Kópavogsblaðið - 01.11.2005, Blaðsíða 6
Lögreglan í Kópavogi gegnir
mikilvægu hlutverki til verndar
íbúum Kópavogs og ekki síður
að gæta öryggis þess ört vaxandi
mannfjölda alls staðar að af
landinu sem á erindi í Kópavog-
inn. Þar vegur ekki minnst sá
fjöldi fólks sem sækir verslunar-
miðstöðina Smáralind, en einnig
fer mannfjöldinn vaxandi vegna
mikilla byggingaframkvæmda,
og inn í allar þær íbúðir flytja
ekki bara Kópavogsbúar, heldur
fólk alls staðar að af landinu.
Nýjustu tölur Hagstofunnar sýna
það.
Lögreglumenn í Kópavogi eru
29 talsins, og er hvergi á landinu
jafn margir íbúar að baki hverjum
lögreglumanni, eða alls 889 tals-
ins. Fyrir 13 árum, eða árið 1992,
voru lögreglumenn í Kópavogi 24
talsins, en þá voru íbúar um
17.000 talsins, eða um 708 manns
að baki hverjum lögreglumanni.
Til samanburðar má geta þess að
í Reykjavík eru 493 íbúar að baki
hverjum lögreglumanni. Kópa-
vogslögreglan vill að lögreglu-
mönnum verði fjölgað a.m.k. í 36
til samræmis við fjölda lögreglu-
manna í Hafnarfirði.
Nefnd sem Björn Bjarnason
skipaði og átti að fjalla um sam-
einingu lögregluumdæmanna um
allt land, hefur skilað áliti sínu til
ráðherra og þar er lagt til að lög-
regluumdæmin í Reykjavík, Kópa-
vogi og Hafnarfirði verði samein-
uð 1. júlí 2006. Áður en efni
skýrslunnar verður gert opinbert
verður haldinn kynningarfundur
með lögreglumönnum, m.a. í
Kópavogi, um niðurstöður skýrsl-
unnar.
Friðrik Smári Björgvinsson, yfir-
lögregluþjónn í Kópavogi, segir
að með sameiningu lögregluum-
dæmanna sé stefnt að betri nýt-
ingu fjármuna, en með því sparist
þó ekki t.d. kaup á lögreglubílum.
Friðrik Smári segist vona að ef af
sameiningu verði leiði það ekki til
þess að lögreglustöðin í Kópavogi
verði gerð að hverfisstöð. Það
væri mikil afturför.
Í Kópavogi eru tveir lögreglubíl-
ar gerðir út allan sólarhringinn.
NÓVEMBER 20056 Kópavogsblaðið
Í þessu húsi við Sæbólsbraut bjó Þórður Þorsteinsson hreppstjóri.
Þetta hús geymir mikla frumbýlendasögu og því vert að reyna að
vernda það.
Friðrik Smári Björgvinsson, yfirlögregluþjónn í Kópavogi.
Í Kópavogi eru 889 íbúar
að baki hverjum lögreglu-
manni og eru hvergi fleiri
Heiðra ber
minningu
Þórðar á Sæbóli
Fyrir liðlega 50 árum, skömmu
áður en Kópavogur öðlaðist
kaupstaðaréttindi, skrifaði
hreppsnefnd Kópavogshrepps
Reykjavíkurbæ, sem þá hafði
ekki öðlast borgarnafnið, bréf
þar leitað var eftir viðræðum um
sameiningu sveitarfélaganna.
Bréfið var skrifað þremur dög-
um eftir að Alþingi samþykkti
lög um stofnun Kópavogskaup-
staðar.
Í bréfinu, sem Finnbogi Rútur
Valdimarsson, þáverandi oddviti,
skrifar undir segir m.a.:
„Telur hreppsnefndin, að æski-
legt sé, og raunar áríðandi, að
slíkar viðræður, sem að ofan
greinir, geti farið fram nú, áður en
lögin um kaupstaðarstofnun
koma til framkvæmda að veru-
legu leyti, með því að þær mundu
að minnsta kosti leiða í ljós,
hvaða kosti eða ókosti sameining
Kópavogsbyggðar við Reykjavík-
urbæ yrði talin hafa í för með sér
fyrir viðkomandi aðila hvorn um
sig og með hvaða skilyrðum hvor
þeirra teldi, að slík sameining
gæti átt sér stað nú eða síðar.“
Einn þekktasti íbúi Kópavogs
fyrrum var Þórður Þorsteinsson á
Sæbóli, sem var þá hreppstjóri
Kópavogsbyggðar. Líklega munir
allir sem komnir eru yfir miðjan
aldur, hvert heldur sem þeir áttu
heima í Kópavogi eða Reykjavík,
eftir Þórði og blómaverslun hans í
litlum skúr skammt þar frá sem
nú er gengið yfir Fossvogslækinn.
Hann er horfinn undir íbúðahús
en gamla íbúðarhús Þórðar stend-
ur enn, en mjög illa farið. Væri
það ekki verðugt verkefni fyrir
bæjarstjórn Kópavogs á 50 ára af-
mælinu að vernda það hús, og
þar með söguna?
Því er hér með komið á fram-
færi.
Verður Gustur gerður brottrækur?
Fjármálamenn hafa reynt að
kaupa lóðaleigurétt þess svæðis
sem hesthús hestamannafélags-
ins Gusts standa á. Gustur hefur
verið á þessu svæði síðustu 8 ár
samkvæmt sérstökum samningi
við Kópavogsbæ og gildir samn-
ingurinn í 33 ár enn!
Það er eitt sérkenni byggðar-
innar ofan við Reykjanesbraut að
þar fer saman hesthúsahverfi,
iðnaðarhverfi, verslunarhverfi og
íbúðarhverfi, og það er vel.
Ritstjóri þessa blaðs er ekki
hestamaður, en finnst gaman að
hafa hesthús í nágrenninu, en ég
bý í Lindahverfinu. Það er svo
stutt að fara með barnabörnin til
þess að skoða ho ho!
Bæjarstjórn Kópavogs er and-
stæð kaupum fjármálamanna á
lóðaréttinum, og það er vel.
Hestamennska er tómstundagam-
an og íþrótt. Ekki er víst að allir
yrðu sáttir ef reynt yrði t.d. að
kaupa upp athafnasvæði Breiða-
bliks eða HK. Eða hvað?
Rafvirki, klæðskeri
og tálguskáld í sundi
Sund er góð og heilsusamleg
hreyfing. Þrír herramenn sátu
og drukku kaffi í anddyri Sund-
laugar Kópavogs um hádegisbil-
ið nýverið. Voru búnir að synda
og voru á heimleið. Ekkert lá
þó á!
Ragnvald Larsen er frá Færeyj-
um en hefur hérlendis í 40 ár.
Hann kom til þess að stunda sjó
en gafst fljótlega upp á því vegna
þess að hann sjóaðist aldrei. Þá
datt honum í hug að flytja til
Bandaríkjanna en ekkert varð af
því. Hann lærði rafvirkjun og
starfaði við það. Ragnvald segir
að hann hafi m.a. barist fyrir því
að koma á flugsamgöngum milli
Íslands og Færeyja.
Klæðskerinn Haukur Ingimund-
arson bjó lengi á Langholtsvegin-
um en Reykjavík en flutti í Kópa-
vog fyrir allmörgum árum. Hauk-
ur stóð fyrir rekstri saumastofu
Gefjunar sem Sambandið rak
lengst af á Snorrabrautinni í
Reykjavík. Til skamms tíma var
auk venjulegs fatnaðar saumaðir
þar allir einkennisbúningar sem
nefna má, hvort sem það var fyrir
embættismenn, söngmenn í karla-
kór, lúðrasveitarmeðlimi eða
aðra.
Snorri Karlsson hefur búið í
Kópavogi síðan 1938 og hefur því
sannarlega fylgst með vexti bæj-
arins, hægum framan af en örum
á síðustu árum. Hann segist vera í
seinni tíð tálguskáld, og hafa af-
skaplega gaman að skera úr og
tálga til ýmislegt í tré eftir að
hann hætti í opinberrri þjónustu.
Snorri sagði hins vegar minna
fara fyrir sölu á þessum munum,
hvergi væri hægt að komast að.
Nú er spurning hvort einhver sem
þetta les vill skjóta skjólhúsi yfir
sölusýningu á verkum Snorra.
Þeir félagar Ragnvald, Haukur og Karl slappa af eftir sundið.
Ertu að byggja - Viltu breyta - Þarftu að bæta?
Sisal og kókos gólfteppi
frá 2,711 kr.
Dreglar og slabbmottur fyrir veturinn
Stök teppi á parket og flísar - mikið úrval
Teppadeild
Málningardeild
Kópal - 10 ltr 10% gljái 3,990 kr.
Kópal - 4 ltr 10% gljái 1,990 kr.
Opnunartími:
Mán. - fös. 9.00 - 18.00
Lau. 10.00 - 16.00
Ný sending af Veggfóðri og veggfóðursborðum
Skrautlistar og rósettur - mikið úrval
G r e n s á s v e g u r 1 8 • S í m i : 5 8 1 2 4 4 4
B
a
z
o
o
k
a
!
!
/
8
6
4
3
6
0
3
/
2
0
0
5