Kópavogsblaðið - 01.11.2005, Page 13
NÓVEMBER 2005 13Kópavogsblaðið
Guðmundur Freyr Sveinsson
býður sig fram í 2. - 3. sæti á lista
Framsóknarflokksins. Hann er
stjórnmálafræðingur en hefur síð-
ustu tvo vetur kennt samfélags-
fræði og upplýsingamennt í Snæ-
landsskóla. Í vetur er hann í
meistaranámi í opinberri stjórn-
sýslu í Háskóla Íslands, auk þess
að vera að ljúka kennsluréttinda-
námi við Kennaraskólann. Lengst
af snérist allt um skátastarf og
íþróttir. Norður á Akureyri æfði
hann handbolta, fótbolta, bad-
minton og blak auk þess að vera
skátaforingi. Eftir að suður kom
fór mikill tími í félagsstörf í há-
skólanum og stjórnmál.
„Stærsta úrlausnarefni sveitar-
félagana í dag eru leikskólamálin.
Síðan er nú bara ár síðan grunn-
skólakennarar voru í löngu verk-
falli og það er eitthvað sem á ekki
að þurfa að gerast. Vandamálið er
að mínu mati láglaunastefna og
miðstýring.
Auðvitað viljum við öll það
sama í grunninn. Örugg dagvistar-
pláss, góða skóla, fjölbreytt fram-
haldsnám, greiðar götur, góða
löggæslu, öfluga heilsugæslu, rétt-
láta stjórnsýslu og góða þjónustu
við fatlaða og aldraða. Sveitar-
stjórnarmál snúast því um að
velja gott fólk til að ná þessum
markmiðum fram í verki.
Þó fjölskyldan sé mjög ánægð
hér í Kópavogi þá sakna ég vissra
afþreyingar sem maður hafði á
Akureyri. Leyfi ég mér að nefna
skautahöllina, sundlaugargarð-
inn, fjölskyldugarðinn, Kjarna-
skóg og skíðasvæðið.
Það verður nú erfitt að flytja
Hlíðarfjall suður en ég sé fyrir
mér fjölbreytt og skemmtilegt úti-
vistarsvæði í Kópavogsdalnum.
Þar mætti t.d. koma fyrir tjald-
svæði í kringum skátaheimilið,
hlaupabrautum, finnskri gufu-
baðsaðstöðu, tjörnum, skauta-
svelli, leiktækjum, grillaðstöðu,
húsdýragarði og keiluhöll í bland
við það sem fyrir er. Þetta er ef til
vill full mikið fyrir lítinn dal. Hér
býr hins vegar mikið af fjölskyldu-
fólki og punkturinn er sá að það
þarf að vera hægt að gera meira
en að fara í Smáralind og sund um
helgar.“
Hvað finnst þér um stöðu
Framsóknarflokksins?
„Ég hef svo mikla trú á miðju-
stefnu í stjórnmálum að ég á bágt
með að skilja slakt gengi flokksins
í könnunum. Sterk staða hans hér
í Kópavogi er hins vegar ánægju-
efni. Sigurður Geirdal heitinn
hafði mikið persónufylgi og það
sýnir m.a. hvað persónur skipta
miklu máli í sveitarstjórnarmál-
um. Prófkjörið er spennandi, það
er frábært fólk í framboði og allir
bæjarbúar mega kjósa. Ég vil því
engu spá. Mikilvægast er að efla
samstöðuna þegar niðurstaðan
liggur fyrir,“ segir Guðmundur
Freyr Sveinsson.
Stærsta úrlausnarefnið
eru leikskólamálin
Guðmundur Freyr Sveinsson
stjórnmálafræðingur.
Jóhannes Valdemarsson rekstr-
arfræðingur er einn þeirra sem
sækst eftir 1. sætinu á framboðs-
lista Framsóknarflokksins. Hann er
fæddur á Grenivík en flytur til
Kópavogs 1965, og hefur þar búið
þar síðan að undanskildum námsár-
um í Danmörku og á Bifröst. Útskrif-
aðist frá Samvinnuskólanum 1984
og sem rekstrarfræðingur frá Sam-
vinnuháskólanum 1993 eftir nokkur
ár þar á undan á vinnumarkaðnum,
m.a. við afgreiðslustörf og leigubíla-
akstur. Nam síðan upplýsingavís-
indi við heimspekideild háskólans í
Árósum. Tók við rekstri IT-center
(Information technology) árið 1996
en kom svo heim og tók við rekstri
Hvells í Kópavogi sem bróðir hans
hafði rekið. Seldi fyrirtækið árið
2004 og starfar í dag við bókhald og
fjárfestingar.
„Ég álít að ég hafi þá undirstöðu
á vinnumarkaðnum, atvinnulífinu
og menntun til þess að sinna vel
störfum bæjarfulltrúa. Ég byrjaði að
starfa með Framsóknarflokknum
1984 eftir að ég útskrifaðist úr Sam-
vinnuskólanum. Ég held að kosn-
ingarnar næsta vor munu að miklu
leiti snúast um mjúku málin. Það
hefur verið alveg gríðarlega mikil
uppbygging í Kópavogi og hér hef-
ur fjölgað um 10 þúsund manns á
15 árum. Það hefur verið léttur
hrynjandi í uppbyggingu íþrótta-
mannvirkja, menningarstofnana og
þjónustu og nú þurfum við að fara
að skoða innviðina. Ég vil styrkja
öldrunarþjónustuna og tel það
óheppilegt að heimahjúkrun skuli
vera rekin af ríkinu á sama tíma og
heimaþjónusta er rekin af bæjarfé-
laginu. Þessa þjónustu vil ég sam-
eina hjá bæjarfélaginu.
Ég vil auka starfsemi á hafnar-
svæðinu, og það þarf ekki endilega
að vera hafnsækin starfsemi. Þarna
er talsvert svæði ónotað. Þarna er
íbúðarbyggð sem hefur verið mjög
gagnrýnd af skipulagsástæðum, og
það þarf að nást sátt um hana. Það
má ýmislegt betur fara í skipulags-
málum, t.d. að greiða fyrir umferð
frá Smáralindinni en beina henni
ekki gegnum bæinn.
Jóhannes segir að ekki eigi að
svíkja samkomulag við hestamenn í
Gusti um staðsetningu hesthús-
anna, en hins vegar telji hann það
ekki eðlilegt lengur vegna nálægðar
við byggð að hesthúsin séu á þessu
svæði. Strætisvagnaferðir innan
Kópavogs þarf að bæta til muna að
mati Jóhannesar Valdemarssonar.
Jóhannes Valdemarsson,
rekstrarfræðingur.
Vill styrkja
öldrunarþjónustuna
Jóhannes Valdemarsson:Guðmundur Freyr Sveinsson:
AUGLÝSINGASÍMI: 511 1188 - 895 8298
Netfang: borgarblod@simnet.is