Kópavogsblaðið - 01.11.2005, Page 9
NÓVEMBER 2005 9Kópavogsblaðið
Dagdvölin í Sunnuhlíð við
Kópavogsbraut starfar sam-
kvæmt lögum um málefni aldr-
aðra og er liður í opinni öldrun-
arþjónustu í Kópavogsbæ.
Samkvæmt þeim lögum er dag-
vist aldraðra stuðningsúrræði við
þá sem að staðaldri þurfa eftirlit
og umsjá til að geta búið áfram
heima. Veitt er sú þjónusta að
sækja fólk á morgnanna og flytja
það aftur heim að lokinni dvöl-
inni. Dagdvölin hefur starfað í 16
ár þann 17. nóvember nk. For-
stöðumaður er Alda Sveinsdóttir.
Í dagvist aldraðra skal veitt
hjúkrunarþjónusta og vera að-
staða til þjálfunar og læknisþjón-
ustu. Boðið skal upp á flutnings-
þjónustu að og frá heimili einstak-
lingsins, mat á heilsufari, þjálfun,
tómstundaiðju, félagslegan stuðn-
ing, fræðslu, ráðgjöf og aðstoð
við athafnir daglegs lífs.
Dagdvölin hefur leyfi fyrir 18
einstaklinga á dag og um 45
manns njóta þjónustunnar á viku
hverri. Það er mismunandi hve
marga daga í viku hver einstak-
lingur er og fer það eftir óskum
og þörfum hvers og eins.
Um helmingur skjólstæðinga
Sunnuhlíðar er í meðferð hjá
Sjúkraþjálfuninni í Sunnuhlíð og
er það mjög mikilvægur þáttur í
að halda góðri færni og bættri líð-
an. Einnig sér sjúkraþjálfari um
létta leikfimi fjórum sinnum í viku
í Dagdvölinni. Náið samstarf er
við heimahjúkrun og heimaþjón-
ustuna og haldnir eru reglulega
fundir þar sem farið er yfir heilsu
og þarfir skjólstæðinganna. Auk
þess er haft samband eftir þörf-
um.
Fólkið er sótt á morgnanna
milli kl. 08.00 og 09.00 og ekið
heim aftur um kl. 15.00 síðdegis.
Fólkið fær morgunmat, hádegis-
verð og síðdegiskaffi og aðstoð
við böðun. Í þjónustukjarna er
einnig hárgreiðslustofa, fótaað-
gerðarstofa og litil verslun með
helstu nauðsynjar.
Fyrir þessa þjónustu greiðir
hver einstaklingur 600 krónur á
dag en Tryggingastofnun greiðir
mismun upp í fullt daggjald sem
ákveðið er af heilbrigðisráðuneyt-
inu hverju sinni.
Föndrað, spilað, lesið og
spjallað
Þrjár konur sátu við að útbúa
jóladúka þegar ritstjóri leit við í
dagdvöllinni og voru fúsar að
spjalla og sýna glæsilega handa-
vinnuna. Þær koma þarna að jafn-
aði tvisvar í viku. Guðlaug Péturs-
dóttir hefur búið í Kópavogi í 45
ár og segir hvergi betra að búa en
hún er fædd í Reykjavík. Ráðhild-
ur Jónsdóttir er frá Vestmanna-
eyjum en hefur búið í hartnær 50
ár í Kópavogi og Sigurbjörg Björg-
vinsdóttir hefur einnig búið lengi í
Kópavoginum en hún er fædd á
Laugavegi 27 í Reykjavík. Þær
stöllur voru sammála um að það
væri ómetanlegt að geta komið í
Dagdvölina, það væri orðið fastur
punktur í tilverunni.
Við borð skammt frá sátu fjórar
konur og spiluðu vist. Auðheyrt
var að það var ekki í fyrsta skipt-
ið, sagnir gengu hratt kringum
borðið og áhætta tekin þegar svo
bar undir.
Skammt frá þeim sátu tveir
karlar og nutu þess einfaldlega að
lesa blöðin og spjalla. Hjalti Ragn-
arsson er frá Ísafirði en flutti suð-
ur 1943 í atvinnuleit. Hann var
alla tíð á sjó, byrjaði á Ráninni
sem Alliance átti. Hjalti bjó að
Birkihvammi 22, og segir að það
hafi verið vegna húsnæðisleysis í
Reykjavík að hann flutti í Kópa-
voginn. Það hafi hins vegar verið
gæfuspor. Það er því engin
nýlunda að Kópavogur er aflögu-
fær með lóðir fyrir Reykvíkinga!
KR-ingurinn og Vesturbæingur-
inn Gunnar Guðmundsson bjó
þar lengst af en flutti fyrir
nokkrum árum í Núpalindina.
Hann var sjómaður, m.a. á togur-
unum Gulltoppi og Agli Skalla-
grímssyni. Hann segir það alveg
bráðnauðsynlegt að geta komið í
Dagdvölina í viku hverri og hitta
annað fólk. Maður er manns gam-
an.
Ekki má gleyma mötuneytinu á
staðnum sem býður frábæran
mat. Það fékk ritstjóri að stað-
reyna áður en hann hvarf á braut.
Basar og kaffisala
Næsta sunnudag verður basar
og kaffisala í dagdvöl Sunnuhlíð-
ar, og hefst kl. 14.00. Þar verða
margir eigulegir munir og heima-
bakaðar kökur. Auk þess kaffisala
í borðsal þjónustukjarnans. Allir
eru velkomnir en allur ágóði renn-
ur til styrktar starfsemi Dagdval-
arinnar, þar sem eldra fólk dvelur
og nýtur ýmissar þjónustu á ævi-
kvöldinu.
Aldraðir Kópavogsbúar
njóta dagdvalar í Sunnuhlíð
Þær Guðlaug Pétursdóttir og Ráðhildur Jónsdóttir eru þegar farnar
að undirbúa komu jóla.
Er verið að spila „heila“? Ekki gott að segja en hins vegar njóta
þessar heiðurskonur þessað taka í spil og spila vist.