Kópavogsblaðið - 01.11.2005, Page 5
Nýlega kom út bók um þorpsskáldið Jón
úr Vör, raunar bók um lífshlaup Jóns úr Vör
eftir Magnús Bjarnfreðsson. Bók sem allir
Kópavogsbúar sem vilja fylgast með sögu
bæjarins þurfa að eignast. Kynning var á
bókinni í Kórnum á neðstu hæð Bókasafns
Kópavogs 27. október sl. Bókaútgáfan Hólar
gefur bókina út. Á kynningunni las höfund-
urinn úr bókinni ásamt því að Þórður Helga-
son cand. mag fjallaði um ljóð og ljóðagerð
Jóns úr Vör.
Magnús Bjarnfreðsson segir m.a. um Jón úr
Vör á hann hafi mátt muna tímana tvenna á
margan hátt. Hann ólst upp við allsleysi á Pat-
reksfirði, en það þorp gerði hann síðan
ódauðlegt með skáldskap sínum. Bókasöfn
urðu hans helsti skóli og síðar ævinni setti
hann á fót og stjórnaði um langa hríð bóka-
safni sem þá var vart meira en þorp en varð
síðan fjölmennasta byggð landsins að höfðuð-
borginni undanskilinni. Hér er að sjálfsögðu
átt við Kópavog. Jón úr Vör er því raunveru-
lega fyrsti bæjarbókavörður Kópavogs.
Jón úr Vör var áberandi maður í íslensku
þjóðlífi, fyrst sem úthrópaður svikari við ljóð-
listina en síðan sem virt skáld í hinu nýja
formi ljóðlistarinnar. Ljóð Jóns úr Vör benda
til þess að hann hafi verið mikill alvörumaður
og bar hag lítilmagnans ákaflega fyrir brjósti
auk þess að vera mikill andstæðingur alls
hernaðarbrölts. Jón úr Vör orti mest út frá
eigin lífsreynslu, sérstaklega í þremur fyrstu
bókunum, „Ég ber að dyrum“, „Stund milli
stríða“ og „Þorpinu.“ Þorpið sem kom út árið
1946 er sennilega hans þekktasta bók, enda
Jón oft kallaður Þorpsskáldið.
NÓVEMBER 2005 5Kópavogsblaðið
Íbúaþing í Kópavogi
19. nóvember nk.
Frá Kópavogi. Eflaust brennur margt á íbúum kópavogs. Þeir
fá tækiæri til að viðra sínar skoðanir á íbúaþingi í Lindaskóla.
Ný bók um „Þorpsskáldið“ Jón úr Vör:
Bók Magnúsar Bjarnfreðssonar.
Var í raun fyrsti bæjar-
bókavörður Kópavogs- íbúar Kópavogs hvattir til þátttöku
Laugardaginn 19. nóvember
nk. býður Kópavogsbær til íbúa-
þings í Lindaskóla. Íbúaþing er
vettvangur þar sem íbúum gefst
tækifæri til að koma sínum hug-
myndum og ábendingum á fram-
færi á óformlegan og skapandi
hátt. Til umræðu eru allt það
sem varðar málefni bæjarins og
verður efniviður frá þinginu m.a.
nýttur við endurskoðun aðal-
skipulags og Staðardagskrár 21.
Hópum verður stýrt af hlutlaus-
um aðilum og notaðar eru að-
ferðir sem gefa öllum þátttak-
endum færi á að koma sinni
skoðun á framfæri án þess að
standa upp og halda ræðu. Í
skipulagshópum er unnið með
kort af bænum undir stjórn
skipulagsfræðinga og arkitekta,
þar sem hugmyndir þátttakenda
öðlast líf á teikniborði fagmanna.
Ráðgjafarfyrirtækið Alta hefur
umsjón með þinginu en þar star-
fa sérfræðingar með mikla
reynslu og þekkingu af fram-
kvæmd og stjórnun íbúaþinga.
Frekari upplýsingar og svip-
myndir frá íbúaþingum má finna
á www.ibuathing.is.
Starfsfólk Alta vinnur úr þeim
efniviði sem verður til á þinginu
og kynnir helstu skilaboð íbúa-
þingsins þriðjudagskvöldið 22.
nóvember kl. 20.00 í Lindaskóla.
Það er von bæjaryfirvalda að
Kópavogsbúar fjölmenni til
þessa annars íbúaþings í Kópa-
vogi og nýti þetta tækifæri til að
taka virkan þátt í umræðu um
málefni bæjarins.