo fram laugardaginn 26. nóvember í Digranesskóla, frá kl. 12:00 til 16:00. Þeir sem hafa atkvæðis- rétt eru þeir félagar sem hafa verið skráðir frá og með 18. nóv- ember 2005. Þeim sem hafa áhuga á að hafa áhrif á úrslit for- valsins, eða bjóða sig fram, er bent á að hafa samband við formann félagsins til skráningar. VG í Kópavogi var stofnað fyr- ir síðustu sveitarstjórnarkosn- ingar og upp frá því verið sívax- andi og öflugra félag, og sú stað- reynd að halda skuli nú forval er merki þess að mati stjórnar. Ung vinstri græn í Kópavogi voru stofnuð fyrir um tveimur árum og hafa tekið virkan þátt í starfinu. Emil Hjörvar Petersen formað- ur segir að VG í Kópavogi stefni hátt í komandi kosningum og hann hvetur alla áhugasama að hafa samband. borgarblod.is

x

Kópavogsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kópavogsblaðið
https://timarit.is/publication/1117

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.